I. HLUTI Almenn ákvæði. 1. gr. Markmið og gildissvið. Með reglugerð þessari er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði aðildarríkja Schengen-samstarfsins til þriggja mánaða eða skemmri tíma á sex mánaða tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi. Ákvæði þessarar reglugerðar gilda um alla ríkisborgara þriðju ríkja, sem verða að hafa vegabréfsáritun til að fara yfir ytri landamæri aðildarríkjanna, sbr. viðauka 9 og 10 þar sem talin eru upp þriðju ríki hverra ríkisborgarar verða að hafa vegabréfsáritun til að fara yfir ytri landamæri aðildarríkjanna og þriðju ríki hverra ríkisborgarar eru undanþegnir þeirri kvöð, sbr. þó rétt ríkisborgara þriðju ríkja sem eru aðstandendur íslenskra ríkisborgara eða EES- eða EFTA-útlendinga, til frjálsrar farar. Í þessari reglugerð eru einnig talin upp þau þriðju ríki hverra ríkisborgarar falla undir kvöð um vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn, samkvæmt undantekningu frá meginreglunni um frjálsa gegnumför, sem mælt er fyrir um í 9. viðauka við Chicago-samþykktina um alþjóðaflugmál, auk þess sem settar eru verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana til gegnumferðar um alþjóðleg gegnumferðarsvæði flughafna í aðildarríkjunum. 2. gr. Skilgreiningar. Í þessari reglugerð er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir: - Aðildarríki: ríki sem tekur fullan þátt í Schengen-samstarfinu.
- Ríkisborgari þriðja ríkis: hver sá einstaklingur sem er ekki íslenskur ríkisborgari eða EES- eða EFTA-útlendingur.
- Vegabréfsáritun: heimild gefin út af íslenskum stjórnvöldum, eða fyrir þeirra hönd, til lengri dvalar en þriggja mánaða á Íslandi eða heimild, gefin út af aðildarríki, til:
| a) | gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna í þrjá mánuði eða skemmri tíma á sex mánaða tímabili frá fyrsta komudegi til yfirráðasvæðis aðildarríkjanna, | | b) | gegnumferðar um alþjóðleg gegnumferðarsvæði flughafna í aðildarríkjunum. |
- Samræmd vegabréfsáritun: vegabréfsáritun sem gildir á yfirráðasvæði allra aðildarríkjanna.
- Vegabréfsáritun með takmarkað gildissvæði: vegabréfsáritun sem gildir á yfirráðasvæði eins eða fleiri aðildarríkja en ekki allra aðildarríkjanna.
- Vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn: vegabréfsáritun til gegnumferðar um alþjóðleg gegnumferðarsvæði einnar eða fleiri flughafna í aðildarríkjunum.
- Vegabréfsáritunarmiði: fyrirmyndin að samræmdum vegabréfsáritunum sem komið var á með reglugerð (EB) nr. 1683/95 um fyrirmynd að samræmdum vegabréfsáritunum.
- Viðurkennd ferðaskilríki: ferðaskilríki sem viðurkennd eru af einu eða fleiri aðildarríkjum til að festa vegabréfsáritanir í.
- Laust blað til að festa vegabréfsáritun á: fyrirmynd að samræmdu eyðublaði til að festa vegabréfsáritun á, sem aðildarríki veita einstaklingum með ferðaskilríki sem eru ekki viðurkennd í aðildarríkinu sem gefur út eyðublaðið, eins og það er skilgreint í reglugerð ráðsins (EB) nr. 333/2002 frá 18. febrúar 2002 um fyrirmynd að samræmdu eyðublaði fyrir festingu vegabréfsáritunar sem aðildarríki veita einstaklingum með ferðaskilríki sem eru ekki viðurkennd í aðildarríkinu sem gefur út eyðublaðið.
- Ræðisskrifstofa: sendiráð eða ræðisstofnun aðildarríkis, sem hefur heimild til að gefa út vegabréfsáritanir og sem sendiræðiserindreki veitir forstöðu, eins og skilgreint er í Vínarsamningnum um ræðissamband frá 24. apríl 1963.
- Umsókn: umsókn um vegabréfsáritun.
- Fyrirtæki sem starfar sem milliliður: einkarekin umsýsluskrifstofa, flutningamiðlun eða ferðaskrifstofa (ferðaskipuleggjandi eða ferðasmásali).
- Fyrirsvarsríki: aðildarríki sem falið hefur verið að fara með fyrirsvar í samræmi við 8. gr.
II. HLUTI Vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn. 3. gr. Ríkisborgarar þriðju ríkja sem falla undir kvöð um vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn. Ríkisborgurum þeirra þriðju ríkja sem eru tilgreind í viðauka 4 er skylt að hafa vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn þegar þeir fara um alþjóðleg gegnumferðarsvæði íslenskra flughafna. Í bráðatilvikum, þegar um er að ræða stórfellt innstreymi ólöglegra innflytjenda, er heimilt að krefjast þess að ríkisborgarar annarra þriðju ríkja en þeirra, sem um getur í 1. mgr., hafi vegabréfs-áritun til gegnumferðar um flughöfn þegar þeir fara um alþjóðleg gegnumferðarsvæði íslenskra flughafna. Eftirtaldir eru undanþegnir kvöðinni um vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn, sem um getur í 1. og 2. mgr.: | a) | handhafar gildrar samræmdrar vegabréfsáritunar, landsbundinnar vegabréfsáritunar til langrar dvalar eða dvalarleyfis sem aðildarríki hefur gefið út, | | b) | ríkisborgarar þriðju ríkja sem eru handhafar gildra dvalarleyfa, sem tilgreind eru í V. viðauka og gefin eru út af Andorra, Kanada, Japan, San Marínó eða Bandaríkjum Norður-Ameríku, sem ábyrgjast skilyrðislausa endurviðtöku viðkomandi, | | c) | ríkisborgarar þriðju ríkja sem eru handhafar gildrar vegabréfsáritunar til aðildarríkis, ríkis sem á aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið frá 2. maí 1992, Kanada, Japan eða Bandaríkja Norður-Ameríku eða eru á heimleið frá þessum ríkjum eftir að hafa notað vegabréfsáritunina, | | d) | aðstandendur íslenskra ríkisborgara eða EES- eða EFTA-útlendinga, eins og um getur í 2. mgr. 1. gr., | | e) | handhafar diplómatískra vegabréfa, | | f) | flugliðar sem eru ríkisborgarar samningsaðila að Chicago-samþykktinni um alþjóðlegt almenningsflug. |
III. HLUTI Verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana. I. KAFLI Yfirvöld sem koma að umsóknarferlinu. 4. gr. Lögbær yfirvöld sem koma að umsóknarferlinu. Ræðisskrifstofur Íslands og annarra aðildarríkja, í samræmi við ákvörðun utanríkisráðuneytisins eða samninga þess við önnur aðildarríki um fyrirsvar á hverjum tíma, sbr. 8. gr., taka við og fara með umsóknir og veita vegabréfsáritanir. Að öðru leyti tekur Útlendingastofnun ákvörðun um umsóknir. Þrátt fyrir 1. mgr. getur meðferð umsókna og ákvarðanataka varðandi þær farið fram á ytri landamærum aðildarríkjanna hjá yfirvöldum sem bera ábyrgð á eftirliti með einstaklingum í samræmi við 35. og 36. gr. Útlendingastofnun er jafnframt heimilt að veita eða fela fyrirsvarsríki að veita vegabréfsáritun til lengri dvalar en þriggja mánaða á Íslandi, á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sem liggur fyrir þegar áritunin er veitt og skal þá beita ákvæðum reglugerðar þessarar eftir því sem við á. Slík áritun verður veitt fyrir eina komu og heimilar hún för innan Schengen-svæðisins nema annað sé tekið fram í árituninni sjálfri. Aðildarríki getur farið fram á að annað aðildarríki hafi samráð við það eða sendi því tilkynningar í samræmi við 22. og 31. gr. 5. gr. Meðferð umsóknar og ákvörðun um hana. Íslensk stjórnvöld eru bær til að annast meðferð umsóknar um samræmda vegabréfsáritun og taka ákvörðun um hana í eftirtöldum tilvikum: | a) | ef ferðinni eða ferðunum er eingöngu heitið hingað til lands, | | b) | ef Ísland telst vera aðalákvörðunarstaður ferðarinnar eða ferðanna, með tilliti til dvalartíma eða tilgangs dvalarinnar, þótt ferðast sé til fleiri en eins ákvörðunarstaðar, eða | | c) | ef Ísland er það aðildarríki þar sem umsækjandi hyggst fara yfir ytri landamæri til að komast inn á yfirráðasvæði aðildarríkjanna og ekki er unnt að ákvarða aðalákvörðunarstað. |
