Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 205/2008

Nr. 205/2008 26. febrúar 2008

GJALDSKRÁ
skipulags- og byggingarnefndar Hvalfjarðarsveitar.

1. gr.

Almenn ákvæði.

1.1. Við útgáfu byggingarleyfis, framkvæmdaleyfis eða vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir, skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um.

1.2. Tekjum sveitarfélagsins skv. gjaldskrá þessari skal varið til að standa undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins vegna þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við lóðarhafa og byggingaraðila.

2. gr.

Byggingarleyfisgjald.

2.1. Fyrir byggingarleyfi skv. 43. gr., sbr. 53. gr. skipulags- og byggingarlaga, skal greiða gjöld sem hér segir:

Afgreiðslugjald við móttöku byggingarleyfisumsóknar

6.400 kr.      

Auk þess greiðist gjald fyrir hvern rúmmetra í nýbyggingu eða viðbyggingu:

 

Óeinangraðar geymslur, skemmur, hlöður og haughús

45 kr./m³

Aðrar byggingar, þ.m.t. íbúðar-, skrifstofu- og verslunar­húsnæði, frístundahús, gripahús, bílskúrar, bílskýli, bátaskýli, veitinga- og gistihús

64 kr./m³

2.2. Rúmmetragjald skv. gr. 2.1. reiknast af brúttórúmmáli sbr. ákvæði ÍST50 án svala og C rýma.

3. gr.

Þjónustugjöld.

3.1. Vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir skal greiða gjöld sem hér segir, sbr. 53. gr. skipulags- og byggingarlaga:

 

kr.   

Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar

6.400

Áfangaúttekt/stöðuúttekt, skýrsla

25.500

Lokaúttekt

35.700

Úttekt vegna meistaraskipta

25.500

Úttekt vegna byggingarstjóraskipta

25.500

Húsaleiguúttektir á íbúðarhúsnæði

25.500

Húsaleiguúttektir á atvinnuhúsnæði

35.700

Gjald fyrir útkall þegar verk reynist ekki úttektarhæft

6.400

Mæling lóðar

39.300

Mæling fyrir húsi á lóð

33.100

Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga, 1-5 fastanúmer í húsi

12.900

Viðbót vegna eignaskiptayfirlýsingar, hvert fnr. > 5

3.300

Tímabundin stöðuleyfi

6.400

3.2. Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu byggingarleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu byggingarleyfis.

3.2. Fyrir yfirferð nýrra eða breyttra hönnunargagna eftir útgáfu byggingarleyfis greiðast kr. 6.400 til 64.000 eftir umfangi. Gjaldið greiðist við afhendingu gagna.

3.4. Fyrir breytingar á samþykktu deiliskipulagi ber viðkomandi hagsmunaaðili allan kostnað af breytingunum.

4. gr.

Framkvæmdaleyfisgjald.

4.1. Fyrir framkvæmdaleyfi samkvæmt 27. gr. sbr. 53. gr. skipulags- og byggingarlaga ákveður sveitarstjórn gjald eftir umfangi framkvæmdar sem hér segir:

 

kr.   

Afgreiðslugjald við móttöku framkvæmdaleyfisumsóknar

6.400

Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar

6.400

Lágmarksgjald framkvæmdaleyfis

11.200

4.2. Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu fram­kvæmda­leyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu leyfisins.

4.3. Framkvæmdaleyfisgjald skal ekki vera hærra en nemur kostnaði sveitarfélagsins við undirbúning leyfisins og eftirlit sem skylt er að framkvæma.

4.4. Þegar úrskurður um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 er nauðsynlegur vegna framkvæmdar, telst kostnaður sveitarfélagsins hluti af kostnaði þess við útgáfu leyfis.

5. gr.

Gjalddagi, lögveð.

5.1. Gjalddagi afgreiðslugjalda er við móttöku umsókna.

5.2. Gjalddagi leyfisgjalda er við útgáfu leyfis.

5.3. Gjalddagi þjónustugjalda er við afhendingu gagna eða veitingu leyfis.

5.4. Afgreiðslugjöld eru ekki endurkræf þótt umsókn sé synjað, byggingarleyfi falli úr gildi eða umsókn dregin til baka. Leyfis- og þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ekki endurkræf þótt ekki verði af framkvæmd. Þó skulu áætluð þjónustugjöld endur­greidd verði ekki af framkvæmdum á gildistíma byggingarleyfis.

5.5. Heimilt er að gera skriflegan samning um greiðslur. Byggingar- og framkvæmda­leyfis­gjöldum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign og gjaldfallin gjöld má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 55. gr. skipulags- og byggingarlaga.

6. gr.

Verðlagsbreytingar.

6.1. Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu með grunnvísitölu 376,9 stig. Gjöldin taka mánaðarlega breytingum í samræmi við breytingar á vísitölunni. Skipulags- og byggingarfulltrúi skal í upphafi hvers mánaðar leggja fram endurskoðaðar fjárhæðir skv. gjaldskrá þessari, í samræmi við auglýsingar Hagstofu Íslands um hver byggingarvísitala er hverju sinni.

6.2. Rúmmetragjald byggingarleyfis skal vera 0,7% af afgreiðslugjaldi vegna óein­angraðra geymslna, skemma, hlaða og gripahúsa, en 1% af afgreiðslugjaldi vegna annarra bygginga og skal námundað í heila krónu. Önnur gjöld skulu námunduð í næsta heila hundrað.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

7.1. Gjaldskrá þessi, sem er samþykkt af sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og byggingarreglugerð nr. 441/1998, tekur gildi við birtingu.

7.2. Með samþykkt gjaldskrár þessarar fellur úr gildi gjaldskrá skipulags- og bygg­ingar­nefndar Hvalfjarðarsveitar nr. 734/2006.

Hvalfjarðarsveit, 26. febrúar 2008.

Skúli Lýðsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.


B-deild - Útgáfud.: 29. febrúar 2008

  Til baka