I. KAFLI Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar 1. gr. Skipan bæjarstjórnar. Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar er skipuð 7 bæjarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. 2. gr. Starfstímabil bæjarstjórnar. Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum. 3. gr. Valdsvið. Bæjarstjórn fer með stjórn Hveragerðisbæjar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn. 4. gr. Skyldur bæjarstjórnar. Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins og vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa hans. 5. gr. Verkefni bæjarstjórnar. Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa bæjarins sérstaklega, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum. 6. gr. Helstu verkefni. Meðal verkefna bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar er: - Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga bæjarins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá bænum.
- Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
- Að stjórna fjármálum bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja, skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
- Að ákveða stjórnkerfi bæjarins og ráða bæjarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá bænum.
II. KAFLI Um fundarsköp bæjarstjórnar. 7. gr. Fundartími bæjarstjórnar. Bæjarstjórn heldur reglulega fundi einu sinni í hverjum mánuði, að jafnaði annan fimmtudag hvers mánaðar. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 17.00. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarstjórnarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni. 8. gr. Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar. Sá kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í bæjarstjórn átt jafnlengi setu í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr. 9. gr. Boðun bæjarstjórnarfunda. Bæjarstjóri, sbr. þó 8. gr., boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórnin ekki gert það. 10. gr. Auglýsing bæjarstjórnarfunda. Íbúum bæjarins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar bæjarins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni. Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórnin ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum bæjarins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði. 11. gr. Dagskrá bæjarstjórnarfunda. Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta bæjarstjórnar og skal dagskráin fylgja fundarboði. Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka: - Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu forseta bæjarstjórnar, varaforseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins, svo og ráðningar bæjarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá bænum.
- Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri og/eða forseti bæjarstjórnar ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá. Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem bæjarstjóri telur nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti undirbúið sig fyrir fundinn. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta bæjarstjórnarfundar. 12. gr. Fundarboð. Bæjarstjóri skal hafa sent bæjarfulltrúum fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund. 13. gr. Auglýsing dagskrár bæjarstjórnarfunda. Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera aðgengileg íbúum bæjarins þegar hún hefur verið samin, svo sem á heimasíðu bæjarins, bæjarskrifstofu á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem bæjarstjórn ákveður. 14. gr. Boðun aukafunda. Bæjarstjóri skal senda bæjarstjórnarmönnum fundarboð aukafundar í bæjarstjórn þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund. 15. gr. Kosning forseta og varaforseta bæjarstjórnar. Sá bæjarfulltrúi er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum uns forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn. Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef forseti bæjarstjórnar nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórninni skal hann víkja sæti og kosning fara fram á ný. Sá er rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fleiri atkvæði fær þó hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu. Forseti bæjarstjórnar stjórnar kjöri varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu hans, sbr. 3. mgr. Varaforseti skal kjörinn til jafnlangs tíma og forseti. Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta bæjarstjórnar til samgönguráðuneytisins þegar að því loknu. Sé enginn forseti á fundi gegnir aldursforseti störfum forseta nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra. Ef forseti bæjarstjórnar deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa nýjan forseta bæjarstjórnar í hans stað til loka kjörtímabils forseta. 16. gr. Kosning skrifara. Bæjarstjórn kýs einn skrifara og einn til vara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og kosning forseta bæjarstjórnar fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn. 17. gr. Fundarstaður. Bæjarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir. Bæjarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks. Bæjarstjórn getur ákveðið, að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna bæjarins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur bæjarstjórn ákveðið, að bæjarstjórnarfundur, þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn. 18. gr. Lögmæti bæjarstjórnarfunda. Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarfulltrúa er mættur á fundinn og getur bæjarstjórnin enga bindandi ályktun gert nema bæjarstjórnarfundur sé lögmætur. 19. gr. Fundarstjórn. Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans og stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnarinnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar. Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum. 20. gr. Afgreiðsla dagskrármála á fundi. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá, nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað. Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá, ef 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa samþykkja slíkt afbrigði. 21. gr. Afgreiðsla mála, tvær umræður. Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni: - Fjárhagsáætlun bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
- Ársreikninga bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
- Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár, sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
