1. gr. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 154/2013, frá 9. október 2013, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1012/2012 frá 5. nóvember 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2074/2005 og reglugerð (EB) nr. 1251/2008 að því er varðar skrá yfir smitferjur, heilbrigðiskröfur og vottunarkröfur varðandi húðsveppadrep og færsluna fyrir Taíland í skránni yfir þriðju lönd þaðan sem innflutningur á tilteknum fiskitegundum og lagarafurðum til Sambandsins er leyfður. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56, frá 10. október 2013, bls. 469. 2. gr. Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008, um fiskeldi, lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. 3. gr. Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995, um matvæli, laga nr. 55/1998, um sjávarafurðir, laga nr. 71/2008, um fiskeldi, laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og laga nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum. 4. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. apríl 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Halldór Runólfsson. |
Eggert Ólafsson. |