Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 986/2008

Nr. 986/2008 10. október 2008
SAMÞYKKT
um stjórn og fundarsköp Dalabyggðar.

I. KAFLI

Um skipan sveitarstjórnar og verkefni hennar.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalabyggðar er skipuð 7 sveitarstjórnarmönnum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil sveitarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Sveitarstjórn fer með stjórn Dalabyggðar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer sveitarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins, að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

Sveitarstjórn skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.

5. gr.

Sveitarstjórn annast þau verkefni, sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og sam­þykktum. Þá getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varða íbúa þess sérstaklega, enda séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Meðal verkefna sveitarstjórnar Dalabyggðar eru:

  1. Að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar, byggðarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga sveitarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endur­skoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu.
  2. Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  3. Að stjórna fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
  4. Að ákveða stjórnkerfi sveitarfélagsins og ráða sveitarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.

II. KAFLI

Um fundarsköp sveitarstjórnarinnar.

7. gr.

Sveitarstjórn heldur reglulega fundi einu sinni í hverjum mánuði, að jafnaði á þriðjudegi. Sveitarstjórnararfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.00. Heimilt er að fella niður fundi í sveitarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

Aukafundi skal halda í sveitarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati oddvita og sveitarstjóra. Skylt er að halda aukafund í sveitarstjórn ef a.m.k. þriðjungur sveitar­stjórnarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

8. gr.

Sá kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn Dala­byggðar, kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.

Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í sveitarstjórn átt jafnlengi setu í sveitarstjórn boðar sá eldri eða elsti til fundar skv. 1. mgr.

9. gr.

Sveitarstjóri, sbr. þó 15. gr. samþykktar þessarar, boðar sveitarstjórnarfundi. Fundir sveitarstjórnar skulu að jafnaði haldnir í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal hafi sveitarstjórn ekki ákveðið annað.

10. gr.

Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær sveitarstjórnar­fundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar sveitarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.

Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar tekur sveitarstjórnin ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitar­félagsins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.

11. gr.

Sveitarstjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfundar í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu oddvita, varaoddvita, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, svo og ráðningu sveitarstjóra og fastráðningar annarra starfsmanna hjá sveitarfélaginu.
  2. Fundargerðir byggðarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
  3. Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og sveitarstjóri og/eða oddviti ákveður að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarmaður óskar að tekin verði á dagskrá. Sveitarstjórnarmaður, sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitar­stjórnarfundar, skal tilkynna það sveitarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem sveitarstjóri telur nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti undirbúið sig fyrir fundinn. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta sveitarstjórnarfundar.

12. gr.

Sveitarstjóri skal hafa sent sveitarstjórnarmönnum fundarboð sveitarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi fjórum sólarhringum fyrir sveitarstjórnarfund.

13. gr.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar skal vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins þegar hún hefur verið samin, svo sem á auglýsingatöflu sveitarfélagsins, skrifstofu sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem sveitarstjórnin ákveður.

14. gr.

Sveitarstjóri skal senda sveitarstjórnarmönnum fundarboð aukafundar í sveitarstjórn þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund.

15. gr.

Sá sveitarstjórnarmaður er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund ný­kjörinnar sveitarstjórnar og stýrir honum uns oddviti hefur verið kjörinn.

Oddviti skal kjörinn til eins árs. Ef oddviti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórninni skal hann víkja sæti og kosning fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn oddviti sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórninni. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri sveitarstjórnarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn oddviti sem fleiri atkvæði fær þó hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu.

Kjósa skal einn varaoddvita.

Oddviti stjórnar kjöri varaoddvita og skal sömu aðferð beitt við kosningu hans og oddvita, sbr. 3. mgr. Varaoddviti skal kjörinn til jafnlangs tíma og oddviti.

Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar til samgönguráðuneytisins þegar að því loknu.

Sé hvorki oddviti né varaoddviti á fundi gegnir aldursforseti störfum oddvita nema sveitarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef oddviti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa nýjan oddvita í hans stað til loka kjörtímabils oddvita.

16. gr.

Sveitarstjórn getur kosið tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi sveitarstjórnarmanna til eins árs í senn á sama fundi og kosning oddvita fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í sveitarstjórninni.

17. gr.

Sveitarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.

Sveitarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks.

Sveitarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðli málsins, t.d. þegar fjallað er um viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál, sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins, að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarstjórnarfundur, þar sem eingöngu er fjallað um slík mál, verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í sveitarstjórn.

Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í sveitar­stjórn.

18. gr.

Sveitarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur sveitarstjórnarmanna er mættur á fundinn og getur sveitarstjórnin enga bindandi ályktun gert nema sveitar­stjórnar­fundur sé lögmætur.

19. gr.

Oddviti sveitarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans og stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók sveitar­stjórnar­innar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar.

Oddviti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar. Oddviti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á sveitar­stjórnar­fundum og er sveitarstjórnarmönnum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal. Leyfi oddvita þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á sveitar­stjórnar­fundum.

20. gr.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í sveitarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema oddviti eða sveitarstjórn ákveði annað.

Heimilt er að taka til meðferðar á sveitarstjórnarfundi mál sem ekki er á dagskrá ef 2/3 viðstaddra sveitarstjórnarmanna samþykkja slíkt afbrigði.

21. gr.

Sveitarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
  2. Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið, sem gilda eiga til lengri tíma, s.s. þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
  5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar, skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.

22. gr.

Sveitarstjórnarmanni er skylt að sækja alla sveitarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

Sé sveitarstjórnarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til sveitarstjóra sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Þar sem sveitarstjórn hefur verið kjörin í bundinni hlutfallskosningu taka varamenn sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast.

Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn getur heimilað að maður utan sveitarstjórnar taki til máls á sveitar­stjórnar­fundi.

23. gr.

Sveitarstjórnarmanni ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að afstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Sveitarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Sveitarstjórnarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir sveitarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórn fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um sveitarstjóra né þegar sveitarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins.

Sveitarstjórnarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis, ber að vekja athygli sveitar­stjórnar á því. Sveitarstjórnarmanni er heimilt við meðferð máls, sem hann er vanhæfur að afgreiða, að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Sveitarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver sveitarstjórnarmanna sé vanhæfur. Sveitar­stjórnar­maður, sem hlut á að máli, má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Sveitarstjórnarmaður, sem vanhæfur er við úrlausn máls, skal yfirgefa fundarsal sveitar­stjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

24. gr.

Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á sveitarstjórnarfundum. Sveitarstjórnarmaður, sem taka vill til máls, skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu sveitarstjórnarmenn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða sveitarstjóra, framsögumann í máli eða sveitar­stjórnar­mann sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri sveitarstjórnarmenn kvatt sér hljóðs samtímis ákveður oddviti í hvaða röð þeir skuli tala.

25. gr.

Sveitarstjórnarmaður skal beina máli sínu til oddvita eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð byggðarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar, skal sveitarstjórnarmaður taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.

Sveitarstjórnarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó sveitarstjórnarmanni að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögu­maður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

Ekki má sveitarstjórnarmaður lesa upp prentað mál við umræður í sveitarstjórn nema með leyfi oddvita.

26. gr.

Beri sveitarstjórnarmaður aðra menn brigslum skal oddviti víta hann. Oddviti getur lagt til við sveitarstjórn að sveitarstjórnarmaður, sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi, verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist sveitarstjórnarmaður ekki úrskurði oddvita eða sveitarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.

27. gr.

Telji oddviti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver sveitarstjórnarmaður kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhags­áætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

28. gr.

Sveitarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef oddviti óskar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.

29. gr.

Mál er afgreitt í sveitarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá sveitarstjórn eða vísa því til afgreiðslu byggðarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða sveitarstjóra. Máli sem sveitarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Sveitarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

30. gr.

Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Oddviti biður þá sveitarstjórnarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæða­greiðslunnar.

Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athuga­semd verði við það gerð.

Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarmanna óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá sveitarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar sveitarstjórnarmaður þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæða­greiðslu.

Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarmaður óskar og sveitarstjórn samþykkir.

Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.

31. gr.

Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða útslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæða­greiðslu.

Ef jafn mörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

Kosningar sem fram fara í sveitarstjórn skulu vera hlutfallskosningar, skv. d'Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör.

32. gr.

Sveitarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan sveitarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók sveitarstjórnar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Mál, sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi, skal skrá sem trúnaðarmál.

Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema sveitarstjórn ákveði annað.

Sveitarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert skal bóka í gerðabók sveitarstjórnarinnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir sveitarstjórnarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.

Sveitarstjórnarmaður, sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.

Sveitarstjórn getur ákveðið að umræður á sveitarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal sveitarstjórn setja um það nánari reglur.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.

33. gr.

Sveitarstjórnarmanni er bæði rétt og skylt að sækja fundi sveitarstjórnar nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins. Hver sveitarstjórnarmaður er skyldur til að taka að sér þau störf, sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnar, svo sem starf oddvita. Þó getur sá sem verið hefur oddviti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í byggðarráði eða annarri nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

34. gr.

Sveitarstjórnarmanni ber að gegna störfum sínum í sveitarstjórn af alúð og samvisku­semi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins en í störfum sínum er sveitarstjórnar­maður einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

35. gr.

Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er á kveðið í samþykkt þessari.

Sveitarstjórnarmanni er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem sveitarstjórn er að lögum skylt að afgreiða svo sem fjárhags­áætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur oddviti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur sveitarstjórnarmanna tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar enda tilkynni hann það sveitarstjóra skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

36. gr.

Sveitarstjórnarmaður á aðgang að bókum og skjölum sveitarfélagsins og einnig óhindr­aðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna í sveitarstjórn.

37. gr.

Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í sveitarstjórn.

38. gr.

Sveitarstjórnarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um við setu sína í sveitarstjórn og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna sam­kvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að sveitarstjórnarmaður lætur af störfum í sveitarstjórn.

39. gr.

Nú telur sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í sveitarstjórninni án óhæfilegs álags og getur sveitarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Missi sveitarstjórnarmaður kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Nú er sveitarstjórnarmaður einhverra hluta vegna sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal sveitarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

40. gr.

Sveitarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis sveitarstjórnarmanns og fundarstaðar sveitarstjórnar getur sveitarstjórnin auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist sveitarstjórnarmaður á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

41. gr.

Haga skal fundum sveitarstjórnar þannig að sveitarstjórnarmenn eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.

42. gr.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna gilda einnig um vara­menn sem sitja sveitarstjórnarfundi.

IV. KAFLI

Byggðarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir.

43. gr.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í byggðarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leyni­legar bundnar hlutfallskosningar ef einhver sveitarstjórnarmaður óskar þess.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra stofnana sem þeir starfa hjá.

44. gr.

Sveitarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá sveitarstjórnarmenn í byggðarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalfulltrúar í sveitarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í byggðarráð.

Sveitarstjóri situr fundi byggðarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé sveitarstjórnarmaður og hlutgengur í byggðarráð.

Sveitarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í sveitarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn byggðarráðsmann, að tilnefna fulltrúa til setu í byggðarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er sveitarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í byggðarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir sveitarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa.

45. gr.

Byggðarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í mánuði. Aukafundi skal halda ef sveitarstjóri, formaður byggðarráðs eða a.m.k. tveir byggðarráðsmenn óska þess.

46. gr.

Sveitarstjóri undirbýr byggðarráðsfundi í samráði við formann byggðarráðs. Hann sér um að byggðarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti byggðarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna sveitar­stjóra um öll forföll og boðar sveitarstjórinn þá varamann hans á fund.

47. gr.

Á fyrsta fundi nýkjörins byggðarráðs skal kjósa formann, varaformann og ritara byggðarráðsins. Formaður byggðarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitar­stjórnar. Heimilt er að taka mál til meðferðar í byggðarráði þótt það sé ekki tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver byggðarráðs­manna óskar þess.

Byggðarráð getur ráðið sér fundarritara utan byggðarráðs. Um ritun fundargerða byggðar­ráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnarinnar, sbr. 32. gr.

48. gr.

Byggðarráð fer ásamt sveitarstjóra með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins og fjármála­stjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Byggðarráð hefur umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutað­eigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir sveitarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér byggðarráð um að ársreikningar sveitarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins séu lagðir fyrir sveitar­stjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.

Byggðarráð gerir tillögur til sveitarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Byggðarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli byggðarráðs­manna eða við sveitarstjóra um slíka afgreiðslu. Byggðarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhags­áætlun svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.

Byggðarráð gegnir störfum rekstrarnefnda félagsheimila, rekstrar- og framkvæmda­nefndar Laugaskóla og stjórnar Silfurtúns.

