Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 730/2010

Nr. 730/2010 10. september 2010
SAMÞYKKT
um stjórn Breiðdalshrepps og fundarsköp hreppsnefndar.

I. KAFLI

Um skipan hreppsnefndar og verkefni hennar.

1. gr.

Skipan hreppsnefndar.

Hreppsnefnd Breiðdalshrepps er skipuð 5 hreppsnefndarmönnum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil.

Starfstímabil hreppsnefndar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Verkefni hreppsnefndar.

Hreppsnefnd fer með stjórn Breiðdalshrepps samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer hreppsnefnd með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum hreppsins, að svo miklu leyti sem hreppsnefnd hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

Verkefni hreppsnefndar.

Hreppsnefnd skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.

5. gr.

Verkefni hreppsnefndar.

Hreppsnefnd annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur hreppsnefnd ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess sérstaklega, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Verkefni hreppsnefndar.

Meðal verkefna hreppsnefndar er:

  1. Að kjósa oddvita og varaoddvita hreppsnefndar, nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga sveitarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu.
  2. Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  3. Að stjórna fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
  4. Að ákveða stjórnkerfi sveitarfélagsins og ráða sveitarstjóra og starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og V. kafla þessarar samþykktar.

II. KAFLI

Um fundarsköp hreppsnefndar.

7. gr.

Fundartími hreppsnefndar.

Hreppsnefnd heldur reglulega fundi eigi sjaldnar en á tveggja mánaða fresti. Aukafundi skal halda í hreppsnefnd eftir því sem þörf krefur að mati sveitarstjóra og oddvita hreppsnefndar og skylt er að halda aukafundi í hreppsnefnd ef a.m.k. þriðjungur hreppsnefndarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

8. gr.

Fyrsti fundur nýkjörinnar hreppsnefndar.

Sá kjörinn fulltrúi í hreppsnefndinni sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn kveður hreppsnefndina saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar og stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í hreppsnefnd átt jafnlengi setu í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari grein.

9. gr.

Boðun hreppsnefndarfunda.

Sveitarstjóri, sbr. þó 8. gr. samþykktar þessarar, boðar hreppsnefndarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi hreppsnefnd ekki gert það.

10. gr.

Auglýsing hreppsnefndarfunda.

Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu, hvar og hvenær hreppsnefndar­fundir eru haldnir. Miða skal við að sem flestir íbúar sveitarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.

Í upphafi kjörtímabils tekur hreppsnefnd ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi, auglýsingu í staðbundnu fréttablaði eða á heimasíðu sveitarfélagsins.

11. gr.

Dagskrá hreppsnefndarfunda.

Sveitarstjóri semur dagskrá hreppsnefndarfunda í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá hreppsnefndarfunda skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar, s.s. kosningar oddvita og varaoddvita, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins svo og ráðningar sveitarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.
  2. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins ef eða að svo miklu leyti sem hreppsnefnd þarf að samþykkja ályktanir sem í þeim felast, sbr. 49. gr. samþykktar þessarar.
  3. Önnur mál sem falla undir verksvið hreppsnefndar og sveitarstjóri og/eða oddviti ákveður að taka á dagskrá eða einhver hreppsnefndarmanna óskar að tekin verði á dagskrá. Hreppsnefndarmaður sem óskar að fá mál tekið á dagskrá hreppsnefndarfundar skal tilkynna það sveitarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

Dagskrá hreppsnefndarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem sveitarstjóri telur nauðsynleg til að hreppsnefndarmenn geti undirbúið sig fyrir fundinn. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta hreppsnefndarfundar.

12. gr.

Boðun funda.

Sveitarstjóri skal hafa sent hreppsnefndarmönnum fundarboð hreppsnefndarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir hreppsnefndarfund.

13. gr.

Aðgangur að dagskrá funda.

Dagskrá hreppsnefndarfundar skal vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins þegar hún hefur verið samin, svo sem á auglýsingatöflu sveitarfélagsins, skrifstofu sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma, heimasíðu sveitarfélagsins eða með öðrum hætti sem hreppsnefnd ákveður.

14. gr.

Boðun aukafunda.

