1. gr. Í stað núverandi 3. gr. reglnanna komi eftirfarandi: Fjármálafyrirtæki þarf að jafnaði að geta staðist áföll sem samtímis leiða til niðurfærslu eignaliða samkvæmt eftirfarandi stafliðum a), b), c) og d) og áhrifa á eiginfjárgrunn og áhættugrunn við útreikning á eiginfjárhlutfalli samkvæmt staflið e) án þess að eiginfjárhlutfallið fari niður fyrir 8%: | Breytingar- | | hlutfall | a) Vaxtafryst/virðisrýrð útlán og fullnustueignir, nettó | 20% | b) Hlutabréfaeign í innlendum félögum í eigin áhættu | 35% | c) Hlutabréfaeign í erlendum félögum í eigin áhættu | 25% | d) Markaðsskuldabréfaeign í eigin áhættu | 7% | e) Hækkun á gengisbundnum hluta eiginfjár- og áhættugrunns | 25% |
2. gr. Reglur þessar, sem settar eru með tilvísun til 2. ml. 2. mgr. 84. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, öðlast þegar gildi. Fjármálaeftirlitinu, 17. febrúar 2006. Jónas Fr. Jónsson. | Ragnar Hafliðason. |
|