Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 141/2007

Nr. 141/2007 19. desember 2007
LÖG
um breytingu á lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, með síðari breytingum.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
    a.    Orðskýringin Búfé verður svohljóðandi: Alifuglar, geitfé, hross, kanínur, loðdýr, nautgripir, sauðfé og svín. Rísi ágreiningur um hvað skuli falla undir hugtakið búfé sker landbúnaðarráðherra úr.
    b.    Við orðskýringuna Einangrunarstöð bætist: auk svína og erfðaefnis þeirra.
    c.    Ný orðskýring bætist við, í réttri stafrófsröð, svohljóðandi: Gæludýr: Dýr af eftirgreindum tegundum og flokkum: Hundar, kettir, kanínur, skrautfiskar, vatnadýr, nagdýr og búrfuglar.

2. gr.
    Á eftir orðunum „dýra og erfðaefnis“ í 4. mgr. 2. gr. laganna kemur: sbr. þó 4. gr. a.

3. gr.
    Á eftir 4. gr. laganna bætist við ný grein, 4. gr. a, svohljóðandi:
    Yfirdýralæknir getur vikið frá því banni sem um getur í 1. mgr. 2. gr. og leyft innflutning á gæludýrum og erfðaefni þeirra sem ekki teljast til nýrra dýrategunda eða erlendra stofna tegunda sem hér eru fyrir, sbr. 5. gr., enda sé fylgt fyrirmælum sem felast í lögum þessum og reglugerðum er settar eru samkvæmt þeim.
    Meta skal áhættu af innflutningi og er heimilt að krefja innflytjanda um upplýsingar um heilbrigði gæludýrs, þ.m.t. heilbrigðis- og upprunavottorð, sem staðfesta nauðsynlega bólusetningu, rannsóknir og meðhöndlun gæludýrs eða erfðaefnis fyrir innflutning.
    Heimilt er að krefjast skapgerðarmats á hundum sem sótt er um innflutningsleyfi fyrir, einnig er heimilt að krefjast skapgerðarmats á hundum sem sótt er um leyfi til að flytja inn erfðaefni úr. Ekki skal veita undanþágu til innflutnings á hundum, blendingum af úlfum og hundum, eða öðrum gæludýrum sem hætta getur stafað af.

4. gr.
    Við 13. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Innflutt erfðaefni svína má ekki flytja úr einangrunarstöð. Svín sem vaxið hafa af innfluttu erfðaefni í einangrunarstöð má hins vegar flytja þaðan að fengnu leyfi yfirdýralæknis og uppfylltum skilyrðum 1. mgr.

5. gr.
    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2008.

Gjört í Reykjavík, 19. desember 2007.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Einar K. Guðfinnsson.

A deild - Útgáfud.: 28. desember 2007