Sveitarstjóri skal senda hreppsnefndarmönnum fundarboð aukafundar í hreppsnefnd þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund. Heimilt er þó að boða aukafund með styttri fyrirvara ef aðkallandi mál bíður afgreiðslu.

15. gr.

Kosning oddvita og varaoddvita hreppsnefndar.

Sá hreppsnefndarmaður er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjör­innar hreppsnefndar og stýrir honum uns oddviti hefur verið kjörinn.

Oddviti hreppsnefndar skal kjörinn til eins árs. Ef oddviti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í hreppsnefndinni, skal hann víkja sæti og oddvitakjör fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn oddviti sem fengið hefur atkvæði meirihluta hreppsnefndarmanna. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri hreppsnefndarmenn fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn oddviti hreppsnefndar sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða kosningu.

Oddviti hreppsnefndar stjórnar kjöri varaoddvita hreppsnefndar og skal sömu aðferð beitt við kosningu hans, sbr. næstu málsgrein hér að framan. Varaoddviti skal kjörinn til jafnlangs tíma og oddviti.

Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til ráðuneytis sveitarstjórna þegar að því loknu.

Sé hvorki oddviti né varaoddviti á fundi gegnir aldursforseti oddvitastörfum nema hreppsnefnd ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef oddviti deyr eða verður varanlega forfallaður frá oddvitastörfum skal kjósa oddvita í hans stað til loka kjörtímabils oddvita.

16. gr.

Kjör skrifara.

Hreppsnefnd getur kosið skrifara og varaskrifara úr hópi hreppsnefndarmanna til eins árs í senn á sama fundi og oddvitakosning fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í hreppsnefnd.

17. gr.

Fundarstaður.

Hreppsnefndarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir. Hreppsnefndarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks.

Hreppsnefnd getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum, s.s. viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur hreppsnefnd ákveðið að hrepps­nefndar­fundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í hreppsnefnd. Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í hrepps­nefnd.

18. gr.

Lögmæti hreppsnefndarfunda.

Hreppsnefndarfundur er lögmætur ef meira en helmingur hreppsnefndarmanna er mættur á fundinn. Hreppsnefnd getur enga bindandi ályktun gert nema fundur sé lög­mætur.

19. gr.

Fundarstjórn.

Oddviti hreppsnefndar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók hrepps­nefndarinnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar.

Oddviti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar hreppsnefndar. Oddviti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á hrepps­nefndar­fundum og er hreppsnefndarmönnum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu.

Raski áheyrandi fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal. Leyfi oddvita þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á hreppsnefndarfundum. Skjóta má ákvörðun oddvita til úrlausnar hreppsnefndar.

20. gr.

Afgreiðsla dagskrármála á fundi.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í hreppsnefnd í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema oddviti eða hreppsnefnd ákveði annað. Heimilt er að taka til meðferðar á hreppsnefndarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra hrepps­nefndar­manna samþykkja slíkt afbrigði.

21. gr.

Afgreiðsla mála, tvær umræður.

Hreppsnefnd afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  2. Ársreikninga sveitarfélagsins stofnana þess og fyrirtækja.
  3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, s.s. þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
  5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

22. gr.

Fundarsókn, varamenn.

Hreppsnefndarmanni er skylt að sækja alla hreppsnefndarfundi nema lögmæt forföll hamli svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. Sé hreppsnefndarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til sveitarstjóra sem boðar þá varamann hans á fund.

Varamenn taka sæti í hreppsnefnd í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Þegar hreppsnefnd hefur verið kjörin í bundinni hlutfallskosningu taka varamenn sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna forfallast.

Sveitarstjóri skal sitja fundi hreppsnefndar með málfrelsi og tillögurétt en ekki hefur hann atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn hreppsnefndarmaður. Hreppsnefnd getur heimilað einstaklingi utan hreppsnefndar að taka til máls á hreppsnefndarfundi.

23. gr.

Fundarsköp, málfrelsi.

Hreppsnefndarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á hreppsnefndarfundum. Hreppsnefndarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu hreppsnefndarmenn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða sveitarstjóra, framsögumann í máli eða hrepps­nefndar­mann sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri hreppsnefndarmenn kvatt sér hljóðs samtímis ákveður oddviti í hvaða röð þeir skuli tala.

