Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1020/2008

Nr. 1020/2008 15. október 2008
REGLUGERÐ
um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu.

1. gr.

Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða reglugerð (EB) nr. 1794/2006 frá 6. desember 2006 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, sem birt er sem viðauki I við reglugerð þessa, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2007 frá 6. júlí 2007.

2. gr.

Gildissvið.

Gildissvið reglugerðarinnar er nánar skilgreint í 2.-5. mgr. 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1794/2006 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, sbr. viðauka I við reglugerðina og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

3. gr.

Lögbært yfirvald.

Flugmálastjórn Íslands telst lögbært yfirvald skv. reglugerð þessari.

4. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1794/2006 frá 6. desember 2006 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsögu­þjónustu, sem birt er sem viðauki I við reglugerð þessa, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2007 frá 6. júlí 2007, birt í EES-viðbæti nr. 60, bls. 28.

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 15. október 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 5. nóvember 2008