- Áætlanir fyrir bæinn, sem gilda eiga til lengri tíma, s.s. þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
- Tilkynningu til eftirlitsnefndar, skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
22. gr. Fundarsókn, varamenn. Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann boða varamann í sinn stað. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn. Bæjarstjórn getur heimilað einstaklingi utan bæjarstjórnar að taka til máls á bæjarstjórnarfundi. 23. gr. Vanhæfi bæjarfulltrúa. Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Bæjarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf. Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn bæjarins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga bæjarins. Bæjarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúa sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðlsu um hæfi sitt. Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess. 24. gr. Málfrelsi fundarmanna. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta bæjarstjórnar. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis, ákveður forseti bæjarstjórnar í hvaða röð þeir skuli tala. 25. gr. Takmarkanir á málfrelsi. Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta bæjarstjórnar eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar, skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða. Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta bæjarstjórnar. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Ekki má bæjarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta. 26. gr. Vítur á bæjarfulltrúa. Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur. 27. gr. Takmarkanir á ræðutíma. Telji forseti umræður dragast úr hófi fram, getur hann lagt fram dagskrártillögu um, að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar. 28. gr. Meðferð tillagna. Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti bæjarstjórnar óskar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu. 29. gr. Afgreiðsla mála. Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma. 30. gr. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð. Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu. Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar. 31. gr. Úrslit atkvæðagreiðslu Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða útslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafn mörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það en við kosningar ræður hlutkesti. Kosningar sem fram fara í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d‘Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við kjör forseta bæjarstjórnar. 32. gr. Fundargerð. Bæjarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók bæjarstjórnar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða. Mál, sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál. Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað. Bæjarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert skal bóka í gerðabók bæjarstjórnarinnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir bæjarfulltrúar skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal forseti bæjarstjórnar og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu. Bæjarfulltrúi sem gera vill athugasemd við eitthvert atriða í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði. Bæjarstjórn getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur. III. KAFLI Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa. 33. gr. Fundarseta. Bæjarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli. Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum bæjarins. Hver bæjarfulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar svo sem starf forseta bæjarstjórnar. Þó getur sá sem verið hefur forseti bæjarstjórnar eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í bæjarráði eða annarri nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi. 34. gr. Skyldur bæjarfulltrúa. Bæjarfulltrúa ber að gegna störfum sínum í bæjarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarins en í störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni. 35. gr. Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari. Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti bæjarstjórnar ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni. Bæjarfulltrúi á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar enda tilkynni hann það bæjarstjóra skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund. 36. gr. Aðgangur að upplýsingum. Bæjarfulltrúi hefur aðgang að bókum og skjölum bæjarins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna. 37. gr. Bókanir. Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í bæjarstjórn. 38. gr. Þagnarskylda. Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarfulltrúi lætur af þeim störfum. 39. gr. Lausn úr bæjarstjórn. Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórninni án óhæfilegs álags og getur bæjarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Nú er bæjarfulltrúi einhverra hluta vegna sviptur fjárforræði svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta og skal bæjarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir. 40. gr. Þóknun. Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis bæjarfulltrúa og fundarstaðar bæjarstjórnar getur bæjarstjórn auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum bæjarins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar. Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr. 41. gr. Orlof bæjarfulltrúa. Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega. 42. gr. Varamenn. Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn sem sitja bæjarstjórnarfundi. IV. KAFLI Bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir. 43. gr. Kosning í bæjarráð og nefndir. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar, bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra stofnana sem þeir starfa hjá. 44. gr. Kosning í bæjarráð. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalfulltrúar í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í bæjarráð. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð. Flokkur eða framboðsaðili sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn bæjarráðsmann á rétt á að tilnefna fulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. 