Íslensk stjórnvöld eru bær til að annast meðferð umsóknar um samræmda vegabréfsáritun til gegnumferðar og taka ákvörðun um hana ef: | a) | einungis er um að ræða gegnumferð um Ísland, eða | | b) | umsækjandi hyggst fara yfir ytri landamæri Íslands til þess að hefja gegnumferð um fleiri en eitt aðildarríki. |
Íslensk stjórnvöld eru bær til að annast meðferð umsóknar um vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn og taka ákvörðun um hana ef: | a) | einungis er um að ræða gegnumferð um íslenska flughöfn, eða | | b) | íslensk flughöfn er fyrsta flughöfnin, sem farið er í gegnum, ef um er að ræða gegnumferð um tvær eða fleiri flughafnir aðildarríkjanna. |
6. gr. Lögsaga ræðisskrifstofa. Séu íslensk stjórnvöld bær til þess að taka umsókn til meðferðar og ákvörðunar skal íslensk ræðisskrifstofa sem staðsett er þar sem umsækjandi hefur löglega búsetu, taka umsókn til meðferðar og taka ákvörðun um hana, nema öðru aðildarríki hafi verið falið fyrirsvar í samræmi við 8. gr. Hið sama gildir um umsókn ríkisborgara þriðja ríkis, sem dvelur löglega þar sem íslensk ræðisskrifstofa, sem annast áritanaútgáfu, er staðsett en hefur ekki búsetu þar, ef viðkomandi getur fært rök fyrir því að leggja umsóknina fram hjá þeirri ræðisskrifstofu. 7. gr. Aðili sem er bær til að gefa út vegabréfsáritanir til ríkisborgara þriðju ríkja sem dvelja löglega á yfirráðasvæði aðildarríkis. Ríkisborgarar þriðju ríkja, sem dvelja löglega á yfirráðasvæði aðildarríkis og er skylt að hafa vegabréfsáritun til að koma inn á yfirráðasvæði eins eða fleiri aðildarríkja, skulu sækja um vegabréfsáritun á ræðisskrifstofu Íslands, sé Ísland bært til þess að taka umsóknina til meðferðar skv. 5. gr., eða annars aðildarríkis sem falið hefur verið fyrirsvar fyrir Íslands hönd, samkvæmt 1. mgr. 4. gr. 8. gr. Samkomulag um fyrirsvar. Aðildarríki getur fallist á að veita öðru aðildarríki fyrirsvar að því er varðar meðferð umsókna og útgáfu vegabréfsáritana fyrir hönd þess aðildarríkis. Aðildarríki er einnig heimilt að veita öðru aðildarríki fyrirsvar er takmarkist við viðtöku umsókna og skráningu lífkenna eingöngu. Ræðisskrifstofa aðildarríkis sem veitir fyrirsvar skal, þegar hún íhugar að synja um vegabréfsáritun, leggja umsóknina fyrir viðeigandi yfirvöld aðildarríkisins, sem nýtur fyrirsvars, til að þau geti tekið endanlega ákvörðun um umsóknina innan þess frests sem um getur í 1., 2. eða 3. mgr. 23. gr. Við viðtöku skráa og gagna og sendingu þeirra til aðildarríkisins, sem nýtur fyrirsvars, skal fara að viðeigandi gagnaverndar- og öryggisreglum. Aðildarríkið sem veitir fyrirsvar og aðildarríkið sem nýtur fyrirsvars skulu gera með sér tvíhliða samkomulag sem hefur að geyma eftirfarandi atriði: | a) | í því skal tilgreina í hversu langan tíma fyrirsvar skuli veitt, ef um tímabundið fyrirkomulag er að ræða, og verklagsreglur við uppsögn þess, | | b) | í því má kveða á um að aðildarríkið, sem nýtur fyrirsvars, leggi til húsnæði, starfsfólk og annist greiðslur, einkum ef aðildarríkið sem nýtur fyrirsvars hefur ræðisskrifstofu í viðkomandi þriðja ríki, | | c) | í því má kveða á um að aðildarríkið, sem veitir fyrirsvar, skuli senda umsóknir frá sérstökum flokkum ríkisborgara þriðju ríkja til miðlægra stjórnvalda aðildarríkisins, sem nýtur fyrirsvars, til samráðs fyrirfram, eins og kveðið er á um í 22. gr. |
Aðildarríki, sem ekki hafa ræðisskrifstofu í þriðja ríki, skulu kappkosta að koma á samkomulagi um fyrirsvar við aðildarríki sem hafa ræðisskrifstofur í því ríki. II. KAFLI Umsókn. 9. gr. Hagnýt atriði varðandi framlagningu umsókna. Ekki má leggja fram umsókn fyrr en þremur mánuðum fyrir áætlaða ferð. Handhöfum vegabréfsáritunar sem gildir fyrir margar komur er heimilt að leggja fram umsókn áður en vegabréfsáritun, sem gildir í a.m.k. sex mánuði, rennur út. Heimilt er að gera kröfu um að umsækjendur panti viðtalstíma til að leggja fram umsókn. Viðtalstími skal, almennt, veittur innan tveggja vikna frá þeim degi sem hann var pantaður. Í bráðatilvikum getur ræðisskrifstofa heimilað umsækjendum að leggja fram umsóknir sínar, annaðhvort án þess að mæta í viðtal eða með því að gefa þeim viðtalstíma þegar í stað. 10. gr. Almennar reglur um framlagningu umsóknar. Með fyrirvara um ákvæði 13. og 37. gr. skulu umsækjendur mæta í eigin persónu þegar þeir leggja fram umsókn. Ræðisskrifstofur geta veitt undanþágu frá kröfu samkvæmt 1. mgr. ef þær þekkja umsækjanda að ráðvendni og áreiðanleika. Þegar umsækjandi leggur fram umsókn skal hann: | a) | leggja fram umsókn í samræmi við 11. gr., | | b) | framvísa ferðaskilríkjum í samræmi við 12. gr., | | c) | leggja fram ljósmynd í samræmi við staðla sem settir eru í 13. gr. þessarar reglugerðar, | | d) | heimila að fingraför hans séu tekin í samræmi við 13. gr., ef við á, | | e) | greiða gjald fyrir afgreiðslu umsóknar um vegabréfsáritun í samræmi við 16. gr., | | f) | leggja fram fylgiskjöl í samræmi við 14. gr. og viðauka 2, | | g) | leggja fram, þar sem við á, sönnun um viðeigandi og gilda ferðasjúkratryggingu í samræmi við 15. gr. |
11. gr. Umsóknareyðublað. Sérhver umsækjandi skal leggja fram útfyllt og undirritað umsóknareyðublað í samræmi við fyrirmyndina í I. viðauka. Einstaklingar, sem skráðir eru í ferðaskilríki umsækjanda, skulu leggja fram sérstakt umsóknareyðublað. Börn undir lögaldri skulu leggja fram umsókn með undirritun þess sem fer með varanlega eða tímabundna forsjá þeirra eða lögráðamanns. Ræðisskrifstofur skulu sjá til þess að umsækjendur geti nálgast umsóknareyðublaðið víða og á auðveldan hátt, án endurgjalds. Eyðublaðið skal vera til á eftirfarandi tungumálum: | a) | opinberu tungumáli eða -málum aðildarríkisins sem sótt er um vegabréfsáritun til, | | b) | opinberu tungumáli eða -málum gistilandsins, | | c) | opinberu tungumáli eða -málum gistilandsins og opinberu tungumáli eða -málum aðildarríkisins sem sótt er um vegabréfsáritun til, | | d) | þegar um er að ræða fyrirsvar, opinberu tungumáli eða -málum aðildarríkisins sem veitir fyrirsvar. |
