Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
37/2010
|
FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Við 58. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Ráðherra skal í reglugerð, sem sett er að höfðu samráði við Hagstofu Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga, mæla fyrir um ársfjórðungsleg skil sveitarfélaga á upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum til afnota fyrir ráðuneytið, eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, aðra opinbera aðila og Samband íslenskra sveitarfélaga. Í reglugerð skal nánar mælt fyrir um framsetningu og form slíkra upplýsinga, sem og um rafræn skil þeirra eftir því sem við á.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 74. gr. laganna: a. Í stað tilvísunarinnar „skv. 4. mgr.“ í 2. mgr. kemur: skv. 5. mgr. b. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Eftirlitsnefnd skal hafa sama rétt til aðgangs að upplýsingum og þeir aðilar sem kveðið er á um í 70. gr. þessara laga.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 5. maí 2010. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Kristján L. Möller.
|
A-deild - Útgáfud.:
6. maí 2010
|