Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1033/2013

Nr. 1033/2013 7. nóvember 2013
REGLUGERÐ
um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2013 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr.

Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorku­byrði lífeyrissjóða fyrir árið 2013 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætl­aðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorku­byrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr.

Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyris­sjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldu­tryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyris­réttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlut­deild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr.

Úthlutun fjárframlags árið 2013.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2013 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyris­réttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2012 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2012 samtals kr. 882.951.421.012 og er áætlað fjár­framlag ársins 2012 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. sam­tals kr. 2.869.592.118 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður

Fjárhæð kr.

Hlutfall

Almenni lífeyrissjóðurinn

32.268.563

1,125%

Eftirlaunasjóður FÍA

8.651.820

0,302%

Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar

459.135

0,016%

Eftirlaunasjóður starfsm. Hafnarfjarðarkaupstaðar

2.769.156

0,097%

Eftirlaunasjóður starfsm. Útvegsb. Íslands

660.006

0,023%

Festa lífeyrissjóður

283.099.610

9,866%

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

119.905.907

4,179%

Gildi lífeyrissjóður

1.001.817.652

34,912%

Íslenski lífeyrissjóðurinn

14.290.569

0,498%

Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar

2.023.062

0,071%

Lífeyrissjóður bankamanna - aldur

18.838.872

0,657%

Lífeyrissjóður bankamanna - hlutfall

17.791.471

0,620%

Lífeyrissjóður bænda

12.124.027

0,423%

Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga

23.258.044

0,811%

Lífeyrissjóður Neskaupstaðar

530.875

0,019%

Lífeyrissjóður Rangæinga

17.662.340

0,616%

Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar

2.223.934

0,078%

Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf.

2.180.890

0,076%

Lífeyrissjóður starfsm. Húsavíkurkaupstaðar

1.305.664

0,046%

Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar

2.625.677

0,092%

Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar

24.219.358

0,844%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A

119.748.079

4,173%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B

112.602.795

3,924%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A

36.329.036

1,266%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V

13.845.782

0,483%

Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjabæjar

1.793.495

0,063%

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands

1.047.401

0,037%

Lífeyrissjóður verkfræðinga

4.849.611

0,169%

Lífeyrissjóður verslunarmanna

300.173.684

10,461%

Lífeyrissjóður Vestfirðinga

58.554.027

2,041%

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja

75.240.705

2,622%

Sameinaði lífeyrissjóðurinn

86.130.807

3,002%

Stafir lífeyrissjóður

72.155.894

2,515%

Stapi lífeyrissjóður

336.832.723

11,738%

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

61.581.447

2,146%

Samtals

2.869.592.118

100,000%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2014, í október 2014, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2013 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2012.

4. gr.

Leiðrétting fjárframlags ársins 2012.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2011 er kr. 819.672.689.391. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2011 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1064/2012, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2012 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2011 er kr. 14.630.916.243 til lækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2012 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2012, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1064/2012, nemur því samtals kr. 47.550.478, til lækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2013 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. lækkar um þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður

Fjárhæð kr.

Hlutfall

Almenni lífeyrissjóðurinn

584.633

1,230%

Eftirlaunasjóður FÍA

178.552

0,376%

Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar

12.363

0,026%

Eftirlaunasjóður starfsm. Hafnarfjarðarkaupstaðar

42.320

0,089%

Eftirlaunasjóður starfsm. Útvegsb. Íslands

9.272

0,020%

Festa lífeyrissjóður

4.548.916

9,567%

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

1.727.509

3,633%

Gildi lífeyrissjóður

16.303.157

34,286%

Íslenski lífeyrissjóðurinn

255.346

0,537%

Kjölur lífeyrissjóður

55.396

0,117%

Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar

37.803

0,080%

Lífeyrissjóður bankamanna - aldur

315.260

0,663%

Lífeyrissjóður bankamanna - hlutfall

307.176

0,646%

Lífeyrissjóður bænda

228.718

0,481%

Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga

393.480

0,828%

Lífeyrissjóður Neskaupstaðar

7.133

0,015%

Lífeyrissjóður Rangæinga

298.141

0,627%

Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar

35.187

0,074%

Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf.

31.859

0,067%

Lífeyrissjóður starfsm. Húsavíkurkaupstaðar

20.922

0,044%

Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar

48.026

0,101%

Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar

411.787

0,866%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A

1.793.842

3,773%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B

1.753.186

3,687%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A

597.709

1,257%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V

258.675

0,544%

Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjabæjar

25.440

0,054%

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands

22.824

0,048%

Lífeyrissjóður verkfræðinga

68.473

0,144%

Lífeyrissjóður verslunarmanna

5.662.786

11,909%

Lífeyrissjóður Vestfirðinga

962.422

2,024%

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja

1.247.487

2,624%

Sameinaði lífeyrissjóðurinn

1.509.490

3,175%

Stafir lífeyrissjóður

1.220.621

2,567%

Stapi lífeyrissjóður

5.574.580

11,724%

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

999.987

2,103%

Samtals

47.550.478

100,000%

5. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. nóvember 2013.

F. h. r.

Hafdís Ólafsdóttir.

Anna V. Ólafsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 22. nóvember 2013