Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 967/2009

Nr. 967/2009 2. desember 2009
REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 236/2009 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum.

1. gr.

Í stað orðanna „skv. 3. mgr., sbr. þó 2. mgr. og 2. og 9. gr.“ í 1. mgr. 4. gr. kemur: skv. 4. mgr., sbr. þó 2. mgr., 3. mgr. og 2. og 9. gr.

2. gr.

Á eftir 2. mgr. 4. gr. kemur ný málsgrein sem orðast svo:

Sjúkratryggingar taka þátt í greiðslu hagkvæmustu pakkninga í lyfjaflokkunum R 03 A (adrenvirk lyf til innúðunar) og R 03 B (önnur lyf til innúðunar gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi). Hagkvæmustu pakkningar eru metnar út frá verði á ráðlögðum dag­skammti í pakkningu og þær pakkningar B-merktar sem innihalda dagskammta er víkja ekki meir en 290% frá ódýrasta dagskammti. Þegar um er að ræða pakkningar lyfja sem eingöngu eru ætlaðar börnum er miðað við verð á hálfum ráðlögðum dag­skammti sbr. samantekt um eiginleika lyfs (SPC). Sjúkratryggingar taka ekki þátt í greiðslu annarra lyfja í lyfjaflokkum R 03 A og R 03 B en er þó heimilt að gefa út lyfja­skírteini, sbr. 2. tölul. 11. gr.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 25. gr., 1. mgr. 29. gr., og 55. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast gildi 1. janúar 2010.

Ákvæði til bráðabirgða.

Lyfjaávísanir á þau lyf sem fá breytta greiðsluþátttöku samkvæmt 2. gr. og gefnar eru út fyrir gildistöku reglugerðar þessarar, halda óbreyttri greiðsluþátttöku til allt að 1. apríl 2010.

Heilbrigðisráðuneytinu, 2. desember 2009.

Álfheiður Ingadóttir.

Berglind Ásgeirsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 3. desember 2009