Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 307/2009

Nr. 307/2009 23. mars 2009
GJALDSKRÁ
fyrir ljósrit eða afrit sem veitt eru á grundvelli stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

1. gr.

Gildissvið.

Stjórnvaldi er heimilt að krefja aðila máls um greiðslu fyrir afrit, endurrit eða ljósrit af skjölum er mál hans varða og aðili óskar eftir að fá afhent á grundvelli IV. kafla stjórnsýslulaga.

2. gr.

Ljósrit eða afrit af skjölum.

Fyrir ljósrit eða afrit af skjölum er heimilt að krefjast kr. 20 fyrir hverja blað­síðu í stærðinni A4 eða A5, allt að 100 síðum, en kr. 15 fyrir hverja blaðsíðu umfram það.

Fyrir ljósrit eða afrit skjala í stærðinni A3 er heimilt að krefjast kr. 30 fyrir hverja blaðsíðu og kr. 40 í stærðinni A2.

3. gr.

Endurritun skjala.

Þegar skjal er endurritað samkvæmt beiðni aðila máls, er heimilt að krefja hann um greiðslu kr. 300 fyrir hverja blaðsíðu.

4. gr.

Aðkeypt þjónusta.

Stjórnvaldi er heimilt að synja um afrit eða ljósrit af skjölum ef skjölin eru þess eðlis eða fjöldi þeirra svo mikill að slíkt er verulegum vandkvæðum bundið, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þó getur stjórnvald í þessum tilvikum ákveðið að fela öðrum aðila að sjá um afritun eða ljósritun skjala telji það slíkt unnt.

Fyrir aðkeypta þjónustu skal greitt samkvæmt reikningi þess er hana annast.

5. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 3. málsl. 1. mgr. 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og öðlast þegar gildi.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 186/1994.

Forsætisráðuneytinu, 23. mars 2009.

F. h. r.
Ragnhildur Arnljótsdóttir.

Páll Þórhallsson.

B deild - Útgáfud.: 24. mars 2009