Auk tungumálsins eða -málanna, sem um getur í a-lið, má eyðublaðið vera á öðru opinberu tungumáli stofnana Evrópusambandsins. Sé umsóknareyðublaðið ekki til á opinberu tungumáli eða -málum gistilandsins skal láta umsækjendum sérstaklega í té þýðingu á því á það/þau tungumál. Ræðisskrifstofan skal láta umsækjendur vita hvaða tungumál, eitt eða fleiri, er heimilt að nota til að fylla út umsóknareyðublaðið. 12. gr. Ferðaskilríki. Umsækjandi skal framvísa gildum ferðaskilríkjum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði: | a) | þau skulu gilda í a.m.k. þrjá mánuði eftir fyrirhugaðan brottfarardag frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna eða, ef um er að ræða nokkrar heimsóknir, eftir síðasta fyrirhugaða brottfarardag frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna. Í neyðartilvikum er þó heimilt að falla frá þessu skilyrði, | | b) | í þeim skulu vera a.m.k. tvær auðar síður, | | c) | ekki skulu vera liðin fleiri en 10 ár frá útgáfu þeirra. |
13. gr. Lífkenni. Aðildarríkin skulu safna lífkennum umsækjanda, þ. á m. ljósmynd og fingraförum af öllum tíu fingrum, í samræmi við verndarráðstafanirnar sem mælt er fyrir um í Evrópuráðssamningi um verndun mannréttinda og mannfrelsis, sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins þannig að umsækjandi haldi virðingu sinni þótt erfiðleikar þessu samfara komi upp. Umsækjanda er skylt að mæta í eigin persónu þegar umsókn er lögð fram í fyrsta sinn. Þá skal eftirfarandi lífkennum umsækjanda safnað: | – | ljósmynd, skönnuð eða tekin þegar sótt er um og | | – | fingraförum allra tíu fingra, tekin af flötum fingrum og safnað á stafrænu formi. |
Ef fingraför, sem tekin voru af umsækjanda vegna fyrri umsóknar, voru færð inn í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir í fyrsta skipti innan við 59 mánuðum áður en ný umsókn er lögð fram, skulu þau afrituð fyrir næstu umsókn. Leiki þó verulegur vafi á því hver umsækjandi er skal ræðisskrifstofan taka af honum fingraför innan frestsins sem tilgreindur er í fyrsta málslið. Þegar umsækjandi leggur fram umsókn getur hann enn fremur beðið um að fingraför séu tekin af honum ef ekki er unnt að staðfesta þegar í stað að þau hafi verið tekin innan þess tímabils sem tilgreint er í fyrsta málslið. Ljósmyndin, sem fest er við hverja umsókn, skal færð inn í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir. Umsækjanda er ekki skylt að mæta í eigin persónu til þess. Tæknilegar kröfur vegna ljósmyndarinnar skulu vera í samræmi við alþjóðlega staðla eins og segir í 1. hluta skjals 9303 frá Alþjóðaflugmálastofnuninni, 6. útg. Taka fingrafara skal fara fram í samræmi við staðla Alþjóðaflugmálastofnunarinnar og ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2006/648/EB frá 22. september 2006 um tækniforskriftir fyrir staðla um lífkennaþætti er tengjast þróun upplýsingakerfisins um vegabréfsáritanir. Hæft starfsfólk lögbærra yfirvalda, skv. 1., 2. og 3. mgr. 4. gr., sem til þess hefur tilskilda heimild, skal annast söfnun lífkenna. Einnig er heimilt að hæft starfsfólk kjörræðismanns eða utanaðkomandi þjónustuaðila, eins og um getur í 37. gr., sem hefur til þess tilskilda heimild, safni lífkennum undir eftirliti ræðisskrifstofa. Ef um einhvern vafa er að ræða skal hlutaðeigandi aðildarríki, eitt eða fleiri, sjá til þess að unnt sé að sannprófa á ræðisskrifstofunni fingraför sem hinn utanaðkomandi þjónustuaðili tók. Eftirtaldir umsækjendur skulu undanþegnir þeirri kvöð að láta taka fingraför sín: | a) | börn undir 12 ára aldri, | | b) | einstaklingar sem ekki er hægt að taka fingraför af vegna líkamlegra orsaka. Ef hægt er að taka fingraför af færri fingrum en tíu skal taka fingraför af eins mörgum fingrum og unnt er. Sé um tímabundið ástand að ræða skal umsækjanda hins vegar skylt að láta taka af sér fingraför við næstu umsókn. Heimilt er að óska eftir nánari skýringu á því hvað valdi þessu tímabundna ástandi, | | c) | ríkisleiðtogar eða ríkisstjórnarleiðtogar og ráðherrar í ríkisstjórn, ásamt mökum sem fylgja þeim, og fulltrúar í opinberum sendinefndum þeirra þegar um er að ræða opinberar heimsóknir í boði ríkisstjórnar aðildarríkis eða alþjóðastofnunar, | | d) | þjóðhöfðingjar og aðrir háttsettir meðlimir konungsfjölskyldna, í opinberum heimsóknum í boði ríkisstjórnar aðildarríkis eða alþjóðastofnunar. |
Í þeim tilvikum, sem um getur í 7. mgr., skal setja inn færsluna „á ekki við“ í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir. 14. gr. Fylgiskjöl. Þegar sótt er um samræmda vegabréfsáritun skal umsækjandi framvísa: | a) | skjölum sem gefa til kynna tilgang ferðar, | | b) | skjölum er varða gistingu eða sönnun á að hann hafi nægt fé til að greiða fyrir gistingu, | | c) | skjölum sem gefa til kynna að hann hafi nægt fé sér til framfærslu, bæði meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands síns eða til gegnumferðar um þriðja ríki, sem víst þykir að honum verði hleypt inn í, eða að hann sé í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt í samræmi við c-lið 1. mgr. og 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1212/2007 um för yfir landamæri, | | d) | upplýsingum sem gera kleift að meta ásetning umsækjanda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin, sem sótt er um, rennur út. |
Þegar sótt er um vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn skal umsækjandi framvísa: | a) | skjölum varðandi áframhaldandi för til lokaákvörðunarstaðar eftir fyrirhugaða gegnumferð um flughöfn, | | b) | upplýsingum sem gera kleift að meta ásetning hans um að fara ekki inn á yfirráðasvæði aðildarríkjanna. |
Til að kanna hvort skilyrðum sem talin eru upp í 1. og 2. mgr. er fullnægt, er stjórnvaldi því sem hefur umsókn um vegabréfsáritun til meðferðar heimilt að óska eftir gögnum sem talin eru upp í viðauka 2. Stjórnvaldinu er jafnframt heimilt að óska eftir öðrum gögnum ef þurfa þykir. Heimilt er að krefjast þess að umsækjandi færi sönnur á að einhver ábyrgist framfærslu hans og/eða gistingu í heimahúsi með því að fylla út eyðublað þar sem kemur fram: | a) | hvort því sé ætlað að færa sönnur á að einhver ábyrgist framfærslu hlutaðeigandi og/eða gistingu, | | b) | hvort gestgjafinn sé einstaklingur, fyrirtæki eða stofnun, | | c) | deili á gestgjafanum og upplýsingar um hvernig unnt er að ná sambandi við hann, | | d) | hvaða umsækjanda eða umsækjendum er boðið, | | e) | heimilisfangið þar sem gist er, | | f) | dvalartími og tilgangur dvalar, | | g) | ættartengsl við gestgjafann, ef einhver eru. |
