FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: I. KAFLI Breyting á tollalögum, nr. 88/2005. 1. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 122. gr. laganna skal fyrirkomulag gjalddaga aðflutningsgjalda, hjá aðilum sem njóta greiðslufrests á aðflutningsgjöldum, vegna uppgjörstímabilsins janúar og febrúar á árinu 2011 vera sem hér segir: 1. Helmingi af aðflutningsgjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 122. gr., skal skila eigi síðar en á 15. degi næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. 2. Helmingi af aðflutningsgjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 122. gr., skal skila eigi síðar en á 15. degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
II. KAFLI Breyting á lögum nr. 97/1987, um vörugjald. 2. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. laganna skal fyrirkomulag gjalddaga vörugjalds, hjá aðilum sem skráðir eru skv. 2. mgr. 4. gr., vegna uppgjörstímabilsins janúar og febrúar á árinu 2011 vera sem hér segir: 1. Helmingi af vörugjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 9. gr., skal skila eigi síðar en á 28. degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. 2. Helmingi af vörugjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 9. gr., skal skila eigi síðar en á 28. degi þriðja mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
III. KAFLI Breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. 3. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði VII. kafla og 7. mgr. 20. gr. er á gjalddaga virðisaukaskatts vegna uppgjörstímabilsins janúar og febrúar á árinu 2011, sbr. 1. mgr. 24. gr., heimilt að færa til innskatts á virðisaukaskattsskýrslu allan virðisaukaskatt vegna viðkomandi uppgjörstímabils, þótt einungis hluta af gjaldföllnum virðisaukaskatti hafi á þeim tíma verið skilað, sbr. ákvæði til bráðabirgða VII í tollalögum, nr. 88/2005.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 14. mars 2011. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Steingrímur J. Sigfússon. |