Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1116/2009

Nr. 1116/2009 28. desember 2009
REGLUGERÐ
um að koma á fót Net- og upplýsingaöryggisstofnun Evrópu.

1. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins (EB), samkvæmt ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XI. viðauka EES-samningsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XI. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 460/2004 frá 10. mars 2004 um að koma á fót Net- og upplýsingaöryggisstofnun Evrópu, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27, dagsett 8. maí 2008, á bls. 105, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2004 frá 8. maí 2008.
  2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1007/2008 frá 24. september 2008 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 460/2004 um að koma á fót Net- og upplýsingaöryggisstofnun Evrópu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 46/2009 frá 24. apríl 2009, sem birtist sem fylgiskjal I við reglugerð þessa.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 16. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 28. desember 2009.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 19. janúar 2010