Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 294/2010

Nr. 294/2010 22. mars 2010
SAMÞYKKT
um stjórn og fundarsköp Rangárþings eystra.

I. KAFLI

Um skipan sveitarstjórnar og verkefni hennar.

1. gr.

Skipan sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra er skipuð sjö sveitarstjórnarmönnum kjörnum sam­kvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitar­stjórnar­laga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil sveitarstjórnar.

Starfstímabil sveitarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Valdsvið sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn fer með stjórn Rangárþings eystra samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnar­laga og annarra laga.

Jafnframt fer sveitarstjórnin með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitar­félagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfir­stjórn.

4. gr.

Hlutverk sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.

5. gr.

Verkefni sveitarstjórnar samkvæmt lögum.

Sveitarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og sam­þykktum. Þá getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Helstu verkefni sveitarstjórnar.

Meðal verkefna sveitarstjórnar Rangárþings eystra er:

  1. Að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar, byggðarráð, nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga sveitarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endur­skoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu.
  2. Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  3. Að stjórna fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
  4. Að ákveða stjórnkerfi sveitarfélagsins og ráða sveitarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.

II. KAFLI

Um fundarsköp sveitarstjórnarinnar.

7. gr.

Fundir sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn heldur reglulega fundi einu sinni í mánuði, annan fimmtudag hvers mán­aðar.

Sveitarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 14.00. Heimilt er að fella niður fundi í sveitarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

Aukafundi skal halda í sveitarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati oddvita og sveitar­stjóra og skylt er að halda aukafund í sveitarstjórn ef a.m.k. þriðjungur sveitar­stjórnar­manna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

8. gr.

Fyrsti fundur.

Sá kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.

Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í sveitarstjórn átt jafnlengi setu í sveitarstjórn fer aldurs­forseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.

9. gr.

Boðun sveitarstjórnarfunda.

Sveitarstjóri, sbr. þó 8. gr., boðar sveitarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi sveitarstjórnin ekki gert það.

10. gr.

Auglýsing funda.

Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins hvar og hvenær sveitarstjórnarfundir eru haldnir.

Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar tekur sveitarstjórnin ákvörðun um hvort fundir hennar verði auglýstir með öðrum hætti og jafnframt með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi, auglýsingu í staðbundnu fréttablaði eða auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins.

11. gr.

Dagskrá funda.

Sveitarstjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfundar í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu oddvita og varaoddvita, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, svo og ráðningar sveitarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.
  2. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
  3. Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og sveitarstjóri og/eða oddviti ákveður að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarmaður óskar að tekin verði á dagskrá. Sveitarstjórnarmaður sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna það sveitarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem sveitarstjóri telur nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti undirbúið sig fyrir fundinn.

12. gr.

Fundarboðun.

Sveitarstjóri skal hafa sent sveitarstjórnarmönnum fundarboð sveitarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fundargögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir sveitarstjórnarfund.

13. gr.

Auglýsing dagskrár.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar skal verða aðgengileg íbúum sveitarfélagsins þegar hún hefur verið samin, svo sem á heimasíðu, auglýsingatöflu og skrifstofu sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem sveitarstjórnin ákveður.

14. gr.

Aukafundir.

Sveitarstjóri skal senda sveitarstjórnarmönnum fundarboð aukafundar í sveitarstjórn þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund.

15. gr.

Oddvitakjör.

Sá sveitarstjórnarmaður er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjör­innar sveitarstjórnar og stýrir honum uns oddviti hefur verið kjörinn.

Oddviti sveitarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef oddviti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórninni, skal hann víkja sæti og oddvitakjör fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn oddviti sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórninni. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri sveitarstjórnarmenn fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn oddviti sem fleiri atkvæði fær þó að hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu.

Oddviti stjórnar kjöri varaoddvita sveitarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra sbr. 3. mgr. Varaoddviti skal kjörinn til jafnlangs tíma og oddviti.

Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þegar að því loknu.

Sé enginn oddvita á fundi gegnir aldursforseti störfum oddvita nema sveitarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef oddviti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa oddvita í hans stað til loka kjörtímabils oddvita.

16. gr.

Skrifarar.

Sveitarstjórn getur kosið tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi sveitarstjórnarmanna til eins árs í senn á sama fundi og kosning oddvita fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í sveitarstjórninni.

