1. gr. 4. ml. 1. gr. orðist svo: Skilagjald skal nema 13,08 kr. án virðisaukaskatts á hverja umbúðaeiningu. 2. gr. 2. gr. orðist svo: Umsýsluþóknun skal leggja til viðbótar skilagjaldi á hverja umbúðaeiningu úr stáli, gleri og plastefni og skal fjárhæð hennar án virðisaukaskatts vera 4,63 kr. á umbúðir úr stáli, 3,40 kr. á umbúðir úr gleri stærri en 500 ml, 2,44 kr. á umbúðir úr gleri 500 ml og minni, 2,09 kr. á umbúðir úr lituðu plastefni og 0,86 kr. á umbúðir úr ólituðu plastefni. 3. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 52/1989 um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur og öðlast gildi 1. nóvember 2010. Umhverfisráðuneytinu, 26. október 2010. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Sigríður Auður Arnardóttir. |