Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1052/2013

Nr. 1052/2013 13. nóvember 2013
AUGLÝSING
um (3.) breytingu á gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands, nr. 1345/2011 fyrir tæknifrjóvgun sem ekki hefur verið samið um.

1. gr.

Í stað orðanna „sem veitt er á tímabilinu 1. janúar - 31. desember 2013“ í 3. gr. kemur: sem veitt er frá 1. janúar 2012 og er gildistími sá sami og kveðið er á um í 3. gr. reglu­gerðar nr. 917/2011 með síðari breytingum.

2. gr.

Auglýsing þessi um breytingu á gjaldskránni, sem sett er með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og reglugerð nr. 917/2011, um þátttöku sjúkra­trygg­inga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkra­trygg­ingar Íslands, sbr. síðari breytingar, öðlast gildi 1. janúar 2014.

Sjúkratryggingum Íslands, 13. nóvember 2013.

Steingrímur Ari Arason.

Katrín E. Hjörleifsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 28. nóvember 2013