Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1145/2014

Nr. 1145/2014 17. desember 2014
REGLUGERÐ
um innheimtu þinggjalda og jöfnunargjalds á árinu 2015.

1. gr.

Þinggjöld sem leggja skal á tekjur ársins 2014 og ekki hafa verið innheimt í staðgreiðslu skulu greidd á tíu gjalddögum á árinu 2015. Eru gjalddagar fyrsti dagur hvers mánaðar nema í janúar og í þeim mánuði sem álagningu lýkur samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra. Eindagi er mánuði eftir gjalddaga, sbr. þó 2. mgr. 4. gr.

Fyrirframgreiðslu búnaðargjalds vegna álagningar ársins 2016 er jafnað á fimm gjald­daga á árinu 2015, þ.e. frá 1. ágúst til 1. desember.

2. gr.

Þar til álagning ársins 2015 liggur fyrir skal hver gjaldandi greiða fyrirfram upp í álagn­ingu ársins. Fyrirframgreiðslan skal á hverjum gjalddaga nema 8,5% af þinggjöldum ársins 2014 og 8,5% af jöfnunargjaldi vegna alþjónustu sem greiða bar á árinu 2014. Við skiptingu fyrirframgreiðsluskyldu og eftirstöðva álagningar skal við það miðað að ekki sé til innheimtu lægri fjárhæð en 2.000 kr. á hverjum gjalddaga.

Þau þinggjöld sem lögaðilar skulu greiða í fyrirframgreiðslu eru tekjuskattur, sérstakur fjársýsluskattur, jöfnunargjald alþjónustu og búnaðargjald.

Menn skulu fyrirframgreiða tekjuskatt, útsvar, jöfnunargjald alþjónustu og búnaðargjald eftir því sem kveðið er á um.

3. gr.

Árlegir gjalddagar eftirtalinna gjalda eru sem hér segir:

Gjalddagar einstaklinga vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf. eru 1. ágúst, 1. september og 1. október. Gjalddagi vegna gjalds í framkvæmdasjóð aldraðra og slysa­trygging vegna heimilisstarfa skal vera einn, 1. ágúst.

Gjalddagi lögaðila vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf., sérstaks fjársýsluskatts og sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki er 1. nóvember.

Gjalddagi tryggingagjalds utan staðgreiðslu er 1. ágúst.

4. gr.

Hafi skattar, þ.e. fyrirframgreiðsla og álögð gjöld, ekki verið greiddir innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er frá gjalddaga.

Vanskil gjaldanda að hluta á álögðum sköttum og gjöldum valda því að allir skattar gjaldandans falla í eindaga mánuði eftir gjalddaga vangoldinnar greiðslu, en þó ekki fyrr en mánuði eftir að álagningu er lokið.

5. gr.

Heimilt er gjaldanda að sækja um lækkun á þeirri fjárhæð þinggjalda, sem honum hefur verið gert að greiða fram að álagningu ársins 2015 skv. 2. gr. Umsókn um slíka lækkun skal senda ríkisskattstjóra til ákvörðunar. Sama gildir eftir því sem við á um lækkun á fyrirframgreiðslu búnaðargjalds á árinu 2015 vegna álagningar 2016.

6. gr.

Ríkisskattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn gjaldanda, sbr. 5. gr., nema þeir skattstofnar sem um ræðir fyrir tekjuárið 2014 séu meira en 25% lægri en þeir voru á tekjuárinu 2013 og ef fyrirsjáanlegt er að búnaðargjald breytist um sem nemur a.m.k. 25%, þó að lágmarki 10.000 kr. á milli ára. Frá þessari reglu má þó víkja ef sérstaklega stendur á að mati ríkisskattstjóra.

Ríkisskattstjóra er heimilt að setja nánari reglur um ákvörðun á takmörkun greiðslu­skyldu og önnur atriði varðandi framkvæmd þessarar greinar.

7. gr.

Ákvörðun varðandi umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu skal ríkisskattstjóri tilkynna gjaldanda eins fljótt og unnt er og ef fallist er á umsókn skal niðurstaða einnig tilkynnt innheimtuaðila. Ákvörðun ríkisskattstjóra skal vera endanleg á stjórnsýslustigi

8. gr.

Um greiðslur þinggjalda á árinu 2015 fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.

9. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 112., 114. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, 4. mgr. 6. gr. laga nr. 84/1997, um bún­aðargjald, með síðari breytingum og 22. gr. laga nr. 81/2003, um fjarskipti, með síðari breyt­ingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 17. desember 2014.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. desember 2014