Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1021/2008

Nr. 1021/2008 15. október 2008
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um flugvernd nr. 361/2005.

1. gr.

Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar um breytingu á reglugerð (EB) nr. 622/2003 um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnreglum um flugvernd, með þeim breytingum sem lúta að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 12/2008.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 437/2007 frá 20. apríl 2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 622/2003 um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnreglum um flugvernd, merkt fylgiskjal XVII, samkvæmt ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins nr. 121/2006 frá 28. september 2007.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 915/2007 frá 31. júlí 2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 622/2003 um ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnreglum um flugvernd, merkt fylgiskjal XVIII, samkvæmt ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins nr. 12/2008 frá 1. febrúar 2008.

Reglugerðirnar eru birtar sem fylgiskjöl með reglugerð þessari.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 70. gr., sbr. 145. gr. laga um loft­ferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 15. október 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 5. nóvember 2008