Ræðisskrifstofur geta veitt undanþágu frá einni eða fleiri kröfum 1. mgr. ef þær þekkja umsækjanda að ráðvendni og áreiðanleika, einkum löglegri notkun fyrri vegabréfsáritana, og ef enginn vafi leikur á því að hann muni uppfylla kröfur 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1212/2007, um för yfir landamæri, þegar farið er yfir ytri landamæri aðildarríkjanna. 15. gr. Ferðasjúkratrygging. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun til einnar komu eða tveggja skulu sýna fram á að þeir séu handhafar viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar til að mæta hvers konar kostnaði sem kann að falla til í tengslum við heimsendingu af læknisfræðilegum ástæðum, brýna læknismeðferð og/eða meðferð á sjúkrahúsi í neyðartilvikum eða við andlát meðan á dvöl þeirra stendur á yfirráðasvæði aðildarríkjanna. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun fyrir fleiri en tvær komur skulu sýna fram á að þeir séu handhafar gildrar ferðasjúkratryggingar sem tekur til tímabils fyrstu fyrirhugaðrar heimsóknar þeirra. Að auki skulu slíkir umsækjendur skrifa undir yfirlýsingu, sem er að finna á umsóknareyðublaðinu, um að þeim sé kunnugt um nauðsyn þess að hafa ferðasjúkratryggingu fyrir síðari dvöl, eina eða fleiri. Tryggingin skal gilda á öllu yfirráðasvæði aðildarríkjanna og taka til alls fyrirhugaðs dvalar- eða gegnumferðartímabils hlutaðeigandi. Lágmarkstryggingavernd skal vera í samræmi við þá tryggingavernd sem krafist er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir. Þegar gefin er út vegabréfsáritun með takmarkað gildissvæði sem gildir fyrir fleiri en eitt aðildarríki skal tryggingaverndin a.m.k. gilda í hlutaðeigandi aðildarríkjum. Umsækjendur skulu að jafnaði tryggja sig í því ríki þar sem þeir eru búsettir. Ef ekki er unnt að koma því við skulu þeir reyna að fá tryggingu í öðru ríki. Ef annar einstaklingur kaupir tryggingu í nafni umsækjanda gilda skilyrði 3. mgr. Þegar meta á hvort tryggingavernd er viðunandi skulu ræðisskrifstofurnar kanna hvort kröfur á hendur tryggingafélaginu fáist greiddar í aðildarríki. Heimilt er að líta svo á að kröfunni um tryggingu sé fullnægt ef staðfest hefur verið að starf umsækjandans veiti honum næga tryggingavernd. Tilteknar starfsstéttir geta verið undanþegnar því að þurfa að leggja fram sönnun fyrir ferðasjúkratryggingu, s.s. sjómenn, sem þegar njóta ferðasjúkratryggingar í tengslum við störf sín. Handhafar diplómatískra vegabréfa skulu njóta undanþágu frá kröfunni um ferðasjúkratryggingu. 16. gr. Gjald fyrir vegabréfsáritun. Umsækjendur skulu greiða gjald fyrir afgreiðslu umsóknar um vegabréfsáritun, sbr. 5.-15. tölul. 14. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs. Börn á aldrinum sex til tólf ára skulu greiða lægra gjald en þeir sem eldri eru. Umsækjendur, sem falla undir einn af eftirfarandi flokkum, skulu undanþegnir gjaldi fyrir vegabréfsáritanir: | a) | börn undir sex ára aldri, | | b) | nemendur, háskólanemar, háskólanemar í framhaldsnámi og kennarar til fylgdar, sem fara til dvalar í því skyni að stunda nám eða sækja sér starfsþjálfun, | | c) | rannsóknarmenn frá þriðju ríkjum sem ferðast í því skyni að stunda vísindarannsóknir, eins og tilgreint er í tilmælum Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2005/761/EB frá 28. september 2005 um að greiða fyrir því að aðildarríkin gefi út samræmdar vegabréfsáritanir til stuttrar dvalar fyrir rannsóknarmenn frá þriðju ríkjum sem ferðast innan Bandalagsins í því skyni að stunda vísindarannsóknir, | | d) | fulltrúar stofnana sem eru ekki reknar í hagnaðarskyni, 25 ára eða yngri, sem taka þátt í málstofum, ráðstefnum, íþrótta-, menningar- eða fræðsluviðburðum sem eru skipulagðir af stofnunum, sem eru ekki reknar í hagnaðarskyni. |
Heimilt er að undanþiggja eftirtalda aðila gjaldi fyrir vegabréfsáritanir: | a) | börn á aldrinum sex til tólf ára, | | b) | handhafa diplómatískra vegabréfa og þjónustuvegabréfa, | | c) | þátttakendur, 25 ára eða yngri, í málstofum, ráðstefnum, íþrótta-, menningar- eða fræðsluviðburðum sem eru skipulagðir af stofnunum sem eru ekki reknar í hagnaðarskyni. |
Heimilt er að falla frá gjaldi fyrir vegabréfsáritanir, eða lækka í einstökum tilvikum, þegar sú ráðstöfun miðar að því að efla veg menningar eða íþrótta, þjónar hagsmunum sem varða utanríkis- eða þróunarmál eða öðrum mikilvægum almannahagsmunum eða af mannúðarástæðum. Gjald fyrir vegabréfsáritanir er óendurkræft, nema í þeim tilvikum sem um getur í 2. mgr. 18. gr. og 3. mgr. 19. gr. Umsækjandi skal fá kvittun fyrir greiðslu gjalds fyrir vegabréfsáritun. Útlendingastofnun er heimilt að setja nánari reglur um undanþágur samkvæmt 4. og 5. mgr. 17. gr. Þjónustugjald. Utanaðkomandi þjónustuaðila, sem um getur í 37. gr., er heimilt að taka viðbótarþjónustugjald. Þjónustugjaldið skal vera í samræmi við kostnað hins utanaðkomandi þjónustuaðila vegna vinnslu eins eða fleiri af verkefnunum sem honum hafa verð falin. Þjónustugjaldið, sem tekið er af umsækjendum, skal endurspegla réttilega þá þjónustu sem hinn utanaðkomandi þjónustuaðili býður og vera lagað að aðstæðum á hverjum stað. Þjónustugjaldið skal ekki vera hærra en hálft gjald fyrir vegabréfsáritun, án tillits til hugsanlegrar lækkunar á eða undanþágu frá gjaldi fyrir vegabréfsáritun sem um getur í 2., 3., 4., og 5. mgr. 16. gr. Umsækjendum skal jafnframt gefast kostur á að leggja fram umsóknir beint hjá ræðisskrifstofu. III. KAFLI Meðferð umsóknar og ákvörðun um umsókn. 18. gr. Gengið úr skugga um hvaða ræðisskrifstofa er þar til bær ræðisskrifstofa. Þegar umsókn hefur verið lögð fram skal ræðisskrifstofan ganga úr skugga um hvort hún sé til þess bær að taka hana til meðferðar og taka ákvörðun um hana í samræmi við 5. og 6. gr. Sé ræðisskrifstofan ekki til þess bær skal hún, án tafar, endursenda umsóknina og hver þau gögn sem umsækjandi hefur lagt fram, endurgreiða honum umsóknargjaldið og tilkynna honum hvaða ræðisskrifstofa sé bær til að taka hana til meðferðar. 19. gr. Kannað hvort umsóknir séu tækar. Þar til bær ræðisskrifstofa skal kanna: | – | hvort umsóknin var lögð fram innan þess tímabils sem um getur í 1. mgr. 9. gr., | | – | hvort umsóknin hefur að geyma þau atriði sem um getur í a- til c-lið 3. mgr. 10. gr., | | – | hvort lífkennum umsækjanda hefur verið safnað og | | – | hvort gjald fyrir afgreiðslu vegabréfsáritunar hefur verið greitt. |
Séu skilyrði 1. mgr. uppfyllt telst umsóknin vera tæk og skal ræðisskrifstofan þá taka umsóknina til meðferðar og færa hana í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir. Teljist skilyrði 1. mgr. ekki uppfyllt telst umsóknin ekki tæk og skal þá ræðisskrifstofan tafarlaust: | – | endursenda umsóknina og hver þau gögn sem umsækjandi hefur lagt fram, | | – | eyða lífkennum sem safnað hefur verið, | | – | endurgreiða umsóknargjaldið og | | – | ekki taka umsóknina til meðferðar. |
