1. gr. f-liður 7. gr. hljóði svo: Til sérstakra verkefna sem geta haft mikla þýðingu fyrir sveitarfélög, sbr. 11. gr. 2. gr. Síðasti málsliður b-liðar 1. mgr. 8. gr. hljóði svo: Endanlegt uppgjör skal fara fram eigi síðar en í árslok á grundvelli upplýsinga um íbúafjölda sveitarfélaga 1. janúar á sama ári og leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga. 3. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Innanríkisráðuneytinu, 7. mars 2013. Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir. |