24. gr.

Fundarsköp, takmarkanir á málfrelsi.

Hreppsnefndarmaður skal beina máli sínu til oddvita eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð nefndar, ráðs eða stjórnar skal hreppsnefndarmaður taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.

Hreppsnefndarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó hrepps­nefndarmanni að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athuga­semd við fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögu­maður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

Ef hreppsnefndarmaður vill beina fyrirspurn til sveitarstjóra skal hann að jafnaði hafa hana skriflega og afhenda með sama fyrirvara og um tillögu sé að ræða, sbr. 11. gr. samþykktar þessarar.

Ekki má hreppsnefndarmaður lesa upp prentað mál við umræður í hreppsnefnd nema með leyfi oddvita.

25. gr.

Fundarsköp, vítur á hreppsnefndarmann.

Beri hreppsnefndarmaður aðra menn brigslum skal oddviti víta hann. Oddviti getur lagt til við hreppsnefnd að hreppsnefndarmaður sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist hreppsnefndarmaður ekki úrskurði oddvita eða hreppsnefndar eða ef óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.

26. gr.

Fundarsköp, takmarkanir á ræðutíma.

Telji oddviti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers hreppsnefndarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver hreppsnefndarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Hreppsnefnd afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en eina klukkustund ef einhver hreppsnefndarmaður kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

27. gr.

Fundarsköp, meðferð tillagna.

Hreppsnefndarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef oddviti óskar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.

28. gr.

Fundarsköp, afgreiðsla mála.

Mál er afgreitt í hreppsnefnd með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá hreppsnefnd eða vísa því til afgreiðslu nefndar, ráðs eða stjórnar eða sveitarstjóra. Máli sem hreppsnefnd ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Hreppsnefnd er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

29. gr.

Fundarsköp, atkvæðagreiðsla.

Atkvæðagreiðsla á hreppsnefndarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Oddviti biður þá hreppsnefndarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæða­greiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur hreppsnefndarmanna óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá hreppsnefndarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða hreppsnefndarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar hreppsnefndarmaður þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæða­greiðslu. Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef hrepps­nefndar­maður óskar og hreppsnefnd samþykkir. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.

30. gr.

Fundarsköp, úrslit atkvæðagreiðslu.

Á hreppsnefndarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.

Kosningar, sem fram fara í hreppsnefnd, skulu vera hlutfallskosningar skv. d´Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör.

31. gr.

Fundarritun - fundargerð.

Hreppsnefnd getur ráðið sérstakan fundarritara utan hreppsnefndar til að annast ritun fundargerða í gerðabók hreppsnefndar. Oddviti skal hafa eftirlit með því að fundargerðir séu skipulega og rétt færðar.

Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvaða afgreiðslu þau fá. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð hreppsnefndar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi sbr. 17. gr. samþykktar þessarar skal skrá sem trúnaðarmál.

Hreppsnefndarmaður á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til máls sem til meðferðar er í hreppsnefnd.

Fundargerðir hreppsnefndar eru jafnframt skráðar í tölvu. Í gerðabók hreppsnefndarinnar skal bóka númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir hreppsnefndarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.

Hreppsnefnd getur ákveðið að umræður á hreppsnefndarfundum skuli hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal hreppsnefnd setja um það nánari reglur.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur hreppsnefndarmanna.

32. gr.

Fundarseta.

Hreppsnefndarmönnum er bæði rétt og skylt að sækja fundi hreppsnefndar nema lögmæt forföll hamli. Aðal- og varamönnum í hreppsnefnd er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins. Hver hreppsnefndarmaður er skyldur til að taka að sér þau störf sem hreppsnefnd felur honum og varða verkefni hreppsnefndar, s.s. oddvitastörf og störf í nefndum á vegum hreppsnefndar. Þó getur sá sem verið hefur oddviti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

33. gr.

Lausn úr hreppsnefnd.

Nú telur hreppsnefndarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í hreppsnefnd án óhæfilegs álags og getur hreppsnefnd þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

Missi fulltrúi í hreppsnefnd kjörgengi skal hann víkja úr hreppsnefndinni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

Nú er hreppsnefndarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal hreppsnefnd þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

34. gr.

Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur.

Hreppsnefndarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum hreppsnefndar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari. Hreppsnefndarmanni er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem hreppsnefnd er að lögum skylt að afgreiða, s.s. fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur oddviti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur hreppsnefndarmanna tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

35. gr.

Hagsmunir sveitarfélagsins.

Hreppsnefndarmanni ber að gegna störfum sínum í hreppsnefnd af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins, en í störfum sínum er hreppsnefndarmaður einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

36. gr.

Aðgangur að upplýsingum.

Hreppsnefndarmaður á aðgang að bókum, skjölum og öðrum gögnum sveitarfélagsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum afgreiðslu­tíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.

37. gr.

Þagnarskylda.

Hreppsnefndarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum, eðli máls eða sérstakri ákvörðun hreppsnefndar. Þagnarskyldan helst áfram eftir að hrepps­nefndar­maður lætur af þeim störfum.

38. gr.

Hæfi hreppsnefndarmanna.

Hreppsnefndarmanni ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Hreppsnefndarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum hreppsnefndar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Hreppsnefndarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir hreppsnefndina eru alltaf vanhæfir þegar hreppsnefndin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um sveitarstjóra né þegar hreppsnefndin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins.

Hreppsnefndarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli á því. Hreppsnefndarmanni er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Hreppsnefnd sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver hreppsnefndarmanna sé vanhæfur. Hreppsnefndarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Hreppsnefndarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal hrepps­nefndar við umræður og afgreiðslu þess.

39. gr.

Þóknun.

Hreppsnefndarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í hreppsnefnd. Takist hreppsnefndarmaður á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun hreppsnefndar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Hreppsnefnd setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

40. gr.

Orlof og fundartími.

Haga skal fundum hreppsnefndar þannig að hreppsnefndarmenn eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.

41. gr.

Varamenn.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur hreppsnefndarmanna gilda einnig um vara­menn sem sitja hreppsnefndarfundi.

IV. KAFLI

Nefndir, ráð og stjórnir.

42. gr.

Kosning í nefndir, ráð og stjórnir.

Hreppsnefnd kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfalls­kosningar ef einhver hreppsnefndarmaður óskar þess.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá. Hreppsnefnd getur ákveðið að víkja frá þessu ákvæði ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starf viðkomandi einstaklings er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum þrátt fyrir nefndarsetu.

43. gr.

Kjör formanna og varaformanna nefnda og ráða.

Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema lög eða hreppsnefnd ákveði annað. Oddviti hreppsnefndar eða sveitarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af hreppsnefnd. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.

44. gr.

Fundarseta.

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema hreppsnefnd ákveði að kjósa aðalmann að nýju. Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar, skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

45. gr.

Lokaðir fundir.

Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Ennfremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

46. gr.

Fundarstjórn.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

47. gr.

Hlutverk og valdsvið ráða, stjórna og nefnda.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum hreppsnefndar. Hreppsnefnd getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið hreppsnefnd til ákvörðunar.

48. gr.

Fundargerðabækur.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefndin getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Í fundargerð skal skrá hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji hann. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða hreppsnefndarinnar, sbr. 31. gr.

49. gr.

Afgreiðsla fundargerða nefnda, ráða og stjórna.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna sveitarfélagsins skulu teknar á dagskrá hreppsnefndar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar hreppsnefndarinnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar hreppsnefndar ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir hreppsnefndina.

50. gr.

Nefndir, ráð og stjórnir.

Hreppsnefnd kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:

(i) Nefndir. Hér er um að ræða fagnefndir sem sinna faglegu starfi þeirra málaflokka sem þeim hafa verið falin af hreppsnefnd með erindisbréfum. Hreppsnefnd kýs eða tilnefnir í nefndirnar á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar hreppsnefndar og er kjörtímabil þeirra þá hið sama og hreppsnefndar. Hreppsnefnd kýs nefndunum formann og varaformann, nema í þeim nefndum sem eru sameiginlegar með öðrum sveitar­félögum.

