1. gr. 2. málsgrein 3. gr. hljóði svo: Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til einstakra sveitarfélaga skulu reiknast sem mismunur á fasteignamati og álagningarstofni í hverju sveitarfélagi, sbr. 1. mgr., margfaldaður með álagningarprósentu fasteignaskatts viðkomandi sveitarfélags, skv. a- og c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 með síðari breytingum, á því ári sem framlagið kemur til greiðslu. 2. gr. Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er hljóðar svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga á árinu 2011 greiða sveitarfélögum framlag fyrirfram sem nemur 60% af ráðstöfunarfé sjóðsins til greiðslu framlaganna á árinu 2011 að teknu tilliti til álagningarprósentu fasteignaskatts hvers sveitarfélags á árinu 2010, skv. a- og c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 með síðari breytingum. 3. gr. Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2011. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. desember 2010. Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir. |