Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 530/2015

Nr. 530/2015 28. maí 2015

REGLUGERÐ
um gildistöku framkvæmdartilskipunar Evrópusambandsins um tilhögun upplýsingaskipta sem varða skipti milli aðildarríkjanna á líffærum úr mönnum sem eru ætluð til ígræðslu.

1. gr.

 Innleiðing.

Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2012/25/ESB frá 9. október 2012 um tilhögun upplýsingaskipta sem varða skipti milli aðildarríkjanna á líffærum úr mönnum sem eru ætluð til ígræðslu, sem vísað er til í 15zna í XIII. kafla II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2014 frá 25. september 2014, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins um Evrópska efnahags­svæðið.

2. gr.

Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2012/25/ESB, sbr. 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 64/2014 frá 30. október 2014, bls. 274.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 37. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.

Velferðarráðuneytinu, 28. maí 2015.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Sveinn Magnússon.


B deild - Útgáfud.: 16. júní 2015