Þá getur sveitarstjórn falið byggðarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.

49. gr.

Skylt er starfsmönnum sveitarfélagsins að sitja fundi byggðarráðs ef þess er óskað.

50. gr.

Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar, nema lög eða sveitarstjórnin ákveði annað.

Sveitarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af sveitarstjórn. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara. Sveitarstjóri skal fá fundarboð allra nefnda.

51. gr.

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Ef aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega, tekur varamaður hans sæti nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu, skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

52. gr.

Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Ennfremur getur nefnd boðið aðila á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

53. gr.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

54. gr.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið sveitarstjórn til ákvörðunar.

55. gr.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnarinnar, sbr. 32. gr.

56. gr.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna sveitarfélagsins skulu að jafnaði teknar á dagskrá byggðarráðs og/eða sveitarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar byggðarráðsins og/eða sveitarstjórnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar byggðarráðsins og/eða sveitar­stjórnarinnar ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir byggðarráðið og/eða sveitarstjórnina.

57. gr.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti:

A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert:

  1. Byggðarráð: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara úr hópi sveitarstjórnarmanna sbr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Byggðarráð gegnir störfum rekstrar­nefndar félagsheimila, rekstrar- og framkvæmdanefndar Laugaskóla og stjórnar Silfurtúns.
  2. Félagsmálanefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Félagsmálanefnd fjallar um velferðar- og félagsmál í víðum skilning, barnavernd, húsnæðismál, sbr. lög nr. 44/1998, málefni aldraðra, sbr lög nr. 125/1999, málefni fatlaðra, sbr. lög nr. 59/1992, heilbrigðismál, sbr. lög um heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990, forvarnir, sbr. lög um lýðheilsustöð nr. 18/2003 og jafnréttismál, sbr. lög nr. 10/2008, að því leyti sem sveitarfélagið fer með viðkomandi mál. Hún fer með stjórn og framkvæmd félagsþjónustu í sveitarfélaginu í umboði sveitarstjórnar skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum. Félags­málanefnd annast einnig störf jafnréttisnefndar skv. 12. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Félagsmálanefnd annast tengsl við barnaverndarnefnd enda sé samið um samstarf við annað/önnur sveitarfélög um starf barnaverndarnefndar skv. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Nefndin gegnir hlutverki húsnæðisnefndar, skv. 6. gr. húsnæðislaga nr. 44/1998.
  3. Fræðslunefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Fræðslunefnd gegnir störfum skólanefnda allra skóla sveitarfélagsins skv. lögum um grunnskóla nr. 91/2008, lögum um leikskóla nr. 90/2008 og 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 með síðari breytingum, auk málefna sem snúa að fullorðinsfræðslu. Nefndin fjallar einnig um fræðslumál almennt og skipar fulltrúa í fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.
  4. Umhverfis- og skipulagsnefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fjallar um umhverfismál, samgöngumál, brunavarnir og veitumál (m.a. sbr. 2. gr. vatnsveitulaga nr. 32/2004 með síðari breytingum). Hún gegnir einnig störfum skipulags- og byggingarnefndar skv. 6. og 7. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum og umferðarnefndar skv. heimild í 116. gr. umferðarlaga með síðari breytingum, gróðurverndarnefndar skv. 19. gr. land­græðslulaga nr. 17/1965 með síðari breytingum og náttúruverndarnefndar skv. náttúruverndarlögum nr. 44/1999 með síðari breytingum. Ennfremur fer nefndin með mál sem tengjast lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og staðardagskrá.
  5. Menningar- og ferðamálanefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með mál og sinnir stefnumótun á sviði menningar- og ferðamála og fer með málefni safna í sveitarfélaginu, þ.m.t. Leifssafns, Eiríksstaða og starfar sem stjórn héraðsbókasafns Dalasýslu skv. 7. gr. almenningsbókasafnslaga nr. 36/1997 með síðari breytingum og fer með málefni annarra safna í eigu sveitarfélagsins. Auk þess fjallar nefndin um kynningar- og markaðsmál hjá sveitarfélaginu og ýmis samstarfsverkefni á sviði menningar- og ferðamála sem sveitarfélagið tekur þátt í.

B. Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

  1. Fjallskilanefndir, átta talsins: Þrír menn í hverri nefnd og jafnmargir til vara. Nefndirnar eru: fjallskilanefnd Skógarstrandar, fjallskilanefnd Suðurdala, fjallskila­nefnd Haukadals, fjallskilanefnd Laxárdals, fjallskilanefnd Hvammssveitar, fjallskila­nefnd Fellsstrandar, fjallskilanefnd Skarðsstrandar og fjallskilanefnd Saurbæjar. Þær starfa skv. 1. gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986.
  2. Kjörstjórnir við alþingis- og sveitarstjórnarkosningar skv. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Kjörstjórn vesturkjördeildar: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Kjörstjórn suðurkjördeildar: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Yfirkjörstjórn: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
  3. Skoðunarmenn: Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara. Skoðunarmenn starfa skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
  4. Fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga: Einn aðalmaður og einn til vara skv. 4. gr. laga sambandsins.
  5. Fulltrúi í fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands: Einn aðalmaður og einn til vara skv. 9. gr. laga um eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.

C. Kosning og tilnefning fulltrúa í nefndir og ráð sem leiða af samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi og Sambandi íslenskra sveitarfélaga eftir því sem lög, reglur og samþykktir segja til um.

58. gr.

Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Sveitarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.

V. KAFLI

Um framkvæmdastjórn og starfsmenn sveitarfélagsins.

59. gr.

Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við sveitar­stjóra þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af sveitarstjórn.

60. gr.

Sveitarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins. Hann undirbýr fundi byggðarráðs og sveitarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum sveitarstjórnar og byggðarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn og sem slíkur fulltrúi í byggðarráði. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda og ráða sveitarfélagsins með sömu réttindum.

Sveitarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og málefna sveitar­félagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki ákveðið annað.

Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem sam­þykki sveitarstjórnarinnar þarf til. Sveitarstjóranum er heimilt með samþykki sveitar­stjórnar að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru.

Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn ákveður hver gegna skuli störfum sveitarstjóra í forföllum hans.

61. gr.

Sveitarstjórn fastræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu, svo sem yfirmenn stofnana og deilda sveitarfélagsins, og veitir þeim lausn frá störfum.

62. gr.

Sveitarstjóri ræður aðra starfsmenn sveitarfélagsins en þá sem greinir í 61. gr., nema á annan veg sé mælt fyrir um í reglugerð eða reglum sem sveitarstjórn hefur sett.

63. gr.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjara­samninga hverju sinni og/eða eftir ákvæðum ráðningarsamninga.

VI. KAFLI

Um fjármálastjórn sveitarfélagsins.

64. gr.

Fyrir lok desember ár hvert skal sveitarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins fyrir yfirstandandi ár að undangengnum tveimur umræðum í sveitarstjórn. Ef ekki hefur tekist að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok janúar skal sækja skriflega um frest til samgönguráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.

Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur sveitarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna sveitarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða, og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhags­áætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

Sveitarstjórn skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.

65. gr.

Fjárhagsáætlun skv. 64. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr sveitarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af sveitarstjórninni.

Samþykki sveitarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykkt slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.

66. gr.

Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er sveitarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir sveitarstjórn við eina umræðu á sveitar­stjórnar­fundi, enda hafi breytingartillögur verið sendar öllum fulltrúum í sveitar­stjórn með dagskrá viðkomandi sveitarstjórnarfundar.

67. gr.

Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal sveitarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins. Skal hún unnin og afgreidd af sveitarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

68. gr.

Strax að lokinni afgreiðslu sveitarstjórnarinnar á fjárhagsáætlun skal senda hana samgöngu­ráðuneytinu, skv. 66. gr., og jafnframt þriggja ára áætlun, skv. 69. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun og breytta, skv. 68. gr.

69. gr.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir lok aprílmánaðar næsta fjárhagsárs.

Sveitarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endur­skoðenda og skoðunarmanna.

Sveitarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja eigi síðar en 1. júní ár hvert. Sveitarstjórnarmenn og sveitarstjóri skulu árita ársreikninginn.

Eintak af ársreikningnum skal senda samgönguráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna.

Samþykkt þessi, sem sveitarstjórn Dalabyggðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Dalabyggðar nr. 977/2000 með síðari breytingum.

Samgönguráðuneytinu, 10. október 2008.

F. h. r.
Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 28. október 2008