Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
2/2010
|
Samningur milli Íslands og Jersey um upplýsingaskipti um skattamál, samningur til að komast hjá tvísköttun einstaklinga, samningur til að komast hjá tvísköttun fyrirtækja sem reka skip eða loftför í flutningum á alþjóðaleiðum og samningur um aðgang að framkvæmd gagnkvæms samkomulags í tengslum við leiðréttingu á hagnaði tengdra fyrirtækja, sem gerðir voru í Helsinki 28. október 2008, öðluðust gildi 3. desember 2009. Samningurinn um upplýsingaskipti um skattamál er birtur sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari, samningurinn til að komast hjá tvísköttun einstaklinga sem fylgiskjal 2, samningurinn til að komast hjá tvísköttun fyrirtækja sem reka skip eða loftför í flutningum á alþjóðaleiðum sem fylgiskjal 3 og samningurinn um aðgang að framkvæmd gagnkvæms samkomulags í tengslum við leiðréttingu á hagnaði tengdra fyrirtækja sem fylgiskjal 4. Þetta er hér með gert almenningi kunnugt. Utanríkisráðuneytinu, 5. janúar 2010. Össur Skarphéðinsson. Einar Gunnarsson. Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|
C-deild - Útgáfud.:
30. desember 2010
|