Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
86/2012
|
FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, og laga um Stjórnarráð Íslands, skiptist Stjórnarráð Íslands í ráðuneyti sem hér segir: forsætisráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti, utanríkisráðuneyti, velferðarráðuneyti.
Úrskurður þessi öðlast gildi 4. september 2012. Frá sama tíma falla úr gildi eldri ákvæði um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti. Gjört á Bessastöðum, 4. júlí 2012. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Jóhanna Sigurðardóttir.
|
A-deild - Útgáfud.:
5. júlí 2012
|