1. gr. Í stað „19,68%“ í 5. tl. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 20,32%. 2. gr. Í stað „24,5%“ í 6. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar kemur: 25,5%. 3. gr. Í stað „19,68%“ í 2. mgr. 26. gr. reglugerðarinnar kemur: 20,32%. 4. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 23. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 5. mgr. 18. gr. og 1. mgr. 21. gr. laganna, og öðlast gildi 1. janúar 2010. Fjármálaráðuneytinu, 22. desember 2009. F. h. r. Maríanna Jónasdóttir. Sóley Ragnarsdóttir. |