17. gr.

Opinn eða lokaður fundur.

Sveitarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.

Sveitarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur sveitarstjórnin ákveðið að sveitarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í sveitarstjórn.

Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í sveitar­stjórn.

18. gr.

Lögmæti fundar.

Sveitarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur sveitarstjórnarmanna er mættur á fundinn og getur sveitarstjórnin enga bindandi ályktun gert nema sveitar­stjórnar­fundur sé lögmætur.

19. gr.

Fundarstjórn.

Oddviti sveitarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók sveitar­stjórnarinnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar.

Oddviti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar. Oddviti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á sveitar­stjórnarfundum og er sveitarstjórnarmönnum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal. Leyfi oddvita þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á sveitar­stjórnar­fundum.

20. gr.

Afgreiðsla mála samkvæmt dagskrá.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í sveitarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá, nema oddviti eða sveitarstjórn ákveði annað.

Heimilt er að taka til meðferðar á sveitarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra sveitarstjórnarmanna samþykkja slíkt afbrigði.

21. gr.

Tvær umræður.

Sveitarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  2. Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
  5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga skv. 75. gr. sveitar­stjórnarlaga.

22. gr.

Skyldur sveitarstjórnarmanna.

Sveitarstjórnarmanni er skylt að sækja alla sveitarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

Sé sveitarstjórnarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til sveitarstjóra sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast.

Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast.

Sveitarstjóri sveitarfélagsins skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í sveitarstjórn. Sveitarstjórn getur heimilað einstaklingi utan sveitarstjórnar að taka til máls á sveitarstjórnarfundi.

23. gr.

Vanhæfi sveitarstjórnarmanna.

Sveitarstjórnarmanni ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Sveitarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Sveitarstjórnarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir sveitarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um sveitarstjóra né þegar sveitarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins. Sveitarstjórnarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli sveitarstjórnar á því.

Sveitarstjórnarmanni er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni.

Sveitarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver sveitar­stjórnar­manna sé vanhæfur. Sveitarstjórnarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Sveitarstjórnarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal sveitar­stjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

24. gr.

Málfrelsi, tillögu- og atkvæðisréttur.

Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á sveitarstjórnarfundum. Sveitarstjórnarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu sveitarstjórnarmenn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða sveitarstjóra, framsögumann í máli eða sveitar­stjórnar­mann sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri sveitarstjórnarmenn kvatt sér hljóðs samtímis ákveður oddviti í hvaða röð þeir skuli tala. Sveitarstjórnarmaður skal flytja mál sitt úr ræðustól nema oddviti leyfi annað.

25. gr.

Fundarsköp.

Sveitarstjórnarmaður skal beina máli sínu til oddvita eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð nefndar, ráðs eða stjórnar skal sveitarstjórnarmaður taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.

Sveitarstjórnarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó sveitar­stjórnar­manni að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

Ekki má sveitarstjórnarmaður lesa upp prentað mál við umræður nema með leyfi odd­vita.

26. gr.

Vítur.

Beri sveitarstjórnarmaður aðra menn brigslum skal oddviti víta hann. Oddviti getur lagt til við sveitarstjórn að sveitarstjórnarmaður sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist sveitarstjórnarmaður ekki úrskurði oddvita eða sveitarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.

27. gr.

Ræðutími.

Telji oddviti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver sveitarstjórnarmaður kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhags­áætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

28. gr.

Breytingartillögur.

Sveitarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef oddviti óskar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.

29. gr.

Afgreiðsla mála.

Mál er afgreitt í sveitarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá sveitarstjórn eða vísa því til afgreiðslu nefndar, ráðs eða stjórnar eða sveitarstjóra. Máli sem sveitarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

30. gr.

Framkvæmd atkvæðagreiðslu.

Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Oddviti biður þá sveitarstjórnarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.

Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarmanna óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá sveitarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar sveitarstjórnarmaður, þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarmaður óskar og sveitarstjórn samþykkir. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.

31. gr.

Atkvæðavægi í atkvæðagreiðslu og kosningum.

Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæða­greiðslu.

Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlut­kesti.

Kosningar sem fara fram í sveitarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d´Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör.

32. gr.