45. gr. Fundartími bæjarráðs. Bæjarráð skal að jafnaði halda fund tvisvar í mánuði, fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess. 46. gr. Undirbúningur og boðun bæjarráðsfunda. Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann boða varamann í sinn stað. 47. gr. Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs. Á fyrsta fundi nýkjörins bæjarráðs skal kjósa formann, varaformann og ritara. Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmanna óskar þess. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 32. gr. 48. gr. Fjármálastjórn og fullnaðarafgreiðsla mála. Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn bæjarins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarins, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um, að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um. Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda. Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg. 49. gr. Starfsmenn á fundi bæjarráðs. Skylt er starfsmönnum bæjarins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað. 50. gr. Boðun fyrsta fundar nefnda. Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar, nema lög eða bæjarstjórn ákveði annað. Bæjarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af bæjarstjórn. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara. 51. gr. Fundarseta í nefndum. Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir, skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr bænum, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju. Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar, skal sá, sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans, sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. 52. gr. Lokaðir nefndarfundir. Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarins. Ennfremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál. 53. gr. Stjórn nefndafunda. Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins eftir því sem við á. 54. gr. Hlutverk og valdsvið nefnda. Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum bæjarstjórnar. Bæjarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar. Bæjarstjórn skal setja nefndum erindisbréf þar sem kveðið er á um hlutverk þeirra og valdsvið. 55. gr. Fundargerðabækur. Nefndir, ráð og stjórnir bæjarins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 32. gr. 56. gr. Afgreiðsla fundargerða nefnda, ráða og stjórna. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna bæjarins skulu að jafnaði teknar á dagskrá næsta fundar bæjarstjórnar. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar bæjarstjórnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar ber að taka þær sérstaklega fyrir til afgreiðslu. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir bæjarstjórn og/eða bæjarráð til endanlegrar afgreiðslu. 57. gr. Nefndir, ráð, stjórnir, tilnefningar og kosningar. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir til að fara með tiltekin málefni eftir því sem lög eða reglur mæla fyrir um: A. Fulltrúar kjörnir til eins árs á fundi í júní ár hvert: Bæjarráð. Þrír bæjarfulltrúar sem aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Eingöngu bæjarstjórnarmenn eru kjörgengir í bæjarráð sem aðalmenn. Auk þeirra fulltrúa sem ná kjöri eiga þeir listar sem ekki fá kjörinn fulltrúa í bæjarráð rétt á að tilnefna einn bæjarstjórnarmann sem áheyrnarfulltrúa hver og skal hann hafa málfrelsi og tillögurétt.
B. Fulltrúar kjörnir til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum: Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Nefndin fer einnig með málefni leikskóla skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og með málefni tónlistarskóla skv. lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985. Nefndin fer með önnur málefni skv. erindisbréfi sem henni er sett. Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni er snúa að menningu, íþróttum og frístundum bæjarbúa óháð eðli tómstunda og aldri þess sem hana stundar. Nefndin fer einnig með stjórn bókasafns í umboði bæjarstjórnar skv. lögum um almenningsbókasöfn nr. 36/1997. Nefndin starfar skv. erindisbréfi sem henni er sett. Velferðarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með stjórn félagsþjónustu bæjarins skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, málefni aldraðra skv. lögum nr. 125/1999 og málefni fatlaðra skv. lögum nr. 59/1992. Nefndin fer með jafnréttismál skv. lögum um jafnan rétt og jafna stöðu karla og kvenna nr. 10/2008, áfengisvarnir skv. lögum nr. 75/1998 og barnaverndarmál skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002. Nefndin fer með húsnæðismál skv. lögum um húsnæðismál nr. 44/1998 svo og húsaleigumál skv. húsaleigulögum nr. 36/1994. Nefndin fer með önnur málefni skv. erindisbréfi sem henni er sett. Kjörstjórn við alþingis-, sveitarstjórnar- og forsetakosningar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Kjörstjórn fer með þau verkefni sem henni eru falin skv. ákvæðum laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, skv. lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og skv. lögum um forsetakosningar nr. 36/1945. Skipulags- og byggingarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með skipulags- og byggingarmál skv. skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997, skipulagsreglugerð nr. 400/1998 og byggingarreglugerð nr. 441/1998. Einnig fer nefndin með brunamál skv. lögum um brunamál nr. 75/2000. Þá sér nefndin einnig um umferðarmál skv. umferðarlögum nr. 50/1987. Nefndin fer með önnur málefni skv. erindisbréfi sem henni er sett. Rétt til setu á fundum nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt hefur fulltrúi fatlaðra sem fylgir eftir ferlimálum í nefndinni. Einnig fer nefndin með stefnumótun í málefnum veitna skv. ákvæðum laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 37/2004. Mannvirkja- og umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin er bæjarstjórn til ráðgjafar varðandi mannvirkja- og umhverfismál í bæjarfélaginu skv. lögum um náttúruvernd nr. 44/1999, gróðurvernd skv. 19. gr. laga um landgræðslu nr. 17/1965, búfjárhald skv. lögum nr. 103/2002 og gerir nefndin tillögu um búfjáreftirlitsmann og annan til vara skv. 9. gr. laganna. Einnig fer nefndin með daglegan rekstur veitna ásamt því að fara með önnur málefni skv. erindisbréfi sem nefndinni er sett. Skoðunarmenn reikninga Hveragerðisbæjar. Tveir skoðunarmenn og jafnmargir til vara skv. sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998.
C. Aðrir fulltrúar kjörnir til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum. Kosning og tilnefning fulltrúa í nefndir og ráð sem leiða af samstarfi sveitarfélaga á Suðurlandi, Árnessýslu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga eftir því sem lög, reglur og samþykktir segja til um: Almannavarnanefnd Árnessýslu. Héraðsnefnd Árnessýslu. Fulltrúi á aðalfund Sorpstöðvar Suðurlands. Fulltrúar á aðalfund Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Fulltrúar á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands.
58. gr. Verkefnabundnar nefndir. Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Bæjarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. V. KAFLI Um framkvæmdastjórn og starfslið bæjarins. 59. gr. Ráðning bæjarstjóra. Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarstjórn. 60. gr. Hlutverk bæjarstjóra. Bæjarstjóri undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn og bæjarráð. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda bæjarins með sömu réttindum. Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og bæjarmálefna að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki ákveðið annað. Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarstjórnar að veita öðrum starfsmanni bæjarins prókúru. Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarins. Skrifstofustjóri gegnir störfum bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn feli það öðrum. 61. gr. Ráðning stjórnenda. Bæjarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá bænum, þ.e. forstöðumenn og yfirmenn stofnana og veitir þeim lausn frá störfum. 62. gr. Ráðning starfsmanna. Forstöðumenn stofnana ráða fasta starfsmenn bæjarins í umboði bæjarráðs og veita þeim lausn frá störfum nema á annan veg sé mælt í reglugerðum eða reglum er bæjarstjórn setur. 63. gr. Starfskjör. Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða eftir ákvæðum ráðningarsamninga. VI. KAFLI Um fjármálastjórn bæjarins. 64. gr. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar. Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal bæjarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, fyrirtækja og stofnana bæjarins fyrir yfirstandandi ár að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til samgönguráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni. Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs á yfirstandandi fjárhagsári. 65. gr. Fjárhagsáætlun Fjárhagsáætlun skv. 64. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórninni. Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni. 66. gr. Endurskoðun fjárhagsáætlunar. Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er bæjarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu á bæjarstjórnarfundi, enda hafi breytingartillögur verið sendar öllum fulltrúum í bæjarstjórn með dagskrá viðkomandi bæjarstjórnarfundar. 67. gr. Þriggja ára áætlun. Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal bæjarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir bæjarins. Skal hún unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar. 68. gr. Áætlun send samgönguráðuneyti. Strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnarinnar skal senda samgönguráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 65. gr. og þriggja ára áætlun skv. 67. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun og breytta skv. 66. gr. 69. gr. Afgreiðsla ársreikninga. Ársreikningur bæjarins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar. Bæjarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðenda og skoðunarmanna. Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana bæjarins og fyrirtækja eigi síðar en 1. júní ár hvert. Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikninginn. Eintak af ársreikningnum skal senda samgönguráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna. VII. KAFLI Gildistökuákvæði. 70. gr. Um samþykktina. Til þess að gera breytingar á samþykkt þessari þarf umræður á tveimur fundum í bæjarstjórn, samþykki meirihluta atkvæða og staðfestingu samgönguráðuneytisins. Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar nr. 549/1999, með síðari breytingum. Samgönguráðuneytinu, 6. desember 2008. F. h. r. Hermann Sæmundsson. Stefanía Traustadóttir. |