  1. Fræðslunefnd. Hreppsnefnd kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í fræðslunefnd. Fræðslunefnd fer með málefni leikskóla skv. leikskólalögum, grunnskóla skv. grunnskólalögum, tónlistarskóla skv. lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Þá fer nefndin með íþrótta- og æskulýðsmál í sveitarfélaginu. Auk verkefna sem fræðslunefnd hefur með höndum skv. lögum getur hreppsnefnd falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
  2. Félagsmálanefnd. Hreppsnefnd kýs í sameiginlega félagsmálanefnd með nágrannasveitarfélögum, samkvæmt nánara samkomulagi sveitarfélaganna þar um. Heimilt er þá að undanskilja verkefni húsnæðisnefndar verkefnum sameiginlegrar félagsmálanefndar.
  3. Skipulagsnefnd. Hreppsnefnd kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í skipulagsnefnd. Skipulagsnefnd fer með verkefni byggingar- og skipulagsnefndar skv. skipulags- og byggingarlögum. Nefndin skal í störfum sínum huga að ferlimálum fatlaðra skv. lögum þar um. Nefndin fer með umhverfismál og sinnir lögbundnum verkefnum náttúruverndarnefndar skv. náttúruverndarlögum. Auk verkefna sem skipulagsnefnd hefur með höndum skv. lögum getur hreppsnefnd falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
  4. Landbúnaðarnefnd. Hreppsnefnd kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í landbúnaðarnefnd. Landbúnaðarnefnd er hreppsnefnd til ráðuneytis um búfjárhald og landbúnaðarmál almennt, sem og önnur þau mál sem sveitarstjórn kann að vísa til hennar. Hreppsnefnd getur ákveðið að tilnefna í sameiginlega landbúnaðarnefnd með nágrannasveitarfélögum samkvæmt nánara samkomulagi sveitarfélaganna þar um.
  5. Hafnarstjórn. Hreppsnefnd kýs þrjá fulltrúa og þrjá til vara í hafnarstjórn. Auk verkefna sem hafnarstjórn hefur með höndum skv. lögum getur hreppsnefnd falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum. Hreppsnefnd getur ákveðið við nefndarkjör að hreppsnefnd fari með verkefni hafnarstjórnar og gildir sú skipan þá þar til annað er ákveðið.
  6. Atvinnu-, ferða- og menningarmálanefnd. Hreppsnefnd kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í atvinnu-, ferða- og menningarmálanefnd. Nefndin skal vera sveitarstjórn til ráðgjafar um málefni atvinnu-, ferða- og menningarmála, ásamt þeim verkefnum sem sveitarstjórn kann að vísa til hennar.

(ii) Kjörstjórn.

  1. Kjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.

(iii) Samstarfsnefndir og stjórnir. Hér er um að ræða samstarfsnefndir og stjórnir stofnana með sjálfstæðan fjárhag sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum, þ.e.a.s. þurfa ekki staðfestingu hreppsnefndar til að koma málum í framkvæmd innan ákveðins fjárhagslegs ramma. Hreppsnefnd kýs eða tilnefnir fulltrúana á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar hreppsnefndar og er kjörtímabil þeirra þá hið sama og hrepps­nefndar.

  1. Almannavarnanefnd. Hreppsnefnd tilnefnir fulltrúa í almannavarnanefnd skv. ákvæðum laga og reglugerða um skipan almannavarna.

(iv) Fulltrúar á ársfundi. Kosnir fulltrúar á ársþing og ársfundi stofnana sem sveitar­félagið á aðild að.

  1. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hreppsnefnd kýs aðal- og varafulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga skv. lögum sambandsins. Hreppsnefnd kýs fulltrúana á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar hreppsnefndar og er kjörtímabil þeirra þá hið sama og hreppsnefndar.
  2. Samband sveitarfélaga á Austurlandi. Hreppsnefnd kýs aðal- og varafulltrúa á aðalfund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi skv. samþykktum sambandsins. Fulltrúar sveitarfélagsins eru fyrst kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar hreppsnefndar og síðan í júní ár hvert vegna næstkomandi aðalfundar.
  3. Héraðsskjalasafn Austfirðinga. Hreppsnefnd kýs aðal- og varafulltrúa í fulltrúaráð Héraðsskjalasafns Austfirðinga skv. stofnsamningi Héraðsskjalasafnsins. Hrepps­nefnd kýs fulltrúana á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar hreppsnefndar og er kjörtímabil þeirra þá hið sama og hreppsnefndar.