Þrátt fyrir að umsókn uppfylli ekki skilyrðin, sem um getur í 1. mgr., getur hún talist tæk af mannúðarástæðum eða af ástæðum er varða þjóðarhagsmuni. 20. gr. Stimpill sem gefur til kynna að umsókn sé tæk. Ef umsókn telst tæk skal þar til bær ræðisskrifstofa stimpla ferðaskilríki umsækjandans. Stimpillinn skal vera í samræmi við fyrirmyndina í III. viðauka og hann skal nota í samræmi við ákvæði þess viðauka. Ekki skal stimpla í diplómatísk vegabréf, þjónustu-/embættisvegabréf og sérstök vegabréf. Ákvæði þessarar greinar skulu gilda fram að þeim degi er upplýsingakerfið um vegabréfsáritanir verður tekið í fulla notkun á öllum svæðum. 21. gr. Könnun á því hvort komuskilyrði séu uppfyllt og áhættumat. Við meðferð umsóknar um samræmda vegabréfsáritun skal kanna hvort umsækjandi uppfylli skilyrðin fyrir komu, sem sett eru fram í a-, c-, d- og e-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1212/2007 um för yfir landamæri, með sérstakri áherslu á mat á því hvort hætta sé á að umsækjandinn muni gerast ólöglegur innflytjandi eða hvort hann teljist vera ógnun við öryggi aðildarríkjanna og hvort hætta sé á að hann dvelji lengur á yfirráðasvæði aðildarríkjanna en honum er heimilt. Fletta skal upp í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir, í tengslum við sérhverja umsókn. Þegar kannað er hvort umsækjandi uppfyllir komuskilyrði skal ræðisskrifstofan sannprófa: | a) | að ferðaskilríkin, sem framvísað er, séu ekki grunnfölsuð, breytifölsuð eða fölsuð á annan hátt, | | b) | rök umsækjanda fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og að hann hafi nægt fé sér til framfærslu, bæði meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands síns eða til gegnumferðar um þriðja ríki, sem víst þykir að honum verði hleypt inn í, eða að hann sé í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, | | c) | að umsækjandi sé ekki á skrá í Schengen-upplýsingakerfinu (SIS) yfir óæskilega einstaklinga sem synja á um komu, | | d) | að umsækjandi teljist ekki vera ógnun við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða almannaheilsu, eins og það er skilgreint í 20. tl. 3. gr. reglugerðar nr. 1212/2007 um för yfir landamæri, eða við alþjóðasamskipti við eitthvert aðildarríkjanna, einkum ef hann er ekki á skrá í landsbundnum gagnagrunnum aðildarríkjanna yfir óæskilega einstaklinga sem synja á um komu af sömu ástæðum, | | e) | að umsækjandi hafi gilda ferðasjúkratryggingu, þar sem við á. |
Þar sem við á, skal kanna lengd fyrri og fyrirhugaðra heimsókna til að sannprófa að umsækjandi hafi ekki farið yfir hámarkslengd heimilaðrar dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna, án tillits til dvalar sem kann að hafa verið heimiluð skv. landsbundinni vegabréfsáritun til langrar dvalar eða dvalarleyfi sem annað aðildarríki gefur út. Framfærslukostnaður vegna fyrirhugaðrar dvalar skal metinn í samræmi við lengd og tilgang ferðarinnar og með tilvísun til meðalverðs í hlutaðeigandi aðildarríki eða -ríkjum, miðað við ódýra gistingu og fæði, margfaldað með fjölda daga sem dvalist er, á grundvelli viðmiðunarfjárhæða sem aðildarríkin ákveða í samræmi við c-lið 1. mgr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 562/2006 um för yfir landamæri. Sönnun fyrir því að einhver ábyrgist framfærslu umsækjanda og/eða gistingu hans í heimahúsi getur einnig talist sönnun á nægu framfærslufé við heildarmat á umsókn um vegabréfsáritun. Við meðferð umsóknar um vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn skal einkum sannprófa: | a) | að ferðaskilríkin, sem framvísað er, séu ekki grunnfölsuð, breytifölsuð eða fölsuð á annan hátt, | | b) | brottfarar- og ákvörðunarstað hlutaðeigandi ríkisborgara þriðja ríkis og hvort gegnumferðin um flughöfn samræmist fyrirhugaðri ferðaleið, | | c) | sönnun um áframhaldandi för til lokaákvörðunarstaðar. |
Meðferð umsóknar skal einkum byggjast á að skjöl, sem lögð eru fram, séu bæði ósvikin og áreiðanleg og á sannleiksgildi og áreiðanleika framburðar umsækjanda. Meðan á meðferð umsóknar stendur er ræðisskrifstofum heimilt, þegar ástæða þykir til, að kalla umsækjanda í viðtal og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn. Þótt áður hafi verið synjað um vegabréfsáritun skal það ekki leiða til þess að nýrri umsókn verði synjað sjálfkrafa. Ný umsókn skal metin á grundvelli allra fyrirliggjandi upplýsinga. 22. gr. Fyrirframsamráð við miðlæg stjórnvöld annarra aðildarríkja. Aðildarríki getur farið fram á að miðlæg stjórnvöld annarra aðildarríkja hafi samráð við miðlæg stjórnvöld þess við meðferð umsókna frá ríkisborgurum tiltekinna þriðju ríkja eða tiltekinna hópa þeirra. Slíkt samráð á ekki við þegar um er að ræða umsóknir um vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn. Útlendingastofnun er miðlægt stjórnvald og fer með samráð við önnur aðildarríki á grundvelli þessarar greinar. 23. gr. Ákvörðun um umsókn. Taka skal ákvörðun um umsókn innan 15 almanaksdaga frá þeim degi sem umsókn, sem telst tæk skv. 19. gr., er lögð fram. Í einstaka tilvikum er heimilt að lengja það tímabil í allt að 30 almanaksdaga að hámarki, einkum þegar frekari athugun á umsókn er þörf eða þegar um er að ræða fyrirsvar þar sem hafa þarf samráð við yfirvöld í aðildarríkjunum sem njóta fyrirsvars. Í undantekningartilvikum, þegar þörf er á viðbótargögnum, er heimilt að lengja tímabilið í allt að 60 almanaksdaga að hámarki. Hafi umsókn ekki verið dregin til baka skal tekin ákvörðun um að: | a) | gefa út samræmda vegabréfsáritun í samræmi við 24. gr., | | b) | gefa út vegabréfsáritun með takmarkað gildissvæði í samræmi við 25. gr., | | c) | synja um vegabréfsáritun í samræmi við 32. gr. eða | | d) | hætta meðferð umsóknar og afhenda hana viðkomandi yfirvöldum í aðildarríkinu, sem nýtur fyrirsvars, í samræmi við 2. mgr. 8. gr. |
Þótt ekki sé hægt að taka fingraför af umsækjanda af líkamlegum orsökum, í samræmi við b-lið 7. mgr. 13. gr., hefur það ekki áhrif á hvort vegabréfsáritun er veitt eða synjað um hana. IV. KAFLI Útgáfa vegabréfsáritunar. 24. gr. Útgáfa samræmdrar vegabréfsáritunar. Gildistími vegabréfsáritunar og lengd heimilaðrar dvalar skal byggjast á meðferðinni sem fram fer í samræmi við 21. gr. Heimilt er að gefa út vegabréfsáritun fyrir eina eða fleiri komur. Gildistími skal ekki vera lengri en fimm ár. Ef um er að ræða gegnumferð skal lengd heimilaðrar dvalar samsvara þeim tíma sem nauðsynlegur er til gegnumferðarinnar. Með fyrirvara um a-lið 12. gr. skal gildistími vegabréfsáritana vera 15 dögum lengri en dagafjöldi heimilaðrar dvalar. Heimilt er að veita ekki slíkan 15 daga viðbótartíma með vísan til allsherjarreglu eða vegna alþjóðasamskipta einhverra aðildarríkjanna. Með fyrirvara um a-lið 12. gr. skulu vegabréfsáritanir fyrir margar komur gefnar út með gildistímann frá sex mánuðum til fimm ára, ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt: | a) | umsækjandi sýnir fram á þá þörf eða rökstyður þá fyrirætlun sína að ferðast oft og/eða reglulega, einkum vegna starfs síns eða fjölskylduaðstæðna, s.s. ef um er að ræða kaupsýslumenn, opinbera starfsmenn sem eru að staðaldri í opinberum tengslum við aðildarríki og stofnanir Evrópusambandsins, fulltrúa borgaralegra samfélagsstofnana, sem ferðast í því skyni að afla sér menntunar og taka þátt í málstofum og ráðstefnum, aðstandendur íslenskra ríkisborgara eða EES- eða EFTA-útlendinga, aðstandendur ríkisborgara þriðju ríkja sem dveljast löglega í aðildarríkjunum og sjómenn, | | b) | umsækjandi sýnir fram á ráðvendni sína og áreiðanleika, einkum að því er varðar löglega notkun fyrri samræmdra vegabréfsáritana eða áritana með takmarkað gildissvæði, fjárhagsstöðu sína í upprunalandinu og að það sé einlægur ásetningur hans að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin, sem sótt er um, rennur út. |
