Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 935/2012

Nr. 935/2012 23. október 2012
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1205/2011 (að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 7).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 100/2012, frá 30. apríl 2012, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1205/2011 frá 22. nóvember 2011 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna, alþjóð­legra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 7.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1205/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB, nr. 59/2012, 18. október 2012, bls. 508.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 100/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB, nr. 50/2012, 13. september 2012, bls. 44.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um árs­reikn­inga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikn­inga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reiknings­skila­staðla, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. október 2012.

Steingrímur J. Sigfússon.

Kristján Skarphéðinsson.

B deild - Útgáfud.: 5. nóvember 2012