1. gr. Fyrir fiskveiðiárið 1. september 2014 til 31. ágúst 2015 er leyfilegur heildarafli sem hér segir: Tegund | Lestir | Blálanga | 3.100 | Djúpkarfi | 10.000 | Grálúða | 14.100 | Gullkarfi | 45.600 | Gulllax | 8.000 | Humar | 1.650 | Íslensk sumargotssíld | 82.200 | Keila | 3.700 | Langa | 13.800 | Langlúra | 1.100 | Litli karfi | 1.500 | Sandkoli | 1.000 | Skarkoli | 7.000 | Skrápflúra | 0 | Skötuselur | 1.000 | Steinbítur | 7.500 | Ufsi | 58.000 | Úthafsrækja | 5.000 | Rækja við Snæfellsnes | 600 | Ýsa | 30.400 | Þorskur | 216.000 | Þykkvalúra/Sólkoli | 1.600 |
2. gr. Reglugerð þessi er sett skv. 3. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. júní 2014. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Jóhann Guðmundsson. |