25. gr. Útgáfa vegabréfsáritunar með takmarkað gildissvæði. Heimilt er að gefa út vegabréfsáritun sem gildir einungis fyrir Ísland þegar: a) | það er talið nauðsynlegt af mannúðarástæðum, í þágu þjóðarhagsmuna eða vegna alþjóðlegra skuldbindinga að: | | i. | gera undanþágu frá þeirri meginreglu að viðkomandi verði að uppfylla komuskilyrðin, sem mælt er fyrir um í a-, c-, d- og e-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1212/2007 um för yfir landamæri, | | ii. | gefa út vegabréfsáritun þrátt fyrir að aðildarríkið, sem samráð var haft við í samræmi við 22. gr., mæli gegn útgáfu samræmdrar vegabréfsáritunar eða | | iii. | gefa út vegabréfsáritun af áríðandi ástæðum, þrátt fyrir að fyrirframsamráð skv. 22. gr. hafi ekki farið fram, | | eða | | b) | ef, af ástæðum sem ræðisskrifstofan telur réttlætanlegar, gefin er út ný vegabréfsáritun vegna dvalar á sama sex mánaða tímabili og umsækjandinn hefur þegar notað samræmda vegabréfsáritun eða vegabréfsáritun með takmarkað gildissvæði sem heimilar þriggja mánaða dvöl. |
Vegabréfsáritun með takmarkað gildissvæði skal gilda á yfirráðasvæði aðildarríkisins sem gefur hana út. Í undantekningartilvikum getur slík áritun gilt á yfirráðasvæðum fleiri en eins aðildarríkis, að fengnu samþykki hvers og eins þeirra. Ef umsækjandi er handhafi ferðaskilríkja sem eitt eða fleiri aðildarríki, en þó ekki öll, viðurkenna ekki, skal gefa út vegabréfsáritun sem gildir fyrir yfirráðasvæði þeirra aðildarríkja sem viðurkenna ferðaskilríkin. Viðurkenni útgáfuaðildarríkið ekki ferðaskilríki umsækjanda skal vegabréfsáritunin, sem það gefur út, einungis gilda í því aðildarríki. Hafi vegabréfsáritun sem gildir einungis fyrir Ísland verið gefin út á grundvelli a-liðar 1. mgr., skal Útlendingastofnun miðla viðeigandi upplýsingum til miðlægra stjórnvalda hinna aðildarríkjanna tafarlaust. Þegar tekin hefur verið ákvörðun um útgáfu vegabréfsáritunar samkvæmt 1. mgr. skulu nauðsynlegar upplýsingar skráðar inn í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir. 26. gr. Útgáfa vegabréfsáritunar til gegnumferðar um flughöfn. Vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn gildir til gegnumferðar um alþjóðleg gegnumferðarsvæði íslenskra flughafna. Með fyrirvara um a-lið 12. gr. skal gildistími vegabréfsáritunarinnar vera 15 dögum lengri en dagafjöldi heimilaðrar dvalar. Heimilt er að veita ekki slíkan frest með vísan til allsherjarreglu eða vegna alþjóðasamskipta einhverra aðildarríkjanna. Með fyrirvara um a-lið 12. gr. er heimilt að gefa út vegabréfsáritanir til margra gegnumferða um flughöfn með sex mánaða gildistíma að hámarki. Eftirfarandi viðmiðanir skipta einkum máli þegar tekin er ákvörðun um útgáfu vegabréfsáritunar til margra gegnumferða um flughöfn: | a) | þörf umsækjanda á gegnumferð oft og/eða reglulega og | | b) | ráðvendni og áreiðanleiki umsækjanda, einkum lögleg notkun fyrri samræmdra vegabréfsáritana, vegabréfsáritana með takmarkað gildissvæði eða vegabréfsáritana til gegnumferðar um flugvöll, fjárhagsstaða hans í upprunalandinu og einlægur ásetningur hans um áframhaldandi för. |
Ef gerð er krafa um að umsækjandi hafi vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn, í samræmi við ákvæði 2. mgr. 3. gr., skal slík vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn einungis gilda til gegnumferðar um alþjóðleg gegnumferðarsvæði íslenskra flughafna. Þegar tekin hefur verið ákvörðun um útgáfu vegabréfsáritunar samkvæmt 1. mgr. skulu nauðsynlegar upplýsingar skráðar inn í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir. 27. gr. Vegabréfsáritunarmiðinn fylltur út. Þegar vegabréfsáritunarmiði er fylltur út skal færa inn skyldubundnu færslurnar, sem fram koma í VII. viðauka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir og fylla út tölvulesanlega svæðið, eins og kveðið er á um í 2. hluta skjals Alþjóðaflugmálastofnunarinnar nr. 9303. Aðildarríkjunum er heimilt að setja inn athugasemdir eigin ríkis í þann hluta vegabréfsáritunarmiðans sem ætlaður er fyrir athugasemdir, enda séu þær ekki endurtekning á skyldubundnu færslunum í VII. viðauka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir. Allar færslur á vegabréfsáritunarmiða skulu prentaðar og óheimilt er að færa handvirkt inn breytingar á prentaðan vegabréfsáritunarmiða. Einungis er heimilt að fylla vegabréfsáritunarmiða út handvirkt ef um óviðráðanleg tæknileg atvik er að ræða. Á vegabréfsáritunarmiða, sem fylltur hefur verið út handvirkt, má ekki gera breytingar. Ef vegabréfsáritunarmiði er fylltur út handvirkt í samræmi við 4. mgr. þessarar greinar skal færa upplýsingar um það inn í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir. 28. gr. Ógilding vegabréfsáritunarmiða. Ef villa uppgötvast á vegabréfsáritunarmiða, sem enn hefur ekki verið festur í ferðaskilríki, skal ógilda miðann. Ef villa uppgötvast eftir að vegabréfsáritunarmiðinn hefur verið festur í ferðaskilríkin skal ógilda miðann með því að setja kross yfir hann með skjalableki og festa nýjan vegabréfsmiða á aðra blaðsíðu. Ef villa uppgötvast eftir að viðkomandi gögn hafa verið færð inn í upplýsingakerfið um vegabréfsáritanir skal leiðrétta hana svo fljótt sem verða má. 29. gr. Festing vegabréfsáritunarmiða. Vegabréfsáritunarmiða, sem búið er að prenta þær upplýsingar á sem kveðið er á um í 27. gr., skal festa í ferðaskilríki í samræmi við ákvæði VIII. viðauka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir. Séu ferðaskilríki umsækjanda ekki viðurkennd á Íslandi skal nota laust blað til að festa vegabréfsáritun á. Ef vegabréfsáritunarmiði hefur verið festur á laust blað, sem er ætlað til þess að festa vegabréfsáritun á, skal færa upplýsingar um það inn í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir. Stakar vegabréfsáritanir, sem gefnar eru út til handa einstaklingum sem eru skráðir í ferðaskilríki umsækjanda, skal festa í þau ferðaskilríki. Séu ferðaskilríkin, sem slíkir einstaklingar eru skráðir í, ekki viðurkennd hér á landi, skulu stöku vegabréfsáritunarmiðarnir festir á laus blöð til að festa á vegabréfsáritun. 30. gr. Réttur sem útgefin vegabréfsáritun veitir. Samræmd vegabréfsáritun eða vegabréfsáritun með takmarkað gildissvæði veitir ekki sjálfkrafa rétt til komu til Íslands. 31. gr. Upplýsingar frá miðlægum stjórnvöldum annarra aðildarríkja. Aðildarríki getur farið fram á að miðlægum stjórnvöldum þess sé tilkynnt um vegabréfsáritanir, sem ræðisskrifstofur annarra aðildarríkja gefa út til handa ríkisborgurum tiltekinna þriðju ríkja eða tiltekinna hópa þeirra, nema þegar um er að ræða vegabréfsáritanir til gegnumferðar um flughöfn. 