Hér með tilkynnist að heilbrigðisráðherra hefur staðfest meðfylgjandi gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands fyrir tannlækningar sem ekki hefur verið samið um skv. IV. kafla laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, sem birt er sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Gjaldskráin öðlast gildi 15. september 2010 samkvæmt reglugerð nr. 698/2010, um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar, sbr. 2. mgr. 38. gr. laga um sjúkratryggingar, og gildir til 31. desember 2010. Heilbrigðisráðuneytinu, 10. september 2010. Guðbjartur Hannesson. Guðríður Þorsteinsdóttir. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |