Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 993/2006

Nr. 993/2006 23. nóvember 2006
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um útlendinga, nr. 53 23. janúar 2003, með síðari breytingum.

1. gr.

Við 35. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður er orðast svo:

  1. Dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla útlendings við landið skv. 2. mgr. 11. gr. útlendingalaga.

2. gr.

Orðin „af mannúðarástæðum“ í 1. mgr. 36. gr. falla brott.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 58. gr. laga um útlendinga nr. 96 15. maí 2002, sbr. lög nr. 20 30. apríl 2004, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 23. nóvember 2006.

Björn Bjarnason.

Haukur Guðmundsson.

B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2006