Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 731/2008

Nr. 731/2008 21. júlí 2008
AUGLÝSING
(II) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 605, 24. júní 2008 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2007/2008 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Dalvíkurbyggð.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 24. júní 2008 gilda um úthlutun byggðakvóta Dalvíkurbyggðar með eftirfarandi viðauka/breytingum á 6. gr.:

Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu innan sveitarfélagsins afla sem nemur, ....o.s.frv.

Húnaþing vestra.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 24. júní 2008 gilda um úthlutun byggðakvóta Húnaþings vestra með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a) Byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 719/2007 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 605 að öðru leyti. Skipting er eftirfarandi: 35% er skipt jafnt milli ofangreindra skipa og 65% milli ofangreindra skipa þannig að til viðmiðunar verði löndunarhæsta ár útgerðar í Hvammstangahöfn í þorskígildum talið. Viðmiðunarárin eru 3 síðustu fiskveiðiár, nú 2004/2005, 2005/2006 og 2006/2007.
b) Ákvæði 4. gr. reglugerðar um 15 þorskígildislesta hámarksúthlutun er fellt niður.
c) Vinnsluskylda samkvæmt 6. gr. reglugerðarinnar er felld niður.

Grundarfjarðarbær.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 24. júní 2008 gilda um úthlutun byggðakvóta Grundarfjarðarbæjar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

1. Helmingi byggðakvótans, 70 þorskígildistonnum, verði úthlutað til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og 2. gr. eftir því sem við á hlutfallslega af þeim aflaheimildum sem fallið hafa til Grundarfjarðar samkvæmt ákvæði 4. gr. reglugerðarinnar.
2. Helmingur byggðakvótans, 70 þorskígildistonn, fari til að bæta þeim sem höfðu aflahlutdeild í skelfiski upp samdrátt vegna banns við skelfiskveiðum á Breiðafirði.

Reglur um úthlutun samkvæmt lið 2:

a) Rétt til að sækja um úthlutun byggðakvóta hafa útgerðir sem gera út fiskiskip frá Grundarfirði eða starfrækja þar vinnslu afla og höfðu aflaheimildir í hörpuskel á fiskveiðiárinu 2004/2005.
b) Aflinn skal veiddur af skipum gerðum út frá Grundarfirði.
c) Umræddur byggðakvóti skal unninn í Grundarfirði, samningur við fiskvinnslu skal fylgja umsókn.
d) Byggðakvóta samkvæmt umsóknum er uppfylla ofangreind skilyrði skal úthlutað á milli umsækjenda hlutfallslega miðað við aflahlutdeild í hörpuskel.

Ákvæði 4. gr. reglugerðarinnar, um 15 þorskígildislesta hámarksúthlutun, er fellt niður í báðum töluliðum þessara sérreglna.

Stykkishólmsbær.
Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 24. júní 2008 gilda um úthlutun byggðakvóta Stykkishólmsbæjar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

Rétt til byggðakvóta hafa bátar þeirra útgerða sem áttu aflahlutdeild í hörpuskel í Breiðafirði þann 1. september 2007 og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum og aðilar sem keypt hafa báta eða útgerðir sem orðið hafa fyrir þessum samdrætti og stunduðu skelveiðar í Breiðafirði á tveimur síðustu skelvertíðum. Byggðakvóta verði úthlutað í hlutfalli við aflahlutdeild í hörpuskel í Breiðafirði þann 1. september 2007.

Akureyrarkaupstaður.
Byggðakvóta Akureyrarkaupstaðar skal úthlutað með eftirfarandi hætti til skipa skráðra í Hrísey samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 605/2008 að öðru leyti en því að:

90 % byggðakvótans skal úthlutað jafnt á þá báta sem gerðir hafa verið út a.m.k. 9 mánuði á síðustu 12 mánuðum.

10 % byggðakvótans skal úthlutað samkvæmt reglugerð nr. 605/2008 á aðra báta sem gerðir eru út hluta úr ári.

Heimilt er að flytja byggðakvóta milli fiskiskipa í eigu sömu útgerðar.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 21. júlí 2008.

F. h. r.
Arndís Á. Steinþórsdóttir.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 22. júlí 2008