Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 730/2007

Nr. 730/2007 2. ágúst 2007
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um útlendinga nr. 53/2003 með síðari breytingum.

1. gr.

4. mgr. 38. gr., sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 769/2004 orðast svo:

Þegar Útlendingastofnun hefur gefið út dvalarleyfi skal það sent umsækjanda.

2. gr.

39. gr., sbr. 8. gr. reglugerðar nr. 769/2004 breytist þannig:

  1. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. bætist nýr málsl. er verður 2. málsl. og orðast svo:
    Útlendingastofnun og sýslumenn utan Reykjavíkur taka við umsóknum um dvalarleyfi.
  2. Á eftir 2. málsl. 2. mgr. bætist nýr málsl. er verður 4. málsl. og orðast svo:
    Ef um er að ræða útlending sem fellur undir ákvæði 2. eða 3. mgr. 38. gr. skal hjá Útlendingastofnun eða embætti sýslumanns utan Reykjavíkur tekin stafræn ljósmynd af umsækjanda er fylgja skal umsókn.
  3. Við 5. mgr. bætist nýr málsl. er orðast svo:
    Skal þá jafnframt tekin af honum stafræn ljósmynd.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 58. gr. laga um útlendinga nr. 96 15. maí 2002 með síðari breytingum öðlast gildi 15. ágúst 2007.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 2. ágúst 2007.

Björn Bjarnason.

Haukur Guðmundsson.

B deild - Útgáfud.: 13. ágúst 2007