1. gr. 5. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað „ein skoðun á ári greidd að fullu“ í 2. málsl. 2. tölul. greinarinnar kemur: greitt 100% kostnaðar vegna einnar skoðunar á ári. 2. gr. 7. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: a. Á eftir orðinu „endajaxla“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: enda hafi Sjúkratryggingar Íslands ekki á síðustu þremur árum tekið þátt í kostnaði við ísetningu tannplanta í sama góm samkvæmt heimild í 2. mgr. b. Á eftir 3. mgr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Sjúkratryggingar Íslands taka ekki samtímis þátt í kostnaði við ísetningu tannplanta samkvæmt heimildum í 2. og 3. mgr. 3. gr. 13. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað „70%“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 75%. 4. gr. 14. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað „ICD skráningarnúmer, stutt sjúkrasaga, aðgerðaráætlun og áætlaður meðferðartími.“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: stutt sjúkrasaga, aðgerðaráætlun og kostnaður við hana, upplýsingar um hvenær meðferð hefst og áætlaður meðferðartími. 5. gr. 16. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað „sem jafna má til þeirra tilvika sem tilgreind eru í 15. gr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: þar sem fjórar eða fleiri fullorðinstennur, framan við endajaxla, tapast eða sjúkratryggður verður fyrir öðrum sambærilegum alvarlegum skaða. 6. gr. 17. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað „reikningi tannlæknis.“ í 2. málsl. kemur: gjaldskrá tannlæknis sem send hefur verið Sjúkratryggingum Íslands áður en verk er unnið. 7. gr. 21. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað „2011“ í síðari málsl. greinarinnar kemur: 2012. 8. gr. 22. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Á eftir orðinu „kennitala“ í 1. málsl. kemur: viðkomandi. 9. gr. 27. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað orðanna „15. september 2010 til og með 31. desember 2011“ í 2. mgr. kemur: 1. janúar 2012 til og með 31. desember 2012. 10. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 20. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 16. desember 2011. Guðbjartur Hannesson. Hrönn Ottósdóttir. |