Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1187/2013

Nr. 1187/2013 27. desember 2013
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1037/2013 um greiðslumark mjólkur á lögbýlum og greiðslur til bænda verðlagsárið 2014.

1. gr.

1. ml. 1. gr. skal orðast svo: Heildargreiðslumark til framleiðslu mjólkur verðlagsárið 2014 skal vera 125 milljónir lítra og skiptist í greiðslumark lögbýla.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verð­lagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. desember 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Rebekka Hilmarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2013