1. gr. Í stað „13.040 kr.“ í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 13.431 kr. 2. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 14. gr., sbr. 10. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2015. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1216/2013, um breytingu á reglugerð nr. 170/2009, um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða. Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2014. Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |