Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 550/2009

Nr. 550/2009 25. júní 2009
REGLUGERÐ
um strandveiðar fiskveiðiárið 2008/2009.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um strandveiðar, þar sem fenginn afli telst ekki til aflamarks eða krókaaflamarks, samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 66/2009, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

2. gr.

Í júní, júlí og ágúst 2009 er, að fengnu leyfi Fiskistofu, heimilt að veiða á handfæri allt að 3.955 lestir samtals af óslægðum þorski, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda handfæraveiðar samkvæmt reglugerð þessari.

Við útgáfu Fiskistofu á leyfi til fiskiskips til handfæraveiða samkvæmt reglugerð þessari falla úr gildi önnur leyfi þess til að stunda veiðar til loka fiskveiðiársins 2008/2009 sem gefin eru út með stoð í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Aflaheimildir skiptast á fjögur landsvæði með eftirfarandi hætti:

A.Eyja- og Miklaholtshreppur - Skagabyggð. Í hlut þess koma alls 1.316 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 263 tonn í júní, 724 tonn í júlí og 329 tonn í ágúst.
B.Sveitarfélagið Skagafjörður - Grýtubakkahreppur. Í hlut þess koma alls 936 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 187 tonn í júní, 515 tonn í júlí og 234 tonn í ágúst.
C.Þingeyjarsveit - Djúpavogshreppur. Í hlut þess koma alls 1.013 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 203 tonn í júní, 557 tonn í júlí og 253 tonn í ágúst.
D.Sveitarfélagið Hornafjörður - Borgarbyggð. Í hlut þess koma alls 690 tonn sem skiptast á þann veg að heimilt er að veiða allt að 138 tonn í júní, 380 tonn í júlí og 172 tonn í ágúst.
Fiskistofu er eingöngu heimilt að veita skipi leyfi til strandveiða miðað við landsvæði þar sem útgerð skips á heimilisfesti samkvæmt þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og skal öllum afla veiðiskips landað innan þess landsvæðis. Sama fiskiskipi verður aðeins veitt leyfi frá einu landsvæði á fiskveiðiárinu.

Náist ekki að veiða heimilaðan afla tiltekins landsvæðis í júní eða júlí bætast ónýttar heimildir við aflaheimildir næsta mánuð á eftir. Fiskistofa fylgist með afla þessum og tilkynnir ráðuneytinu hvenær líklegt megi telja að viðmiðunarafla tímabils verði náð, sbr. 1. mgr. Ráðherra tilkynnir frá hvaða degi veiðar séu stöðvaðar á tilteknu svæði og skulu fiskiskip sem leyfi hafa á því svæði þá hætta veiðum.

4. gr.

Leyfi til handfæraveiða samkvæmt reglugerð þessari eru bundin eftirfarandi skilyrðum:

1.Óheimilt er að stunda veiðar föstudaga og laugardaga.
2.Hver veiðiferð skal eigi standa lengur en 14 klukkustundir. Miðað er við þann tíma er fiskiskip lætur úr höfn til veiða til þess er það kemur til hafnar aftur til löndunar. Aðeins er heimilt að fara í eina veiðiferð á hverjum degi. Nái bátur ekki af óviðráðanlegum ástæðum, s.s. vegna vélarbilunar, til hafnar innan 14 klukkustunda frá upphafi veiðiferðar getur Fiskistofa þó, að fengnum skýringum útgerðar, fallist á að skilyrði þessa töluliðar séu uppfyllt.
3.Fiskiskip skal hafa um borð sjálfvirkan fjareftirlitsbúnað og er hin sjálfvirka skráning lögð til grundvallar við útreikning sóknar. Óheimilt er að fara í veiðiferð nema fjareftirlitsbúnaður um borð sé virkur. Verði búnaður óvirkur í veiðiferð, skal strax tilkynna það til Landhelgisgæslu og halda tafarlaust til hafnar til löndunar.
4.Aldrei er heimilt að hafa fleiri en fjórar handfærarúllur um borð. Engin önnur veiðarfæri en handfærarúllur skulu vera um borð.
5.Á hverju fiskiskipi er aðeins heimilt að draga 800 kg af kvótabundnum tegundum, miðað við óslægðan afla, í hverri veiðiferð.
6.Skylt er að landa öllum afla í lok hverrar veiðiferðar og skal hann veginn og skráður endanlega hér á landi.
Um vigtun, skráningu og meðferð afla fer að ákvæðum laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og gildandi reglum.

5. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt VI. kafla laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 66/2009, um breytingu á lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 25. júní 2009.

Jón Bjarnason.

Sigurgeir Þorgeirsson.

B deild - Útgáfud.: 25. júní 2009