Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 578/2010

Nr. 578/2010 10. júní 2010
AUGLÝSING
um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Akureyrarkaupstað.

1. gr.

Aukastöðugjald vegna brota á reglum um notkun stöðureita, sbr. 2. mgr. 83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. f-lið 1. mgr. 108. gr. sömu laga, skal vera 2.000 kr. Veittur er 33% afsláttur ef greitt er án fyrirvara og andmæla í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

2. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðvunarbrota sbr. a-e-lið 1. mgr. 108. gr. umferðarlaga

nr. 50/1987, að undanskildum j-lið 1. mgr. 28. gr. sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr., skal vera 3.000

kr. Veittur er 33% afsláttur ef greitt er án fyrirvara og andmæla í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

3. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna j-liðar 1. mgr. 28. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, (bílastæði fatlaðra) skal vera 5.000 kr. Veittur er 33% afsláttur ef greitt er án fyrirvara og andmæla í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

4. gr.

Frestur til að andmæla stöðvunarbrotagjöldum er 28 dagar frá dagsetningu álagningar.

5. gr.

Séu gjöldin greidd innan 14 daga frá álagningu gilda ofangreindar fjárhæðir, en hækka eftir það um 50%, sbr. 5. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Sé gjald enn ógreitt þegar 28 dagar eru liðnir frá álagningu, hækkar það um 100% frá upphaflegu gjaldi, án tillits til staðgreiðsluafsláttar og undangenginnar 50% hækkunar eftir 14 daga.

6. gr.

Gjaldskrá þessi, sem bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur samþykkt á fundi sínum 13. apríl 2010 staðfestist hér með samkvæmt 5. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, og reglum nr. 104/1988 með síðari breytingum. Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi auglýsing um fjárhæð gjalda vegna stöðvunarbrota í Akureyrarkaupstað nr. 914/2005.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 10. júní 2010.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 9. júlí 2010