Fundargerð sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan sveitarstjórnar til að annast ritun fundargerða í tölvu og gerðabók sveitarstjórnar. Í gerðabók sveitarstjórnarinnar skal bóka númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir sveitarstjórnarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók.

Í tölvuskráðri fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða. Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál.

Oddviti skal hafa eftirlit með því að fundargerðir séu skipulega og rétt færðar. Í lok fundar skal tölvuskráð fundargerð prentuð út, hún lesin upp og undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð.

Sveitarstjórnarmaður sem gera vill athugasemd við eitthvert atriðið í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.

Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varð­veislu.

Sveitarstjórn getur ákveðið að umræður á sveitarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal sveitarstjórn setja um það nánari reglur.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.

33. gr.

Fundarsókn.

Sveitarstjórnarmanni er bæði rétt og skylt að sækja fundi sveitarstjórnar nema lögmæt forföll hamli. Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins. Hver sveitarstjórnarmaður er skyldur að taka að sér þau störf, sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnarinnar, svo sem oddvitastörf. Þó getur sá sem verið hefur oddviti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í nefnd eða ráði sama tímabil skorast undan kosningu jafn langan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

34. gr.

Hagsmunir sveitarfélagsins.

Sveitarstjórnarmanni ber að gegna störfum sínum í sveitarstjórn af alúð og samvisku­semi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins, en í störfum sínum er sveitarstjórnar­maður einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

35. gr.

Atkvæðisréttur.

Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari. Sveitarstjórnarmanni er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem sveitarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur oddviti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur sveitarstjórnarmanna tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar enda tilkynni hann það sveitarstjóra skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

36. gr.

Aðgangur að upplýsingum.

Sveitarstjórnarmaður á aðgang að bókum og skjölum sveitarfélagsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.

37. gr.

Bókanir.

Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í sveitarstjórn.

38. gr.

Þagnarskylda.

Sveitarstjórnarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að sveitarstjórnarmaður lætur af þeim störfum.

39. gr.

Lausn frá störfum.

Nú telur sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í sveitarstjórninni án óhæfilegs álags og getur sveitarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Missi fulltrúi í sveitarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Nú er sveitarstjórnarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal sveitarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

40. gr.

Þóknun.

Sveitarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitar­stjórn.

Ef um langan veg er að fara milli heimilis sveitarstjórnarmanns og fundarstaðar sveitarstjórnar, getur sveitarstjórnin auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist sveitarstjórnarmaður á hendur ferð á vegum sveitar­félagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjóra eða sveitarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslu skv. 1. mgr.

41. gr.

Fundartími.

Haga skal fundum sveitarstjórnar þannig að sveitarstjórnarmenn eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.

42. gr.

Varamenn í sveitarstjórn.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna gilda einnig um vara­menn sem taka sæti í sveitarstjórninni.

IV. KAFLI

Nefndir, ráð og stjórnir.

43. gr.

Kosningar og kjörgengi.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í byggðarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfallskosningu ef einhver sveitarstjórnarmaður óskar þess. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá.

Heimilt er að víkja frá þessu ákvæði ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starf viðkomandi einstaklings er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum þrátt fyrir nefndarsetu.

44. gr.

Fulltrúar í byggðarráði.

Sveitarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá sveitarstjórnarmenn í byggðarráð til eins árs. Aðalmenn í sveitarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í byggðarráð. Aðal- og varamenn í sveitarstjórn eru varamenn í byggðarráði og taka sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn forfallast.

Sveitarstjóri situr fundi byggðarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé fulltrúi í sveitarstjórn eða kjörinn í byggðarráðið.

Sveitarstjórn getur heimilað flokki eða framboðslista sem fulltrúa á í sveitarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn byggðarráðsmann að tilnefna fulltrúa til setu í byggðarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er sveitarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í byggðarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir sveitarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa.

45. gr.

Fundartími byggðarráðs.

Byggðarráð skal að jafnaði halda fund tvisvar í mánuði fyrsta og þriðja fimmtudag kl. 16.00 Aukafundi skal halda ef sveitarstjóri, formaður byggðarráðs eða a.m.k. tveir byggðarráðsmanna óska þess.

46. gr.

Fundarboðun byggðarráðs.