32. gr. Vegabréfsáritun synjað. Með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. skal synjað um vegabréfsáritun í eftirfarandi tilvikum: a) | ef umsækjandi: | | i. | framvísar ferðaskilríkjum sem eru grunnfölsuð, breytifölsuð eða fölsuð á annan hátt, | | ii. | getur ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, | | iii. | færir ekki sönnur á að hann hafi nægt fé sér til framfærslu, bæði meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til þess að snúa aftur til uppruna- eða búsetulands síns eða til gegnumferðar um þriðja ríki, sem víst þykir að honum verði hleypt inn í, eða að hann sé í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, | | iv. | hefur þegar dvalið í þrjá mánuði á sex mánaða tímabili á yfirráðasvæði aðildarríkjanna, á grundvelli samræmdrar vegabréfsáritunar eða vegabréfsáritunar með takmarkað gildissvæði, | | v. | er á skrá í Schengen-upplýsingakerfinu yfir óæskilega einstaklinga sem synja á um komu, | | vi. | er talinn vera ógnun við allsherjarreglu, innra öryggi eða almannaheilsu, eins og skilgreint er í 20. tl. 3. gr. reglugerðar nr. 1212/2007 um för yfir landamæri, eða við alþjóðasamskipti í einhverju aðildarríkjanna, einkum ef hann er á skrá í landsbundnum gagnagrunnum aðildarríkjanna yfir óæskilega einstaklinga sem synja á um komu af sömu ástæðum, eða | | vii. | leggur ekki fram sönnun fyrir því að hann sé handhafi gildrar ferðasjúkratryggingar, þar sem við á, eða | b) | ef rökstudd ástæða er til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin, sem sótt er um, rennur út. |
Umsækjanda skal tilkynnt um ákvörðun um synjun og ástæður fyrir henni á stöðluðu eyðublaði sem sett er fram í viðauka 6. Heimilt er að kæra synjun um vegabréfsáritun í samræmi við 30. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002. Í þeim tilvikum sem um getur í 2. mgr. 8. gr. skal ræðisskrifstofa aðildarríkisins, sem veitir fyrirsvar, tilkynna umsækjanda um ákvörðun íslenskra stjórnvalda um synjun um vegabréfsáritun og leiðbeina um kæruheimild. Upplýsingar um synjun vegabréfsáritunar skal færa inn í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir. V. KAFLI Breyting á útgefinni vegabréfsáritun. 33. gr. Framlenging. Heimilt er að framlengja gildistíma útgefinnar vegabréfsáritunar og/eða lengd dvalartíma sem hún heimilar hafi handhafi hennar fært sönnur á óviðráðanlegar aðstæður eða mannúðarástæður sem koma í veg fyrir að hann geti farið af yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en gildistími vegabréfsáritunarinnar eða dvalartíminn sem hún heimilar rennur út. Slík framlenging skal vera án endurgjalds. Heimilt er að framlengja gildistíma útgefinnar vegabréfsáritunar og/eða lengd dvalartíma sem hún heimilar hafi handhafi hennar fært sönnur á mikilvægar persónulegar aðstæður sem réttlæta framlengingu á gildistíma eða dvalartíma. Framlengda vegabréfsáritunin skal hafa sama gildissvæði og upprunalega vegabréfsáritunin nema stjórnvald það, sem framlengir vegabréfsáritunina, ákveði annað. Íslenskum stjórnvöldum er heimilt að fara með umsókn um framlengingu vegabréfsáritunar ef umsækjandi er staddur hér á landi þegar umsóknin er lögð fram. Framlenging vegabréfsáritana skal vera á vegabréfsáritunarmiða sbr. 27. gr. Upplýsingar um framlengingu vegabréfsáritunar skal færa inn í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir. 34. gr. Ógilding og afturköllun. Vegabréfsáritun skal ógilda ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Vegabréfsáritun skal afturkalla ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar eru ekki lengur uppfyllt. Vegabréfsáritun skal að jafnaði afturkölluð af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að afturkalla vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um slíka afturköllun. Heimilt er að afturkalla vegabréfsáritun að beiðni handhafa hennar. Tilkynna skal lögbærum yfirvöldum aðildarríkjanna, sem gáfu út vegabréfsáritunina, um slíka afturköllun. Þótt handhafi vegabréfsáritunar geti ekki framvísað einu eða fleiri af þeim fylgiskjölum, sem um getur í 3. mgr. 14. gr., við landamæri leiðir það ekki sjálfkrafa til þess að ákvörðun verði tekin um að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun. Þegar vegabréfsáritun er ógilt eða afturkölluð skal stimpla hana með orðunum „ÓGILT“ („ANNULLED“) eða „AFTURKALLAГ („REVOKED“) og ógilda hinn ljósfræðilega breytilega þátt vegabréfsáritunarmiðans, öryggisþáttinn „dulin myndhrif“ og orðið „vegabréfsáritun“ („visa“) með því að setja kross yfir þau. Umsækjanda skal tilkynnt um ákvörðun um ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar og ástæður fyrir henni á stöðluðu eyðublaði sem sett er fram í viðauka 6. Handhafa vegabréfsáritunar, sem ógilt hefur verið eða afturkölluð, er heimilt að kæra ákvörðunina nema vegabréfsáritunin hafi verið afturkölluð að beiðni hans í samræmi við 3. mgr. Kærum skal beint gegn aðildarríkinu sem tók ákvörðun um ógildingu eða afturköllun og um þær skal fara að landslögum þess aðildarríkis. Um kæru á ákvörðun íslenskra stjórnvalda um ógildingu eða afturköllun fer samkvæmt 30. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002. Upplýsa skal umsækjanda um málsmeðferð þá sem fylgja ber við kæru og tilgreind er í viðauka 6. Upplýsingar um ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar skal færa inn í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir. VI. KAFLI Útgáfa vegabréfsáritana á ytri landamærunum. 35. gr. Umsókn vegabréfsáritana á ytri landamærum. Í undantekningartilvikum er heimilt að gefa út vegabréfsáritanir á landamærastöðvum að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: | a) | umsækjandi uppfyllir skilyrðin sem mælt er fyrir um í a-, c-, d- og e-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1212/2007 um för yfir landamæri, | | b) | umsækjandi var ekki í aðstöðu til að sækja um vegabréfsáritun fyrirfram og leggur fram gögn til staðfestingar á ófyrirsjáanlegum og brýnum ástæðum fyrir komu, ef um það er beðið, og | | c) | talið er öruggt að umsækjandi komist aftur til uppruna- eða búsetulands síns eða áfram í gegnum önnur ríki en þau aðildarríki þar sem Schengen-gerðirnar hafa komið til framkvæmda að fullu. |
