1. gr. Gildissvið. Reglugerð þessi gildir um tilkynningar samkvæmt 8. mgr. 93. gr. og 8. mgr. 94. gr. laga nr. 56/2010, um vátryggingastarfsemi, vegna slita á vátryggingafélagi. 2. gr. Tilkynning til þekktra kröfuhafa. Tilkynna skal öllum þekktum kröfuhöfum um gjaldþrotaskipti vátryggingafélags. Slík tilkynning skal vera í samræmi við ákvæði 13. og 44. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Tilkynninguna skal einnig birta í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og a.m.k. tveimur innlendum dagblöðum í öllum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu. 3. gr. Innleiðing. Með reglugerðinni er ákvæði greinar 15(1) í tilskipun 2001/17/EB um endurskipulagningu og slit vátryggingafélaga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2012, innleitt. 4. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett með stoð í 104. gr. laga nr. 56/2010, um vátryggingastarfsemi, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 27. júní 2014. F. h. r. Kjartan Gunnarsson. Sóley Ragnarsdóttir. |