Sveitarstjóri undirbýr byggðarráðsfundi í samráði við formann byggðarráðs. Hann sér um að byggðarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti byggðarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna forföllin til sveitarstjóra eða oddvita þess lista sem hann er kjörinn af og boðar þá sveitarstjóri eða oddviti listans varamann hans á fund.

47. gr.

Formaður og fundargerð byggðarráðs.

Á fyrsta fundi nýkjörins byggðarráðs skal kjósa formann og varaformann byggðarráðs.

Formaður byggðarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar byggðarráðsins.

Heimilt er að taka mál til meðferðar í byggðarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver byggðarráðsmanna óskar þess.

Byggðarráð getur ráðið sér fundarritara utan byggðarráðs. Um ritun fundargerða byggðarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 32. gr.

48. gr.

Verkefni byggðarráðs og valdsvið.

Byggðarráð fer ásamt sveitarstjóra með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Byggðarráð hefur umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir sveitarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér byggðarráð um að ársreikningar sveitarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins lagðir fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.

Byggðarráð gerir tillögur til sveitarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar.

Byggðarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans enda sé ekki ágreiningur milli byggðarráðsmanna eða við sveitarstjóra um slíka afgreiðslu.

Byggðarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.

Þá getur sveitarstjórn falið byggðarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg. Í sumarleyfi sveitarstjórnar fer byggðarráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella.

49. gr.

Starfsmenn á fundi byggðarráðs.

Skylt er starfsmönnum sveitarfélagsins að sitja fundi byggðarráðs ef þess er óskað.

50. gr.

Fyrsti fundur - formenn nefnda.

Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar, nema lög eða sveitarstjórnin ákveði annað. Sveitarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það, nema formaður hafi áður verið valinn af sveitarstjórn. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.

51. gr.

Varamenn í nefndum.

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli.

Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema sveitarstjórnin ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar haft samstarf um nefndarkosningar, skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

52. gr.

Lokaðir fundir.

Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

53. gr.

Fundarstjórn nefnda og ráða.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

54. gr.

Vald nefnda.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið sveitarstjórn til ákvörðunar.

55. gr.

Fundargerðir nefnda og ráða.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnarinnar, sbr. 32. gr.

56. gr.

Sveitarstjórnarafgreiðsla.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna sveitarfélagsins skulu teknar á dagskrá sveitarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar sveitarstjórnarinnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar sveitarstjórnarinnar ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir sveitarstjórnina.

57. gr.

Kjör fastanefnda.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert.

  1. Byggðarráð: Þrír sveitarstjórnarmenn sem aðalmenn skv. 38. gr. sveitar­stjórnar­laga nr. 45/1998. Varamenn taka sæti í byggðarráði í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn forfallast, sbr. 44. gr. samþykktar þessarar.

B. Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

  1. Yfirkjörstjórn: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í undirkjörstjórnir, jafnmargar og kjördeildir eru.
  2. Jafnréttisnefnd: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 12. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
  3. Grunnskólanefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008.
  4. Leikskólanefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008.
  5. Orku- og veitunefnd: Sjö aðalmenn og jafnmargir til vara sbr. erindisbréf.
  6. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara sbr. erindisbréf.
  7. Æskulýðs- og íþróttanefnd: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara sbr. erindisbréf.
  8. Skoðunarmenn: Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitar­stjórnar­laga nr. 45/1998.
  9. Skurðanefnd A-Landeyja: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara sbr. erindisbréf.
  10. Skurðanefnd V-Landeyja: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara sbr. erindisbréf.
  11. Héraðsnefnd Rangæinga: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
  12. Rekstrarstjórn Kirkjuhvols: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara sbr. erindisbréf.
  13. Fjallskilanefnd Fljótshlíðar: Þrír aðalmenn og einn varamaður sbr. erindisbréf.
  14. Fjallskilanefnd V-Eyjafjalla: Þrír aðalmenn og tveir til vara sbr. erindisbréf.
  15. Menningarmálanefnd: Fimm aðalmenn og jafn margir til vara sbr. erindisbréf.
  16. Samgöngunefnd: Fimm aðalmenn og jafn margir til vara sbr. erindisbréf.

