Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða mannvirki á Héðinsvelli við Hringbraut. Friðunin nær til ytra byrðis leikvallarskýlisins og garðveggja umhverfis leikvöllinn. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 5. apríl 2011. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |