Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 642/2015

Nr. 642/2015 10. júlí 2015

REGLUGERÐ
um ráðstöfun 2.000 tonna viðbótaraflaheimilda í makríl á árinu 2015.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun viðbótaraflaheimilda í makríl samkvæmt ákvæði VIII til bráðabirgða í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

2. gr.

Úthluta skal allt að 2.000 lestum af makríl gegn greiðslu gjalds, á árinu 2015 til skipa sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn að stærð, sem stunda veiðar með línu og handfærum. Heimilt er að úthluta á skip, sem hafa veiðileyfi með aflamarki eða krókaaflamarki, allt að 15 lestum í senn. Ekkert skip getur fengið úthlutað viðbótaraflaheimild fyrr en það hefur veitt 80% af úthlutuðum aflaheimildum sínum samkvæmt reglugerð nr. 532/2015 um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2015. Þessi takmörkun gildir ekki um skip sem ekki fengu úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 532/2015 og ekki um þau skip sem fengu minni úthlutun en 27 lestir.

3. gr.

Úthlutun viðbótaraflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð er bundin því skilyrði að skip hafi veitt 80% af áður úthlutuðum viðbótaraflaheimildum. Aflaheimildir sem úthlutað er samkvæmt þessu ákvæði er óheimilt að framselja.

4. gr.

Fiskistofa annast úthlutun viðbótaraflaheimilda gegn greiðslu gjalds á grundvelli umsókna og skal vikulega úthluta aflaheimildum á grundvelli umsókna sem borist hafa undanfarandi viku.

Ef umsóknir um viðbótaraflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru skal Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur. Verð á viðbótaraflaheimildum í makríl er 8 kr. fyrir hvert kg og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi gjald ekki verið greitt í síðasta lagi á öðrum virkum degi úthlutunarviku fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður.

Á heimasíðu Fiskistofu skal vikulega birta upplýsingar um magn makríls sem til ráðstöfunar er.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, ákvæði til bráðabirgða VIII, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. júlí 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.


B deild - Útgáfud.: 13. júlí 2015