FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Að ég, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, staðfesti svohljóðandi forsetaúrskurð um breytingu á forsetaúrskurði nr. 71/2013, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, með síðari breytingum.1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr.: - Við b-lið 2. töluliðar bætast orðin: sbr. þó e-lið 3. töluliðar.
- Við 3. tölulið bætist nýr liður sem orðast svo: Vaxtarsamningar við sveitarfélög.
2. gr. Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, öðlast þegar gildi. Gjört á Bessastöðum, 14. mars 2014. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. |