(v) Lögbundin kosning embættismanna. Samkvæmt lögum ber sveitarstjórn að kjósa eftirtalda embættismenn.

  1. Skoðunarmenn. Hreppsnefnd kýs tvo skoðunarmenn ársreikninga sveitarfélagsins og jafnmarga til vara skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga. Skoðunarmenn eru kosnir á fyrsta fundi nýkjörinnar hreppsnefndar til loka kjörtímabils hreppsnefndar.

(vi) Verkefnabundnar nefndir. Hreppsnefnd getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils hreppsnefndar. Hreppsnefnd getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. Hreppsnefnd útbýr erindisbréf fyrir nefndirnar þar sem hlutverk og staða þeirra eru skilgreind.

V. KAFLI

Um framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélagsins.

51. gr.

Ráðning sveitarstjóra.

Hreppsnefnd ræður sveitarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við sveitarstjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans og kaup og kjör. Ráðningar­samningur skal staðfestur af hreppsnefnd.

52. gr.

Hlutverk sveitarstjóra.

Sveitarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins. Hann undirbýr fundi hreppsnefndar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum hreppsnefndar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í hreppsnefnd. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindum.

Sveitarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana hreppsnefndar og málefna sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem hreppsnefnd hefur ekki ákveðið annað. Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki hreppsnefndar þarf til. Sveitarstjóranum er heimilt með samþykki hrepps­nefndar að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru.

Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins. Hreppsnefnd ákveður hver gegnir störfum sveitarstjóra í forföllum hans.

53. gr.

Ráðning starfsmanna.

Hreppsnefnd ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu og veitir þeim lausn frá störfum. Um ráðningu annarra starfsmanna fer eftir reglum sem hreppsnefnd setur. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.

54. gr.

Starfskjör.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga.

VI. KAFLI

Um fjármálastjórn sveitarfélagsins.

55. gr.

Afgreiðslutími fjárhagsáætlunar.

Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal hreppsnefnd afgreiða fjárhagsáætlun næsta árs fyrir sveitarsjóð, fyrirtæki og stofnanir sveitarfélagsins að undangengnum tveimur umræðum í hreppsnefnd.

Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. fyrir lok frestsins skal hreppsnefnd sækja skriflega um frest til ráðuneytis sveitarstjórnarmála og tilgreina ástæðu fyrir umsókninni.

Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur hreppsnefnd ákvarðanir um nýtingu tekjustofna sveitarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár, ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

Hreppsnefndin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitar­félagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.

56. gr.

Fjárhagsáætlun.

Fjárhagsáætlun skv. 55. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr sveitarsjóði, nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af hreppsnefndinni.

Samþykki hreppsnefnd fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.

57. gr.

Endurskoðun fjárhagsáætlunar.

Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst verulega, er hreppsnefnd heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir hreppsnefnd við eina umræðu á hreppsnefndarfundi, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í hreppsnefnd með dagskrá viðkomandi hreppsnefndarfundar.

58. gr.

Þriggja ára áætlun.

Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal hreppsnefnd semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins. Skal hún unnin og afgreidd af hreppsnefnd innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

59. gr.

Skil áætlana.

Strax að lokinni afgreiðslu hreppsnefndar skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála fjárhagsáætlun skv. 55. gr. og þriggja ára áætlun skv. 58. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 57. gr.

60. gr.

Afgreiðsla ársreikninga.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í hreppsnefnd fyrir lok aprílmánaðar.

Hreppsnefnd skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðenda og skoðunarmanna.

Hreppsnefnd skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélagsins og fyrirtækja þess eigi síðar en 1. júní ár hvert. Hreppsnefndarmenn og sveitarstjóri skulu árita ársreikninginn.

Eintak af ársreikningunum skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðenda og skoðunarmanna

Samþykkt þessi, sem hreppsnefnd Breiðdalshrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Breiðdalshrepps nr. 526/1998.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 10. september 2010.

F. h. r.

Stefanía Traustadóttir.

Hjördís Stefánsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. september 2010