Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 135/2009

Nr. 135/2009 27. janúar 2009
GJALDSKRÁ
Fjármálaeftirlitsins fyrir nauðsynlegt umframeftirlit skv. 7. gr. laga nr. 99/1999.

1. gr.

Gjaldskrá þessi gildir um eftirlit með einstökum eftirlitsskyldum aðilum sem gert er að greiða samkvæmt reikningi fyrir nauðsynlegt umframeftirlit, sbr. 7. gr. laga um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

2. gr.

Fjármálaeftirlitið tilkynnir eftirlitsskyldum aðila um ákvörðun skv. 7. gr. laga nr. 997/1999.

3. gr.

Fyrir vinnu starfsmanna Fjármálaeftirlitsins við umframeftirlit skal greiða tímagjald sem nemur kr. 12.500.

4. gr.

Greiða skal útlagðan kostnað vegna umframeftirlits, s.s. aðkeypta sérfræðiaðstoð og ferðakostnað.

5. gr.

Gjaldskrá þessi er samþykkt af stjórn Fjármálaeftirlitsins, sbr. 7. gr. laga nr. 99/1999. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 541/2006, um sama efni.

Fjármálaeftirlitinu, 27. janúar 2009.

Ragnar Hafliðason.

Páll Friðriksson.

B deild - Útgáfud.: 9. febrúar 2009