FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: I. KAFLI Breyting á lögum um skattlagningu á kolvetnisvinnslu, nr. 109/2011. 1. gr.
Í stað orðsins „Fjármálaráðherra“ í 3. mgr. 21. gr. laganna kemur: Ráðherra.
II. KAFLI Breyting á lögum um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, nr. 142/2011. 2. gr.
a. Í stað orðanna „mennta- og menningarmálaráðherra“ í 2. mgr. 1. gr. laganna kemur: ráðherra. b. Í stað orðanna „mennta- og menningarmálaráðuneytis“ í 2. mgr. 7. gr. laganna kemur: ráðuneytisins.
III. KAFLI Breyting á lögum um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, með síðari breytingum. 3. gr.
a. Í stað orðsins „iðnaðarráðherra“ í 2. tölul. 2. mgr. 13. gr. n laganna kemur: þess ráðherra er fer með málefni jarðrænna auðlinda. b. Í stað orðanna „Efnahags- og viðskiptaráðherra“ í 13. gr. q laganna kemur: Ráðherra.
IV. KAFLI Breyting á lögum um Þjóðminjasafn Íslands, nr. 140/2011. 4. gr.
Í stað orðanna „mennta- og menningarmálaráðherra“ í 1. mgr. 1. gr. laganna kemur: ráðherra.
V. KAFLI Breyting á lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, nr. 130/2011. 5. gr.
Í stað orðsins „Umhverfisráðherra“ í 1. mgr. 2. gr. laganna kemur: Ráðherra.
VI. KAFLI Breyting á vatnalögum, nr. 15/1923, með síðari breytingum. 6. gr.
a. Í stað orðsins „Forsætisráðherra“ í 5. mgr. 16. gr. laganna kemur: Sá ráðherra er fer með samningagerð um endurgjald fyrir nýtingu auðlinda í eigu og á forræði íslenska ríkisins. b. Í stað orðsins „iðnaðarráðherra“ í 3. mgr. 102. gr., 1. og 3. mgr. 143. gr., 6. mgr. 144. gr. og 155. gr. laganna kemur: ráðherra. c. Í stað orðsins „Umhverfisráðherra“ í 1. mgr. 115. gr. laganna kemur: Sá ráðherra er fer með málefni náttúruverndar. d. Í stað orðanna „iðnaðarráðherra, umhverfisráðherra“ í 2. mgr. 143. gr. laganna kemur: ráðherra og þeim ráðherra er fer með málefni náttúruverndar. e. Í stað orðsins „umhverfisráðherra“ í 6. mgr. 144. gr. laganna kemur: þann ráðherra er fer með skipulagsmál.
VII. KAFLI Breyting á lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, nr. 128/2011. 7. gr.
Í stað orðanna „efnahags- og viðskiptaráðherra“ í 64. gr. laganna kemur: ráðherra.
VIII. KAFLI Breyting á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011. 8. gr.
a. Í stað orðsins „fjármálaráðherra“ í 2. mgr. 128. gr. laganna kemur: sá ráðherra er fer með fjárreiður ríkisins. b. Í stað orðsins „fjármálaráðuneytis“ í 3. mgr. 128. gr. laganna kemur: þess ráðuneytis er fer með fjárreiður ríkisins.
IX. KAFLI Breyting á lögum um skipan opinberra framkvæmda, nr. 84/2001, með síðari breytingum. 9. gr.
Í stað orðanna „ráðuneytisstjóri ráðuneytisins“ í 1. mgr. 18. gr. laganna kemur: ráðuneytisstjórinn.
X. KAFLI Gildistaka. 10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 12. mars 2012. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Jóhanna Sigurðardóttir. |