C. Einnig kýs sveitarstjórn til fjögurra ára fulltrúa í eftirtalin samstarfsráð, nefndir og stjórnir:

  1. Almannavarnanefnd: Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 8. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008.
  2. Sameiginlega barnaverndarnefnd Rangárþings eystra, Rangárþings ytra, Ása­hrepps, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps: Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
  3. Sameiginlega félagsmálanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu: Tveir aðalmenn og tveir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
  4. Sameiginlega byggingarnefnd Rangárþings: Þrír aðalmenn og þrír til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
  5. Sameiginlega skipulagsnefnd Rangárþings: Einn aðalmaður og einn til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
  6. Sameiginleg stjórn Byggingar- og skipulagsfulltrúaembættis Rangárþings bs.: Einn aðalfulltrúi og einn til vara.
  7. Stjórn Sögusetursins: Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
  8. Stjórn Héraðsbókasafns Rangæinga: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 7. gr. laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997.

    58. gr.

    Aðrar nefndir.

    Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Sveitarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.

    V. KAFLI

    Um framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélagsins.

    59. gr.

    Ráðning sveitarstjóra.

    Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við sveitar­stjórann þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur er staðfestur af sveitarstjórn.

    60. gr.

    Starfssvið sveitarstjóra.

    Sveitarstjóri undirbýr fundi sveitarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum sveitarstjórnarinnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í sveitarstjórnina. Hann hefur rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindum.

    Sveitarstjórinn hefur á hendi framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og málefna sveitar­félagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórnin hefur ekki ákveðið annað.

    Sveitarstjórinn er prókúruhafi sveitarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnarinnar þarf til.

    Sveitarstjóranum er heimilt með samþykki sveitarstjórnarinnar að veita öðrum starfs­manni sveitarfélagsins prókúru.

    Sveitarstjórinn er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins.

    Sveitarstjórinn ákveður hver gegna skuli störfum hans í forföllum hans í samráði við sveitarstjórn.

    61. gr.

    Ráðningar yfirmanna.

    Sveitarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu, svo sem yfirmenn stofnana og deilda sveitarfélagsins, og veitir þeim lausn frá störfum.

    62. gr.

    Ráðningar fastra starfsmanna.

    Sveitarstjóri ræður aðra fasta starfsmenn en þá sem greinir í 61. gr. nema á annan veg sé mælt í reglugerð eða reglum sem sveitarstjórn hefur sett.

    63. gr.

    Aðrar ráðningar.

    Um ráðningu annarra starfsmanna fer eftir reglum sem sveitarstjórn setur. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.

    64. gr.

    Starfskjör, réttindi og skyldur.

    Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjara­samninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga.

    VI. KAFLI

    Um fjármálastjórn sveitarfélagsins.

    65. gr.

    Um áætlanagerð.

    Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal sveitarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun sveitar­sjóðs, fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins fyrir næsta ár að undangengnum tveimur umræðum í sveitarstjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.

    Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.

    Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur sveitarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna sveitarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

    Sveitarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitar­félagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.

    66. gr.

    Um fjárveitingar og útgreiðslur.

    Fjárhagsáætlun skv. 65. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr sveitarsjóði, nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af sveitarstjórninni.

    Samþykki sveitarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.

    67. gr.

    Endurskoðun fjárhagsáætlunar.

    Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er sveitarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir sveitarstjórn við eina umræðu á sveitarstjórnarfundi, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í sveitarstjórn með dagskrá viðkomandi sveitarstjórnarfundar.

    68. gr.

    Þriggja ára áætlun.

    Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal sveitarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins. Skal hún unnin og afgreidd af sveitarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

    69. gr.

    Skil á fjárhagsáætlunum.

    Strax að lokinni afgreiðslu sveitarstjórnarinnar skal senda samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 66. gr. og þriggja ára áætlun skv. 69. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 68. gr.

    70. gr.

    Endurskoðun ársreikninga.

    Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir lok aprílmánaðar.

    Sveitarstjórnin skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna.

    Sveitarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélagsins og fyrirtækja þess fyrir 1. júní ár hvert. Sveitarstjórnarmenn og sveitarstjóri skulu árita ársreikninginn.

    Eintak af ársreikningnum skal senda samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunar­manna.

    Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Rangárþings eystra nr. 1040/2003.

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 22. mars 2010.

    F. h. r.

    Hermann Sæmundsson.

    Stefanía Traustadóttir.

    B deild - Útgáfud.: 9. apríl 2010