Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 386/2011

Nr. 386/2011 7. apríl 2011
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 297/2011 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 297/2011 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu.

2. gr.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Allur kostnaður við opinbert eftirlit, þ.m.t. sýnataka, greining sýna, geymsla, förgun og allar aðrar ráðstafanir sem gripið er til skal greiddur af innflutnings- og dreifingaraðilum eftir því sem við á.

4. gr.

Innflutnings- eða dreifingaraðilar sem flytja inn eða dreifa vörum sem reglugerð þessi tekur til, skulu senda Matvælastofnun tilkynningu og gögn um fyrirhugaðan innflutning ásamt upplýsingum um áætlaðan komutíma.

5. gr.

Matvælastofnun hefur eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt samkvæmt 6. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli og 3. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

6. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 27. gr. b og 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 7. apríl 2011.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 13. apríl 2011