Ef sótt er um vegabréfsáritun á ytri landamærum er heimilt að gera undanþágu frá kröfunni um að umsækjandi sé handhafi ferðasjúkratryggingar standi slík ferðasjúkratrygging ekki til boða á þeirri landamærastöð eða af mannúðarástæðum. Vegabréfsáritun, sem gefin er út á ytri landamærum, skal vera samræmd vegabréfsáritun sem heimilar handhafa að hámarki 15 daga dvöl, eftir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Ef um gegnumferð er að ræða skal lengd heimilaðrar dvalar samsvara þeim tíma sem nauðsynlegur er til gegnumferðarinnar. Ef skilyrðin, sem mælt er fyrir um í a-, c-, d- og e-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri, eru ekki uppfyllt getur stjórnvald, sem annast útgáfu vegabréfsáritana á landamærum, gefið út vegabréfsáritun sem gildir einungis fyrir Ísland, í samræmi við a-lið 1. mgr. 25. gr. þessarar reglugerðar. Ekki er heimilt að gefa út vegabréfsáritun til ríkisborgara þriðja ríkis ef hafa þarf samráð fyrirfram, í samræmi við 22. gr., við eitthvert aðildarríkjanna sem árituninni er ætlað að gilda fyrir. Þó er heimilt, í undantekningartilvikum, að gefa út vegabréfsáritun sem einungis gildir fyrir Ísland á ytri landamærum séu skilyrði a-liðar 1. mgr. 25. gr. fyrir hendi. Til viðbótar við þær ástæður til synjunar vegabréfsáritunar, sem kveðið er á um í a-lið 1. mgr. 32. gr., skal synja um vegabréfsáritun á landamærastöð ef skilyrðin, sem um getur í b-lið 1. mgr. þessarar greinar, eru ekki uppfyllt. Ákvæði 3. mgr. 32. gr. og viðauka 6 um rök fyrir og tilkynningu um synjun og um kæruheimild skulu gilda. 36. gr. Útgáfa vegabréfsáritana til handa sjómönnum í gegnumferð á ytri landamærum. Heimilt er að gefa út á landamærum vegabréfsáritun til gegnumferðar til handa sjómanni sem fellur undir kvöð um vegabréfsáritun þegar hann fer yfir ytri landamæri aðildarríkjanna ef: | a) | hann uppfyllir skilyrðin í 1. mgr. 35. gr. og | | b) | hann fer yfir viðkomandi landamæri í þeim tilgangi að fara um borð í skip sem hann er að hefja störf á sem sjómaður eða til að snúa aftur um borð í skip eða fara endanlega frá borði skips sem hann hefur starfað á sem sjómaður. |
Áður en gefin er út vegabréfsáritun á landamærum til handa sjómanni í gegnumferð skulu stjórnvöld fara að reglunum í 1. hluta 7. viðauka og sjá til þess að skipst hafi verið á nauðsynlegum upplýsingum varðandi hlutaðeigandi sjómann með tilhlýðilega útfylltu eyðublaði fyrir sjómenn í gegnumferð sem sett er fram í 2. hluta 7. viðauka. Þetta ákvæði gildir með fyrirvara um ákvæði 3., 4. og 5. mgr. 35. gr. IV. HLUTI Rekstur stjórnsýslu og skipulag. 37. gr. Skipulag vegabréfsáritanadeilda. Þegar utanríkisráðuneytið felur íslenskum ræðisskrifstofum að annast útgáfu vegabréfsáritana, semur við utanaðkomandi þjónustuaðila eða milliliði í öðrum ríkjum, eða felur kjörræðismönnum að annast um tiltekin verkefni vegna móttöku umsókna um vegabréfsáritanir og tekur þátt í staðbundnu samstarfi ræðisskrifstofa aðildarríkja gilda ákvæði 37. – 45. gr. og 48. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir um þá starfsemi. 38. gr. Samantekt tölulegra upplýsinga. Útlendingastofnun skal árlega taka saman tölulegar upplýsingar um vegabréfsáritanir í samræmi við töfluna í XII. viðauka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir og senda upplýsingarnar til dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins og til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þessar tölulegu upplýsingar skulu lagðar fram fyrir 1. mars fyrir næstliðið almanaksár. 39. gr. Upplýsingar til almennings. Útlendingastofnun og ræðisskrifstofur sem utanríkisráðuneytið felur útgáfu vegabréfsáritana skulu veita almenningi allar viðeigandi upplýsingar í tengslum við umsókn um vegabréfsáritun, einkum um: | a) | viðmiðanir, skilyrði og málsmeðferð við umsókn vegabréfsáritunar, | | b) | hvernig panta má viðtalstíma, ef við á, | | c) | hvar leggja má fram umsókn (á þar til bærri ræðisskrifstofu, í sameiginlegri umsóknarmiðstöð eða hjá utanaðkomandi þjónustuaðila), | | d) | viðurkennd fyrirtæki sem starfa sem milliliðir, | | e) | þá staðreynd að stimpillinn, sem kveðið er á um í 20. gr. hefur engin bein réttaráhrif, | | f) | fresti til meðferðar á umsóknum, sem kveðið er á um í 1., 2. og 3. mgr. 23. gr., | | g) | þriðju ríki þar sem hafa þarf fyrirframsamráð vegna ríkisborgara eða sérstakra hópa þeirra eða veita upplýsingar um þá, | | h) | að tilkynna verði umsækjanda um neikvæða ákvörðun, að gefa verði upp ástæður sem liggja til grundvallar synjuninni og að umsækjendur hafi málskotsrétt ef umsóknum þeirra er synjað, auk upplýsinga um málsmeðferð þá sem fylgja ber við kæru, hvaða yfirvald telst vera lögbært yfirvald og um frest til að leggja fram kæruna, | | i) | að vegabréfsáritunin ein veiti ekki sjálfkrafa rétt til komu og að handhafar vegabréfsáritunar þurfi að leggja fram sönnun þess að þeir uppfylli komuskilyrði við ytri landamærin sem kveðið er á um í 5. gr. reglugerðar nr. 1212/2007 um för yfir landamæri. |
Aðildarríkið sem veitir fyrirsvar og aðildarríkið sem nýtur fyrirsvars skulu tilkynna almenningi um samkomulag um fyrirsvar, eins og um getur í 8. gr. áður en það öðlast gildi. V. HLUTI Lokaákvæði. 40. gr. Fyrirkomulag í tengslum við Ólympíuleikana og Ólympíuleika fatlaðra. Aðildarríki, sem halda Ólympíuleikana og Ólympíuleika fatlaðra, skulu beita sértæku málsmeðferðinni og skilyrðunum til að greiða fyrir útgáfu vegabréfsáritana sem sett eru fram í viðauka 8. 41. gr. Tilkynningar. Útlendingastofnun skal tilkynna framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um: | a) | samkomulag varðandi fyrirsvar sem um getur í 8. gr., | | b) | þriðju ríki hverra ríkisborgurum er skylt að hafa vegabréfsáritun til gegnumferðar um flughöfn þegar þeir fara um alþjóðleg gegnumferðarsvæði flughafna sem eru á yfirráðasvæði aðildarríkjanna, eins og um getur í 3. gr., | | c) | íslenskt eyðublað fyrir sönnun á að einhver ábyrgist framfærslu hlutaðeigandi og/eða gistingu í heimahúsi, sem um getur í 4. mgr. 14. gr., ef við á, | | d) | lista yfir þriðju ríki sem falla undir kröfu um fyrirframsamráð, eins og um getur í 22. gr., | | e) | lista yfir þriðju ríki, sem falla undir kröfu um upplýsingar, eins og um getur í 31. gr., | | f) | viðbótarathugasemdir Íslands í þann hluta vegabréfsáritunarmiðans sem ætlaður er fyrir athugasemdir, eins og um getur í 2. mgr. 27. gr., | | g) | lögbær yfirvöld til að framlengja vegabréfsáritanir á Íslandi, | | h) | það fyrirkomulag samstarfs sem valið er, eins og um getur í 40. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir, sbr. 37. gr., | | i) | tölulegar upplýsingar sem teknar eru saman í samræmi við 46. gr. og XII. viðauka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir. |
42. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi, sem innleiðir ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir, er sett með heimild í 3. og 7. mgr. 6. gr. og 58. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002 og öðlast þegar gildi. Við gildistöku hennar falla úr gildi ákvæði 16.-27. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 53/2003 sem og viðaukar hennar númer 3, 4, 5 og 6. Ákvæði 2. mgr. 32. gr., 6. mgr. 34. gr. og 7. mgr. 35. gr. koma til framkvæmda frá 5. apríl 2011. Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 10. desember 2010. Ögmundur Jónasson. Kristrún Kristinsdóttir. VIÐAUKAR (sjá PDF-skjal) |