1. gr. 1. málsl. 45. gr. samþykktarinnar hljóðar svo: Byggðarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í mánuði, síðasta fimmtudag hvers mánaðar kl. 8.00. 2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 57. gr. samþykktarinnar: a) B-liður hljóðar svo: - Yfirkjörstjórn: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í undirkjörstjórnir, jafnmargar og kjördeildir eru.
- Jafnréttisnefnd: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 12. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
- Fræðslunefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008, 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og sbr. erindisbréf.
- Orku- og veitunefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- Umhverfisnefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- Landbúnaðarnefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- Velferðarnefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- Atvinnu- og ferðamálanefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- Menningarmálanefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- Samgöngunefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- Fagráð Sögusetursins: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
- Skoðunarmenn: Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
- Skurðanefnd A-Landeyja: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- Skurðanefnd V-Landeyja: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. erindisbréf.
- Héraðsnefnd Rangæinga: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
- Fjallskilanefnd Fljótshlíðar: Þrír aðalmenn og einn varamaður, sbr. erindisbréf.
- Fjallskilanefnd V-Eyjafjalla: Þrír aðalmenn og tveir til vara, sbr. erindisbréf.
b) 7. tölul. C-liðar fellur brott og 8. tölul. verður 7. tölul. 3. gr. Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 16. nóvember 2010. F. h. r. Stefanía Traustadóttir. Hjördís Stefánsdóttir. |