Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Byggðastofnun að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. júní 2014 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið. | Bifreiðabensín | 0,43 kr. á lítra | | Gasolía | 0,78 kr. á lítra | | Aðrar olíur og blöndur til brennslu | 0,10 kr. á kg | | Flugsteinolía (þotueldsneyti) | 0,15 kr. á lítra | | Flugvélabensín | 0,20 kr. á lítra |
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreifingaraðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins og skulu skila því til flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara. Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 781/2012. Byggðastofnun, 5. maí 2014. Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri. Elín Gróa Karlsdóttir, formaður stjórnar Flutningsjöfnunar- sjóðs olíuvara. |