Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 521/2007

Nr. 521/2007 29. maí 2007
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um próf í verðbréfaviðskiptum nr. 633, 15. ágúst 2003.

1. gr.

Bráðabirgðaákvæði við 5. gr. reglugerðar nr. 633/2003 orðist svo:

Próftaki, sem hefur próf eldra en þriggja ára, er undanþeginn reglunni um að ljúka öllum prófum innan þriggja ára, nái hann að ljúka náminu fyrir 1. september 2008.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 53. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Viðskiptaráðuneytinu, 29. maí 2007.

Björgvin G. Sigurðsson.

Kristján Skarphéðinsson.

B deild - Útgáfud.: 15. júní 2007