1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 5. tölul. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar: Í stað „20,32%“ kemur: 19,35% og í stað „6,54%“ kemur: 9,91%. 2. gr. Í stað „25,5%“ í 6. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar kemur: 24%. 3. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 26. gr. reglugerðarinnar: Í stað „20,32%“ kemur: 19,35% og í stað „6,54%“ kemur: 9,91%. 4. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 23. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 5. mgr. 18. gr. og 1. mgr. 21. gr. laganna, og öðlast gildi 1. janúar 2015. Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 17. desember 2014. F. h. r. Maríanna Jónasdóttir. Guðrún Þorleifsdóttir. |