Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1297/2014

Nr. 1297/2014 31. desember 2014
GJALDSKRÁ
fyrir fráveitugjald í Dalvíkurbyggð.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Dalvíkurbyggð skv. gjaldskrá þessari og reglugerð nr. 402/2001 um fráveitu í Dalvíkurbyggð.

2. gr.

Fráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitar­félags­ins og skal það vera eftirfarandi:

a)

Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 12.222,60 kr. pr. íbúð og 275,01 kr. pr. fermetra húss.

b)

Fráveitugjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 30.556,49 kr. pr. eign og 275,01 kr. pr. fermetra húss.

c)

Álagning skv. a. og b. málsliðum skal þó aldrei vera hærri en 0,47% eða lægri en 0,25% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum.

3. gr.

Sveitarfélagið annast tæmingu rotþróa í eigu fasteignaeigenda í Dalvíkurbyggð og inn­heimtir sérstakt rotþróargjald til að standa straum af kostnaði við hreinsun, urðun seyru og umsjón með verkinu.

Árlegt rotþróargjald sem lagt er á hverja íbúð, þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár, er 11.205,05 kr. pr. losun. Að auki er greitt fast gjald 12.222,60 kr. pr. íbúð, til að standa straum af kostnaði vegna niðursetningar á rotþrónni. Af öðru húsnæði sem fjallað er um í 2. gr., tl. b, greiðast sambærileg rotþróargjöld þ.e. fast gjald og rotþróargjald.

Fyrir aukalosun, að beiðni eiganda, greiðist skv. gjaldskrá losunaraðila hverju sinni.

4. gr.

Gjalddagar fráveitu- og rotþróargjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds.

5. gr.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt var af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar þann 25. nóvember 2014, staðfestist hér með skv. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitu og skv. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi við álagningu gjalda á árinu 2015. Jafnframt fellur gjaldskrá um fráveitu í Dalvíkurbyggð nr. 1148/2013 úr gildi.

Dalvíkurbyggð, 31. desember 2014.

Bjarni Th. Bjarnason sveitarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 21. janúar 2015