Að tillögu Matvælastofnunar, skv. heimild í 12. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum, eru hér með settar svofelldar reglur um skiptingu varnarlína í aðalvarnarlínur og aukavarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma: 1. gr. Aðalvarnarlínur. Aðalvarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru: | 1. | Hvítárlína: | Ölfusá, Hvítá að Jökulfalli, Jökulfall og Jökulkvísl í Blágnípujökul. | | 2. | Sogs- og Bláskógalína: | Sog frá Ölfusá um Þingvallavatn og úr því um Ármannsfell í Hvalfjarðarlínu við Kvígindisfell. | | 3. | Brúarárlína: | Brúará frá Hvítá í Brúarárskörð um Rótarsand í gíg í Lambahrauni og í gilið í Hagafelli. | | 4. | Hvalfjarðarlína: | Úr Hvalfirði við Múlafjall um Hvalvatn að Kvígindisfelli að Brunnum við Uxahryggi í Hrúðurkarla við Þórisjökul. | | 5. | Snæfellslína: | Úr Skógarnesi um Ljósufjöll í Álftafjörð. | | 6. | Hvammsfjarðarlína: | Úr Hvammsfirði milli Þorbergsstaða og Hrútsstaða um Laxárdalsheiði í Hrútafjörð sunnan Fjarðarhorns. | | 7. | Gilsfjarðarlína: | Úr Gilsfirði um Snartartungu í Bitrufjörð. | | 8. | Kollafjarðarlína: | Úr Kollafirði í Ísafjarðarbotn. | | 9. | Tvídægrulína: | Úr Hvammsfjarðarlínu við Skeggöxl um Kvíslavötn og Arnarvatn stóra í Langjökul við Jökulstalla. | | 10. | Miðfjarðarlína: | Úr Miðfirði um Miðfjarðarvatn í Arnarvatn stóra. | | 11. | Vatnsneslína: | Úr Miðfjarðarvatni í Síðukrók við ósa Víðidalsár. | | 12. | Kjalarlína: | Milli Langjökuls og Hofsjökuls. | | 13. | Blöndulína: | Blanda. | | 14. | Héraðsvatnalína: | Héraðsvötn og Austari-Jökulsá. | | 15. | Eyjafjarðarlína: | Eyjafjarðará sunnan Bringu að Skjónafelli og að Miklafelli í Hofsjökli. | | 16. | Sprengisandslína: | Úr Miklafelli í Hofsjökli um Fjórðungakvísl að Tungnafellsjökli og um Vonarskarð í Vatnajökul. | | 17. | Skjálfandalína: | Skjálfandafljót og í Tungnafellsjökul. | | 18. | Fjallalína: | Jökulsá á Fjöllum. | | 19. | Jökuldalslína: | Jökla (Jökulsá á Brú, Dal) og Hálslón. | | 20. | Lagarfljótslína: | Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljót. | | 21. | Hamarsfjarðarlína: | Hamarsá í Hamarsfirði í Þrándarjökul og þaðan í Vesturdalsjökul. | | 22. | Breiðamerkursandslína: | Jökulsá á Breiðamerkursandi. | | 23. | Skeiðarársandslína: | Sandgígjukvísl. | | 24. | Tungnaárlína: | Frá Botnjökli í Mýrdalsjökli um Mælifellssand í Torfajökul, frá Hábarmi um Kirkjufellsvatn í Tungnaá og þaðan að Jökulgrindum í Vatnajökli. | | 25. | Markarfljótslína: | Markarfljót og Fremri-Emstruá. | | 26. | Þjórsárlína: | Þjórsá. |
2. gr. Aukavarnarlínur. Aukavarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru: | 1. | Smjörfjallalína: | Um Smjörvatnsheiði og Smjörfjöll í Dalsá og til sjávar. | | 2. | Brekkuskógslína: | Fullsæll frá Brúará að mörkum Efri-Reykja og Brekku og í þeim að Brúará við brú á Kóngsvegi. |
3. gr. Auglýsing þessi er sett með stoð í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 717/2009 um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma. Auglýsingin tekur þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. september 2009. Jón Bjarnason. Arnór Snæbjörnsson. |